Iðnaðarráðuneyti

320/2000

Reglugerð fyrir Hitaveitu Hveragerðis. - Brottfallin

REGLUGERÐ

fyrir Hitaveitu Hveragerðis.

I. KAFLI

Almennt.

1. gr.

Skilgreining.

Hitaveita Hveragerðis, skammstafað HH, er fyrirtæki sem Hveragerðisbær á og starfrækir.

2. gr.

Tilgangur.

Tilgangur HH er að annast á orkuveitusvæði sínu öflun, dreifingu og sölu á hitaorku, svo og aðra starfsemi sem því tengist.

3. gr.

Veitusvæði og einkaréttur.

Veitusvæði HH til dreifingar hitaorku er allt svæðið innan bæjarmarka Hveragerðisbæjar. HH hefur einkarétt til dreifingar og sölu á hitaorku á orkuveitusvæði sínu.

4. gr.

Ástand og dreifing hitaveituvatnsins.

HH dreifir hitaorku með þrennum hætti til viðskiptavina sinna.

Dreifikerfi I:

Kerfið er lokað tvöfalt dreifikerfi. Vatnið er hitað upp í allt að 80°C í varmaskiptastöð HH. Heita vatnið rennur frá varmaskiptastöð um húsveitu (hitakerfi) viðkomandi húsa og er allt tekið aftur til baka í varmaskiptastöð. Neysluvatn er hitað upp í sérhverju húsi með varmaskipti sem HH leggur til.

Dreifikerfi II:

Kerfið er einfalt dreifikerfi. Hitastig blöndu af heitu vatni og jarðgufu sem veitt er um kerfið er 150-180°C. Blandan kemur beint úr borholum HH. Óheimilt að hleypa vatni úr kerfinu inn á húsveitur (hitakerfi) húsa, annarra en gróðurhúsa, vegna útfellinga og hás hitastigs vatnsins og skal því vera varmaskiptir í hverju húsi. Í sérhverri húsveitu má aðeins vera einn varmaskiptir sem blanda af heitu vatni og jarðgufu úr dreifikerfi II rennur um. Öll hús, önnur en iðnaðar- og gróðurhús koma til með að tengjast dreifikerfi I í framtíðinni.

Dreifikerfi III:

Kerfið er einfalt dreifikerfi. Hitastig vatnsins er allt að 80°C. Óheimilt að hleypa heitu vatni úr kerfinu inn á húsveitur (hitakerfi) húsa vegna útfellinga í vatninu og skal því vera varmaskiptir í hverju húsi. Í sérhverri húsveitu má aðeins vera einn varmaskiptir sem heitt vatn úr dreifikerfi III rennur um. Dreifikerfi III verður aflagt á næstu árum og dreifikerfi I kemur í þess stað.

Eigandi húsveitu sem tengist dreifikerfi II eða III á varmaskiptinn sem vatn HH rennur um og sér um viðhald á honum. HH tekur ekki þátt í stofnkostnaði, viðhaldi eða endurnýjun varmaskiptis sökum útfellinga, hás hitastigs eða tæringar af völdum efnainnihalds heita vatnsins eða jarðgufunnar. Vankvæði eru á því að mæla orkunotkun þeirra notenda sem fá afnot af heitu vatni eða jarðgufu úr dreifikerfi II og III vegna útfellinga í vatninu og hás hitastigs þess.

II. KAFLI

Stjórn og rekstur.

5. gr.

Yfirstjórn.

Yfirstjórn HH er í höndum bæjarstjórnar en framkvæmdastjórn HH skal falin stjórn veitustofnana ásamt framkvæmdastjóra.

6. gr.

Veitustjórn.

Veitustjórn skipa fimm menn og fimm til vara sem kosnir eru af bæjarstjórn. Kjörtímabil veitustjórnar er 4 ár og lýkur samtímis kjörtímabili bæjarstjórnar. Bæjarstjórn velur formann en stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Geti stjórnarmaður ekki sótt fund skal hann að jafnaði boða varamann sinn, eða hlutast til um að varamaður verði boðaður.

7. gr.

Ákvörðunartaka.

Stjórn er ákvörðunarbær þegar meirihluti hennar sækir fund. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum.

8. gr.

Verksvið stjórnar.

Hlutverk stjórnar er:

a) að hafa eftirlit með því að skipulag og starfsemi HH sé jafnan í réttu og góðu horfi

b) að semja framkvæmda- og fjárhagsáætlanir og leggja fyrir bæjarstjórn

c) að semja drög að þriggja ára áætlun, um rekstur, framkvæmdir og fjármál veitna fyrir bæjarstjórn

d) að semja verðskrá fyrir HH og leggja hana fyrir bæjarstjórn

e) að ákveða framkvæmdir á orkuveitusvæði HH í samræmi við samþykktir bæjarstjórnar og ákvæði sveitarstjórnarlaga

f) að undirbúa samninga um orkukaup og orkusölu

g) að gefa bæjarstjórn þær skýrslur sem hún óskar eftir

h) að semja nánari reglur um einstök framkvæmdaratriði þessarar reglugerðar eftir því sem þörf er á og leggja þær fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

9. gr.

Framkvæmdastjóri.

Bæjarstjórn ræður framkvæmdastjóra HH að fengnum tillögum stjórnar og setur honum erindisbréf.

Framkvæmdastjóri:

a) annast allan daglegan rekstur og skal í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem stjórn setur fram

b) situr fundi stjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt

c) gerir tillögur til stjórnar um lausn verkefna skv. gr. 8.

d) undirbýr fundi í samráði við formann stjórnar. Hann sér um að boðað sé til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.

10. gr.

Starfsmannahald.

HH og Hveragerðisbær hafa sameiginlegt skrifstofu- og starfsmannahald skv. sérstökum samningi.

11. gr.

Reikningshald.

HH skal hafa sjálfstæðan fjárhag og aðgreint reikningshald. Reikningsár HH er almanaksárið og skulu endurskoðaðir reikningar þeirra fylgja reikningum bæjarfélagsins.

Tekjum HH skal fyrst og fremst varið til að standa straum af nauðsynlegum rekstrarkostnaði og fjárfestingum þannig að öruggur rekstur HH sé tryggður, þar með talin greiðsla afborgana og vaxta af skuldum þeirra. Ráðstöfun hagnaðar eða jöfnun taps skal ákveðin af bæjarstjórn að fengnum tillögum stjórnar.

III. KAFLI

Gjaldskrá og innheimta.

12. gr.

Gjaldskrá.

a) Almennt.

Í gjaldskrá skal kveðið á um verð fyrir hitaorku, heimæðar, um gjalddaga, eindaga og innheimtu gjalda, viðurlög við vanskilum og annað sem kemur gjaldtökunni við. Skal gjaldskrá við það miðuð að eðlilegur afrakstur fáist af því fjármagni sem á hverjum tíma er bundið í rekstri fyrirtækisins. Skal fyrirtækinu þannig vera kleift með eigin fjármagni og hæfilegum lántökum að tryggja viðskiptavinum sínum næga orku á hagkvæmasta verði.

Gjaldskrá sem hlotið hefur samþykki bæjarstjórnar skal lögð fyrir iðnaðarráðuneytið, til staðfestingar og skal hún birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Viðskiptavinir HH skulu greiða HH orkukaupin samkvæmt gildandi gjaldskrá á hverjum tíma. Við verðbreytingar skal reikningsfæra notkun í beinu hlutfalli við gildistíma hverrar gjaldskrár á því tímabili sem reikningurinn tekur til.

b) Áætlun álesturs og uppgjör fyrir hitaorku.

HH selur notendum hitaorku sem þeir fá úr heitu vatni eða blöndu af heitu vatni og jarðgufu.

HH innheimtir, af þeim notendum, sem fá hitaorku úr heitu vatni úr dreifikerfi I, gjald (kr/m3) fyrir hvern rúmmetra heits vatns sem fer um rennslismæli, sem HH setur upp við hitaveituinntak hjá notanda.

Vegna vankvæða við að mæla orkuinnihald heits vatns og jarðgufu í dreifikerfi II og III, er HH heimilt að innheimta gjald í réttu hlutfalli við flatarmál húsnæðis, sem áformað er að hita með þeim hætti að uppfylltum þeim skilyrðum sem að neðan greinir.

Fyrir þetta gjald lætur HH notanda í té heitt vatn eða blöndu af heitu vatni og jarðgufu, sem nægir til að mæta aflþörf til hitunar húsrýmis sem hér segir:

Fyrir íbúðar-, þjónustu-, verslunar-, og iðnaðarhúsnæði 75 W/m2.

Fyrir gróðurhús 220 W/m2.

Óski notandi eftir meira afli en að ofan greinir skal HH láta honum það í té, ef það er unnt án umtalsverðs viðbótarkostnaðar fyrir HH. HH er þá heimilt að krefja viðkomandi notanda um gjald samkvæmt sérstökum orkukaupasamningi sem aðilar gera með sér vegna umframaflsins.

HH innheimtir fast gjald sem inniheldur ýmsan fastan kostnað s.s. fyrir mælaleigu, mælaálestur, útgáfu orkureikninga o.fl. Stefnt er að því að öll hús í Hveragerði önnur en gróðurhús og iðnaðarhús tengist dreifikerfi I á næstu árum.

Gjald fyrir hitaorku skal ekki innheimta fyrr en frágangi heimæðar ásamt mæla- eða hemlagrind er að fullu lokið og viðkomandi húsnæði er a.m.k. orðið fokhelt.

c) Reikningar, gjalddagi og vextir.

Orkureikninga skal senda út reglulega og eigi sjaldnar en á tveggja mánaða fresti. Þeir skulu sendir notanda á notkunarstað eða á annan stað sem hann tiltekur.

Gjalddagi er við útgáfu reiknings. Eindagi er samkvæmt ákvæðum í gjaldskrá hverju sinni.

Inneignarvextir skulu greiddir ef notkun orkukaupanda reynist minni en áætlað var. Skulu þeir greiddir fyrir reikningstímabil sem tilgreint er á reikningi. Vanskilavextir (dráttarvextir) skulu innheimtir vegna skuldar orkukaupanda; skulu þeir reiknaðir frá eindaga sem tilgreindur er á reikningi.

13. gr.

Stöðvun orkuafhendingar.

a) Lokunaraðvörun.

Sé orkureikningur ekki greiddur á eindaga, eða ef notandi vanefnir skyldur sínar samkvæmt reglugerð þessari eða skriflegum samningi um orkukaup, má HH stöðva orkuafhendingu til notanda að undangenginni skriflegri aðvörun sem sendist honum með minnst 5 daga fyrirvara.

b) Innheimtuaðgerðir.

Vanskil á greiðslu áætlunarreikninga heimila HH sömu aðgerðir til innheimtu og stöðvunar orkuafhendingar og vanskil á álestrarreikningum. HH ber ekki ábyrgð á hugsanlegum afleiðingum slíkrar stöðvunar.

c) Greiðsluskylda á lokunartíma.

Stöðvun orkuafhendingar vegna vanskila hefur engin áhrif á greiðsluskyldu notanda á skuldum við HH né heldur greiðsluskyldu á fastagjaldi, aflgjaldi og tækjaleigu á lokunartíma.

HH hefur rétt til þess að krefja notanda um greiðslu kostnaðar við undirbúning að stöðvun orkuafhendingar (lokun), ennfremur við framkvæmd lokunar, svo og opnun veitunnar.

d) Stöðvun orkuafhendingar.

HH má stöðva orkuafhendingu með hverjum þeim hætti sem henta þykir. HH er ekki skylt að tilkynna notanda um sjálfa stöðvun orkuafhendingarinnar enda sé ekki óeðlilega langur tími liðinn frá viðvörun um hana.

e) Opnun lokaðrar veitu.

Sé lokað fyrir veitu vegna skulda skal hún að jafnaði ekki opnuð aftur nema skuldin sé að fullu greidd og/eða trygging sé sett fyrir skilvísri greiðslu framvegis.

f) Óleyfileg tenging veitu.

Enginn má endurtengja veitu nema þeir sem HH hefur veitt til þess umboð hverju sinni.

Óleyfilega tengda veitu má HH rjúfa fyrirvaralaust.

IV. KAFLI

Almenn ákvæði um tengingu húsveitna.

14. gr.

Eigandi/notandi veitu.

Húsveita (hitakerfi húss) er sjálfstæð veita sem tengd er við heimæð HH. Eigandi húsveitu

nefnist húseigandi. Kaupandi heits vatns eða blöndu af heitu vatni og jarðgufu, eða sá sem ber ábyrgð á greiðslu hennar, nefnist notandi.

15. gr.

Umsókn um heimæð.

a) Heimæð.

Heimæð er lögn sem flytur heitt vatn eða blöndu af heitu vatni og jarðgufu frá dreifikerfi HH að aðeins einni húsveitu.

b) Skuldbinding húseiganda.

Umsókn um heimæð eða breytingu á heimæð skal undirrituð af húseiganda er skuldbindur sig til þess, með undirskrift sinni, að greiða tilskilin gjöld sem ákveðin eru í verðskrá HH og að hlíta settum reglum um kaup á orku frá HH. HH getur krafist þess að skrifleg greinargerð, byggð á tækniþekkingu, sé lögð fram varðandi áætlun um afl- og orkunotkun.

c) Óvenjulegar aðstæður.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar að því er varðar fjarlægð húsveitu frá dreifikerfi HH eða fyrirhugaða orkunotkun húsveitunnar, skal heimæðargjald ákveðið samkvæmt sérstökum samningi hverju sinni þar sem hliðsjón er höfð af stofnkostnaði við framkvæmdir.

d) Lágmarksgjald.

HH er heimilt að krefjast lágmarksgjalds (fastagjalds) sé lokað fyrir húsveitu um lengri eða skemmri tíma.

e) Frosin jörð.

Heimilt er að krefja húseiganda um greiðslu aukakostnaðar vegna lagningar heimæðar að ósk hans í frosna jörð.

16. gr.

Mælitæki.

a) Uppsetning mælitækja.

HH setur upp nauðsynleg mælitæki og ákveður fjölda þeirra, tegund og staðsetningu. Mælitækin má ekki flytja úr stað án samþykkis HH. HH getur krafist flutnings þeirra ef það þykir hentugra að mati framkvæmdastjóra.

b) Notandi.

Notandi mælitækis er sá sem skráður er fyrir orkunotkun þeirrar veitu sem mælitækið er skráð fyrir. Skal hann bera ábyrgð á mælitækjum og orkunotkun veitunnar þar til hann lætur af notkun hennar og tilkynnir HH um það.

Ef um sameiginlega orkunotkun er að ræða, t.d. hjá húsfélagi, má ekki breyta skráðum notanda nema allir sem að notkuninni standa samþykki það skriflega.

c) Notendaskipti.

Hætti skráður notandi notkun skal hann tilkynna það til HH, sem annast lokaálestur. Hafi eigi annar notandi sótt um að fá mælitækið skráð á sitt nafn skal loka því og eigi skal hefja orkusölu um tækið á ný fyrr en nafn og kennitala nýs notanda hefur verið tilkynnt.

d) Ábyrgð húseiganda við notendaskipti.

Húseigandi og orkunotandi eru samábyrgir fyrir tilkynningu til HH um notendaskipti. Vanræki þeir tilkynningarskyldu sína bera þeir báðir ábyrgð á ógreiddri orkunotkun þess aðila er áður var notandi viðkomandi veitu.

e) Viðhald.

HH annast venjulegt viðhald mælitækjanna á sinn kostnað en verði mælitæki fyrir óvenjulegu hnjaski eða skemmdum er heimilt að skylda notanda til að greiða kostnað við viðhald og endurnýjun þess.

f) Fast gjald/mælaleiga.

Notandi greiðir fast gjald eða leigu fyrir afnot mælitækis skv. verðskrá HH á hverjum tíma.

g) Prófun mælitækis.

Óski notandi að mælitæki verði prófað skal beiðni um það vera skrifleg. Reynist skekkja +/- 5% eða minni er heimilt að gera notanda að greiða kostnað við prófun.

HH hefur heimild til þess að láta prófa mælitæki ef líkur benda til mæliskekkju.

h) Greiðsla/endurgreiðsla vegna mæliskekkju.

Ef fram kemur við prófun, sem HH framkvæmir, að mælitækið hafi mælt 5% of lítið eða þaðan af minna skal notandi greiða það sem vanmælt var.

Hafi mælitæki mælt 5% of mikið eða þaðan af meira skal HH endurgreiða notandanum mismuninn með frádrætti á næsta orkureikningi eða í reiðufé.

HH getur ekki krafist viðbótargreiðslu fyrir lengra tímabil en 1 ár, og sama gildir um kröfu notanda til endurgreiðslu.

Við endurreiknun orkunotkunar skal taka tillit til fyrri notkunar viðkomandi aðila og annarra aðstæðna sem gefið gætu vísbendingu um það hvenær mælitækið bilaði. Eigi skal reikna vexti af umfram- eða vangreiðslum sem að framan greinir.

i) Véfenging á niðurstöðum prófunar.

Ef notandi véfengir niðurstöður prófunar á mælitæki skal leita úrskurðar viðurkenndra úrskurðaraðila og er hann bindandi fyrir báða aðila.

j) Notkun vegna galla á veitu.

Þótt orkunotkun verði rakin til galla á veitu eða tækjum, er HH ekki skylt að áætla frádrátt á reikningum notanda af þeim sökum.

k) Leiðrétting á reikningsfjárhæð.

Ef svo reynist að notkun hefur orðið meiri en álestur sýnir eða álestur eða útreikningur á reikningsfjárhæð verið skakkur áskilur HH sér rétt til að leiðrétta þessa skekkju undir eins og vitað er um hana allt að fjögur ár aftur í tímann.

l) Óleyfileg notkun.

Verði uppvíst að heitt vatn sé notað á annan hátt en um er samið eða að raskað hafi verið mælitækjum eða breytt tengingum, þannig að öll notkun komi ekki fram skal HH áætla þá notkun sem fram hefur farið óleyfilega og skal notandi greiða fyrir hana eftir gildandi verðskrá að viðbættum verðbótum og vöxtum, fyrir allan tímann sem liðinn er frá síðustu skoðun veitunnar og þar til leiðrétt er.

17. gr.

Innsigli.

a) Innsiglun mælitækja, o.fl.

Starfsmenn HH hafa heimild til að innsigla mælitæki, sem orkukaup eru gerð um, svo sem rennslismæla, bakrennslisloka, hemla o.þ.h. Einnig mega starfsmenn HH innsigla hluta veitu sem ómæld orka fer um. Þessi innsigli mega engir aðrir rjúfa en starfsmenn HH. Önnur innsigli HH mega faglega ábyrgir aðilar rjúfa að fengnu leyfi HH hverju sinni.

Ef skjótra aðgerða er þörf vegna hættuástands er heimilt að rjúfa innsigli en þá skal viðkomandi eigi síðar en næsta virkan dag á eftir tilkynna HH skriflega málsatvik.

Veiti notandi eða faglega ábyrgur aðili því athygli að innsigli sé rofið eða vanti er hann skyldur að tilkynna HH slíkt án tafar.

b) Óleyfilegar tengingar.

Séu settar óleyfilegar tengingar eða breytingar á hús, eða sýnt hirðuleysi í meðferð eða viðhaldi húsveitu og tækja, skal farið með það sem galla á húsveitu og er heimilt að gera eiganda að greiða þann kostnað sem aukið eftirlit með húsveitunni hefur í för með sér. Framkvæmdastjóri getur látið taka húsveitu eða tæki úr sambandi, meðan galli er á henni eða tækjunum, þar til bætt hefur verið úr.

18. gr.

Eftirlit.

a) Aðgangsréttur HH.

Starfsmenn HH eiga rétt til þess að hafa óhindraðan aðgang að inntaksrýmum og til skoðunar á húsveitum, jafnt fullgerðum sem ófullgerðum, hvort sem er:

1. til athugunar á öryggi þeirra

2. til athugunar á mælagrind, bakrennslisloka og því hvort öll notkun komi rétt til mælis samkvæmt gjaldskrá

3. til álestrar á mæli

4. til lokunar vegna vanskila og til annarra þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru samkvæmt réttindum og skyldum HH.

b) Tengiskilyrði.

Setja má í sérstakri reglugerð staðfestri af ráðherra sérákvæði um nánari tæknileg tengiskilyrði.

V. KAFLI

Tenging húsveitna við dreifikerfi HH.

19. gr.

Umsóknir og áhleyping.

a) Umsókn um orkukaup.

Sækja skal um orkukaup til HH á þar til gerðum eyðublöðum sem skrifstofa HH lætur í té. Umsóknin skal undirrituð af eiganda hússins eða af fullgildum umboðsmanni hans ásamt pípulagningameistara þeim sem verkið á að annast. Umsókn skulu fylgja teikningar samþykktar af byggingarfulltrúa bæjarins. Staðsetning inntaks og inntaksrýmis skal greinilega mörkuð á uppdrætti.

b) Áhleyping á húsveitu.

Skilyrði fyrir sölu á heitu vatni er að í gildi sé samþykkt umsókn um áhleypingu á húsveitu við veitukerfi HH og að pípulagningameistari hafi skilað inn til HH vottorði um úttekt byggingarfulltrúa á viðkomandi húsveitu. Sækja skal um áhleypingu á húsveitu HH með minnst fjögurra daga fyrirvara. Engir aðrir en umboðsmenn HH mega hleypa vatni úr heimæð HH á húsveitu í fyrsta sinn eftir tengingu.

Verði húsveita tengd heimæð HH í heimildarleysi, getur HH aftengt húsveituna fyrirvaralaust.

c) Lagning heimæðar.

HH er heimilt að leggja heimæð eða sameiginlega heimæð um lóð og húseigandi skal sjá fyrir inntaksrými fyrir hitaveituinntak og mælagrind sem HH leggur til.

d) Inntaksop.

Inntaksop í sökkli skal vera minnst 50 sm að hæð og 40 sm að breidd, fjarlægð frá efri brún grunnplötu að opi skal vera 30 sm.

Inntaksop í gólfi við útvegg skal minnst vera 50 sm x 50 sm.

e) Inntaksrými.

Inntaksrými skal vera í samræmi við 86. gr. byggingarreglugerðar nr. 441/1998.

Ekki má vera innangengt úr íbúð eða iðnaðar-, verslunar- eða þjónustuhúsi, í inntaksrými þeirra húsa sem tengjast dreifikerfi II. Í slík inntaksrými skal vera utangengt, örugg rakavörn í veggjum og lofti rýmisins og gólfflatarmál minnst 2,0 fermetrar.

Leyfilegt er að inntaksrými sé í bílskúr.

Leyfilegt er að inntaksrými sé í sérstökum inntaksskáp sem byggður er utan við útvegg húss. Inntaksskápur skal minnst vera 90 sm djúpur, 150 sm breiður og 190 sm hár. Skápurinn má ekki vera niðurgrafinn að neinu leyti. Framhlið inntaksskáps skal vera sem næst öll opnanleg.

Leyfilegt er að inntaksrými sé í sérstökum inntaksbrunni sem byggður er utan við útvegg húss. Inntaksbrunnur sé minnst 2,3 fermetrar að grunnfleti og 180 sm hár að innanmáli. Loft skal vera einangrað og þrep skulu vera niður í brunninn. Mannop skal vera minnst 60 sm á kant eða minnst 70 sm í þvermál. Í inntaksbrunni skal vera ljós og góð loftræsting. Gólfniðurfall skal vera í inntaksbrunni og lagt í grjótpúkk eða á annan viðurkenndan máta.

f) Snjóbræðslukerfi.

Húseigendur mega tengja við húskerfi sín varmaskipta til snjóbræðslunotkunar. Snjóbræðslukerfi skulu vera lokuð sjálfstæð kerfi fyllt blöndu af vatni og frostlegi. Snjóbræðslukerfin skulu vera þannig frágengin að nýtni hitaveituvatnsins verði ávallt sem best.

g) Bakrennsli.

Frá inntaksrými húsveitu sem tengd er dreifikerfi II eða III skal ætíð leggja tvær pípur fyrir bakrennslisvatn hitaveitu (önnur til vara), minnst 32 mm að þvermáli, að regnvatnslögn (steinlögn) við lóðarmörk.

h) Vatnslásar við þakrennuniðurföll.

Vatnslásar eða einn sameiginlegur vatnslás skulu vera við öll þakrennuniðurföll vegna hættu á tæringu á þakjárni, þakrennum og þakniðurföllum sökum efnainnihalds heita vatnsins eða jarðgufunnar. HH ber ekki ábyrgð á slíkri tæringu.

20. gr.

Teikningar.

Teikningar hitakerfa skulu uppfylla ákvæði 1. kafla byggingarreglugerðar nr. 441/1998.

21. gr.

Eftirlit.

HH skal hafa aðgang að pípulögnum bæði innanhúss og utan. Húseiganda/notanda er skylt að láta í té upplýsingar um hitun hússins og heita neysluvatnsins sé þess óskað.

Komi í ljós að verk sé eigi framkvæmt samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar, byggingarreglugerðar nr. 441/1998 eða öðrum reglum er settar kunna að verða, getur HH stöðvað verkið þar til úr því verður bætt.

Pípulagningameistari skal annast prófun hitalagna og vera viðstaddur þegar vatni er hleypt á hitakerfið.

22. gr.

Skuldbindingar húseiganda og notanda.

Húseigandi ber ábyrgð á meðferð búnaðar og lagna innanhúss sem eru í eigu HH.

Húseiganda og/eða notanda ber að tilkynna tafarlaust til HH ef vart verður bilunar á búnaði og tækjum þeirra.

Húseigandi/notandi greiðir kostnað við viðgerð eða endurnýjun búnaðar í eigu HH, sem verður fyrir skemmdum af völdum notanda.

VI. KAFLI

Skilmálar fyrir sölu á heitu vatni og jarðgufu.

23. gr.

Tímabil sölusamnings.

Upphaf og lok samningstíma um kaup á heitu vatni eða jarðgufu eru við skráningu tilkynningar þess efnis hjá HH.

24. gr.

Rekstrartruflanir.

HH ber ekki fjárhagslega ábyrgð á tjóni, sem leiða kann af rekstrartruflunum er verða vegna frosta, rafmagnstruflana, náttúruhamfara eða annarra óviðráðanlegra atvika. Sama gildir ef rennsli í vatnsæð er stöðvað um stundarsakir vegna viðgerða eða annarra nauðsynlegra framkvæmda veitnanna.

Þurfi að takmarka notkun hitaorku um lengri eða skemmri tíma ákveður HH hvar og hvernig hún skuli takmörkuð. Takmörkunin hefur ekki áhrif á greiðslu fastagjalds (fasts aflgjalds eða mælagjalds).

Stöðvun á rekstri veitunnar eða hluta hennar vegna viðhalds eða tenginga skal tilkynna fyrirfram ef unnt er og koma á eðlilegum rekstri aftur svo fljótt sem verða má.

25. gr.

Mæling.

a) Mælar.

HH ákveður stærð og gerð mæla sem notaðir eru í mælagrind, hvort sem um er að ræða nýja mælagrind eða við endurnýjun búnaðar í mælagrind.

b) Takmörkun afhendingar.

Notendur sem hafa hemil eiga ekki rétt á endurgreiðslu á föstu aflgjaldi þótt þeir hafi ekki getað náð því afli, sem fasta greiðslan er miðuð við, en HH er skylt að leiðrétta skekkju hemilsins svo fljótt sem við verður komið.

HH er ekki skylt að greiða bætur vegna takmörkunar á afhendingu varmaorku og/eða lækkunar á hitastigi.

26. gr.

Sérstakir sölusamningar.

HH er heimilt að semja sérstaklega um afnot af heitu vatni eða jarðgufu utan almennra söluskilmála. Slíkir samningar skulu háðir samþykki bæjarstjórnar Hveragerðis.

27. gr.

Bakrennsli.

a) Hitastig bakrennslis.

Hitaveituvatn sem runnið hefur í gegn um varmaskipti húss eða hitunarkerfi gróðurhúss má ekki vera heitara en 40°C.

b) Bakrennslislokar.

HH leggur til bakrennslisloka á bakrennsli dreifikerfis II og III. Lokanum er ætlað að tryggja þá varmanýtingu sem krafist er í a-lið 27. gr. Lokinn skal vera staðsettur við varmaskipti. Húseigandi skal sjá um að lögn aftan við lokann sé þannig gerð að vatn standi ætíð að lokanum. Starfsmenn HH innsigla lokann og mega engir aðrir en starfsmenn HH rjúfa innsiglið eða breyta stillingu lokans.

c) Framhjáhlaup í bakrennslisgrind gróðurhúsa.

Í bakrennslisgrind hitaveitunnar í gróðurhúsum, sem HH leggur til og á, er framhjáhlaup, sem er innsiglað af starfsmönnum HH. Ef skjótra aðgerða er þörf má rjúfa innsiglið og opna fyrir framhjáhlaupið sbr. aðra málsgrein 17. gr.

d) Nýting hitaveituvatns (bakrennslis).

Hitaveituvatn sem runnið hefur í gegnum húsveitu eða í gegnum varmaskipti húsveitu er eign HH. Stjórn HH getur heimilað notkun hitaveituvatns frá dreifikerfi II og III með sérstökum samningum milli HH og notanda. Frágangur lagna og búnaðar vegna slíkrar notkunar skal vera samkvæmt fyrirmælum HH.

e) Óheimil tenging.

Óheimilt er að tengja vatnsdælur, varmadælur og/eða annan slíkan búnað við bakrennslið, nema að um það sé gerður samningur milli HH og notanda.

28. gr.

Upplýsingaskylda og ábyrgð.

Hitaorkunni er miðlað í formi heits vatns og jarðgufu. HH skal gefa notendum og húseigendum upplýsingar um þrýsting, hitastig og önnur tæknileg atriði, sé þess óskað.

Óviðráðanlegar breytingar á þrýstingi, hitastigi eða magni orkumiðilsins eru án ábyrgðar HH. Um breytingar sem stafa af öðrum ástæðum, skal HH tilkynna notendum með hæfilegum fyrirvara.

29. gr.

Óheimil endursala.

Kaupendum er óheimil endursala hitaorkunnar án samþykkis HH.

30. gr.

Lagnir veitukerfis.

HH lætur leggja og á allar lagnir veitukerfisins, aðveituæðar, stofnæðar, dreifiæðar, götuæðar svo og heimæðar inn fyrir húsveggi ásamt inntakslokum, inntakssíum og únionum við inntakssíur. HH á einnig mælagrindur ásamt tilheyrandi búnaði og annast rekstur og viðhald þeirra.

31. gr.

Tenging húsveitu.

HH annast lagningu eigin veitukerfis og tengingu við húsveitu húseiganda. Við slíka framkvæmd skal HH halda raski í lágmarki og ganga þrifalega um. Jafnframt skal HH færa allt til fyrra horfs eins og við verður komið.

HH ákveður staðsetningu mælagrindar og inntaks í samráði við húseiganda. Húseigandi á ekki kröfu um sérstaka greiðslu fyrir óþægindi vegna lagningar veitukerfisins.

32. gr.

Breytingar.

Húseigandi skal standa straum af kostnaði við breytingu á húsveitu vegna tengingar við HH.

Húseigandi kostar breytingar á heimæðum sem nauðsynlegar eru vegna framkvæmda hans.

Húseigandi skal fyrirfram sækja um leyfi til hverra þeirra framkvæmda, sem kunna að hafa í för með sér röskun á veitukerfi HH.

VII. KAFLI

Ýmis ákvæði.

33. gr.

Fjárnám.

Öll gjöld samkvæmt reglugerð þessari svo og gjaldskrá settri skv. henni má innheimta með fjárnámi.

34. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við að lögum.

35. gr.

Samþykki og staðfesting.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Hveragerðisbæjar er hér með staðfest samkvæmt vatnalögum nr. 15, 20. júní 1923 og orkulögum nr. 58, 29. apríl 1967 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð fyrir Veitustofnanir Hveragerðis nr. 276, 19. maí 1994.

Iðnaðarráðuneytinu, 3. maí 2000.

Valgerður Sverrisdóttir.

Þorgeir Örlygsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica