Iðnaðarráðuneyti

268/1980

Reglugerð um hitaveitu Þorlákshafnar - Brottfallin

REGLUGERÐ

Hitaveitu Þorlákshafnar.

1.gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um allt veitusvæði Hitaveitu Þorlákshafnar.

Veitusvæði Hitaveitu Þorlákshafnar er: Þorlákshöfn og þeir bæir sem aðveituæð hitaveitunnar fer um.

2. gr.

Stjórn hitaveitunnar.

Hitaveita Þorlákshafnar, hér eftir nefnd hitaveitan, er eign Ölfushrepps og rekin sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki undir yfirstjórn hreppsnefndar Ölfushrepps. Sveitarstjóri Ölfushrepps fer með framkvæmdastjórn veitunnar í umboði hreppsnefndar. Hreppsnefnd ræður hitaveitustjóra sem sér um daglega starfsemi, svo og aðra starfsmenn eftir því sem þörf krefur og kýs stjórn fyrir hitaveituna.

3. gr.

Bókhald og fjárreiður.

Skrifstofa Ölfushrepps annast bókhald og fjárreiður hitaveitunnar og sér um innheimtu hitaveitugjalda. Bókhaldi hitaveitunnar skal halda aðskildu frá bókhaldi hreppsins.

Reikningsár hitaveitunnar er almanaksárið og skulu reikningar hennar fylgja reikningum Sveitarsjóðs Ölfushrepps ár hvert og vera endurskoðaðir af endurskoðendum þeirra.

4. gr.

Verkefni hitaveitunnar.

Verkefni hitaveitunnar er að virkja jarðhita og sjá um gerð og rekstur hitaveitu fyrir Þorlákshöfn svo og aðra hluta Ölfushrepps, eftir því sem hagkvæmt er og sveitarstjórn ákveður.

Í þessu skyni skal hitaveitan leita eftir samningum um borunar- og virkjunarrétt og láta bora eftir heitu vatni og virkja þegar hagkvæmt þykir, leggja veitukerfi hitaveitu og annast sölu á heitu vatni til notenda.

Einnig skal hitaveitan reisa og reka önnur mannvirki sem nauðsynleg og hagkvæm eru á hverjum tíma.

5. gr.

Hitaveitugjöld.

Til þess að standa straum af kostnaði við hitaveituna innheimtir hún hitaveitugjöld svo sem orkugjald og heimæðagjald samkvæmt nánari ákvæðum í gjaldskrá er hreppsnefnd setur. Stefnt skal að því að tekjur skv. gjaldskrá standi undir reksturskostnaði og fjármagnskostnaði hitaveitunnar.

Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld, en henni ber að tilkynna fyrirætlun um lokun með 5 daga fyrirvara.

Kostnað af opnun á ný greiðir sá sem vanskilum veldur, samkvæmt gjaldskrá. Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá má taka lögtaki á kostnað gjaldanda.

6. gr.

Einkaleyfi hitaveitunnar.

Hitaveita Þorlákshafnar hefur einkaleyfi til-reksturs hitaveitu og dreifingar og sölu á heitu vatni á veitusvæði sínu sbr. 1. gr. Hitaveitan getur þó heimilað einstaklingumog félögum að annast fjarhitun á tilteknum svæðum undir stjórn hitaveitunnar.

7. gr.

Lagnir veitukerfis.

Hitaveitan lætur leggja og á allar lagnir veitukerfisins: aðveituæðar, stofnæðar dreifiæðar, götuæðar svo og heimæðar og lagnir innanhúss að hemlagrindum ásamt grindunum sjálfum með tilheyrandi búnaði.

8. gr.

Kvöð um tengingu við hitaveitu.

Þeim sem húseign á við götu eða veg innan veitusvæðis hitaveitunnar þar sem vatnsæð hitaveitu liggur, er skylt að láta tengja hitunarkerfi og lagnir fyrir heitt kranavatn við hitaveituæðina. Heimilt er þó að veita undanþágu frá þessu ákvæði.

9. gr.

Eignarréttur hitaveitu og viðhaldsskylda.

Hitaveitan hefur eignarrétt og viðhaldsskyldu á aðveituæðum, stofnæðum, dreifiæðum og götuæðum veitunnar svo og heimæðum og lögnum innanhúss að og með hemlagrindum ásamt tilheyrandi búnaði, er tengja vatnskerfi hússins við veituna, og telst dreifikerfið ná þangað. En tenging vatnshitunarkerfis húss við hemlagrind svo og nauðsynlegar breytingar á innanhússlögnum og hitunarkerfi húss vegna tengingar við hitaveituna skal húseigandi annast og kosta. Ef húseigandi æskir þess að mælagrind sé færð frá inntaksstað leggur hitaveitan til efni en húseigandi greiðir annan kostnað og sér um viðhald.

10. gr.

Afnot varmaorku.

Varmi sá, sem hitaveitan lætur í té, er ætlaður til upphitunar húss og, almennra heimilisnota.

óheimilt er með öllu að tengja annað en neysluvatnslögn við greiningu þá á hemlagrind, sem til þess er ætluð.

Nú kemur fram ósk um að nota heita vatnið til annarra þarfa en greinir í 1. mgr. og þarf þá til þess heimild hitaveitunnar, sem hún getur bundið nánari skilyrðum og fyrirmælum hverju sinni.

11. gr.

Ábyrgð hitaveitunnar.

Hitaveitan ber ekki fjárhagslega ábyrgð á tjóni, er leiða kann af rekstrartruflunum, er verða á veitunni vegna frosta, rafmagnstruflana, náttúruhamfara eða annarra óviðráðanlegra atvika. Sama gildir ef rennsli í vatnsæð er stöðvað um stundarsakir vegna viðgerða og annarra nauðsynlegra framkvæmda veitunnar.

Hitaveitan er ekki skuldbundin gagnvart húseiganda til þess að tryggja að þrýstingur í vatnsæðum sé ávallt nægilegur. Stöðvun á rekstri veitunnar eða hluta hennar vegna viðhalds eð tenginga skal tilkynna fyrirfram ef unnt er og koma á eðlilegum rekstri aftur svo fljótt sem verða má.

12. gr.

Afrennslisvatn frá húskerfum.

Hitaveitunni er heimilt að nota aftur vatn, sem runnið hefur gegnum hitunarkerfi húss. Húsráðendum er heimilt að nota afrennslisvatnið til upphitunar á gróðurhúsum, bílastæðum, gangstígum o. s. frv., en skulu skila afrennslisvatninu aftur ef hitaveitan þarf á því að halda. Skal húsráðandi annast og kosta að leiða afrennslisvatnið í frárennsli hússins. Óheimilt er að leiða það þangað heitara en 50° C.

Ef húseigendur nota hitaveituvatn til hitunar bílastæða, gangstíga o. s. frv. og hitunarkerfin eru beint tengd veitunni, þá getur hitaveitan krafist þess, að þessi kerfi séu þrýstiprófuð fyrir 8 kg/cm2 við þann hita; sem gert er ráð fyrir að, notaður verði:

13. gr.

Uppdrættir og réttur til að annast hitalagnir og gerð uppdrátta:

Við gerð uppdrátta skal miða við almennar reglur um hönnun vatnshitalagna lofthitmnarkerfa og loftræstikerfa, reglur byggingarsamþykktar, byggingarskilmála sveitarstjórnar og aðrar þær reglur, er hitaveitan og byggingareftirlit sveitarfélagsins kunna að setja.

Rétt til að hanna hitalagnir og gera af þeim uppdrætti eða annast hitalagnir hafa þeir einir, er til þess hafa menntun og réttindi eins og almennt er krafist, og getur bygginganefnd í samráði við stjórn hitaveitunnar sett um það nánari fyrirmæli og reglur.

14. gr.

Tenging við hitaveituna.

Áður en hitunarkerfi húss eða lagnir fyrir heitt kranavatn eru tengdar hitaveitukerfinu skal liggja fyrir uppdráttur samþykktur af hitaveitustjóra og gildir það jafnt um þegar gerðar lagnir, sem nýlagnir og viðbætur við eða breytingar á eldri lögnum.

Ef uppdrættir eru ekki til af gömlum hitunarkerfum þá getur hitaveitustjóri krafist þess að þeir séu þegar gerðir eftir því sem nauðsynlegt er og ber húseigandi allan kostnað af því.

Heimilt er hreppsnefnd að setja nánari ákvæði um lögn heimæða í byggingaskilmála fyrir nýjum lóðum.

Húseigandi skal heimila að leggja heimæð eða sameiginlega heimæð um lóð og sjá fyrir inntaksstað fyrir hitaveitu við útvegg kjallara eða 1. hæðar ef hús er kjallaralaust, ásamt nauðsynlegu rými fyrir hemlagrind og annað tilheyrandi tengingu við veituna. Þar skal vera niðurfall í gólfi og skal sá staður ætíð vera aðgengilegur starfsmönnum hitaveitu.

Ef inntak hitaveitu og hemlagrind eru ekki í sama herbergi skal lögn þar á milli vera óhulin eða í stokk, sem auðvelt er að opna. Óheimilt er að tengja vatnsdælur við heimæðar nema með fengnu leyfi hitaveitunnar.

l5. gr.

Eftirlit.

Hitaveitustjóri hefur eftirlit með því að hitunarkerfi og lagnir fyrir heitt kranavatn, bæði nýlagnir og eldri lagnir og viðbætur við þær og breytingar séu í samræmi við samþykktan uppdrátt. Húseiganda er skylt að láta þrýstiprófa nýjar hitalagnir sem og gamlar samkvæmt fyrirmælum hitaveitustjóra. Hitaveitustjóri skal taka út tengingu við veitukerfið áður en hitaveituvatnið er tekið inn á húskerfið, en starfsmenn hitaveitunnar stilla rennslishemla og mega einir breyta stillingu á þeim.

Starfsmenn hitaveitu skulu jafnan hafa frjálsan aðgang að pípulögnum bæði innan, húss og utan. Húsráðanda er skylt að láta þeim í té þær upplýsingar, sem máli geta skipt um hitun hússins og heitt kranavatn.

16. gr.

Skyldur húseiganda og ábyrgð.

Húseiganda er skylt að hlíta þeim reglum og fyrirmælum sem hitaveitan setur, um gerð og búnað neysluvatnslagna og hitunarkerfis hússins, m. a. er skylt að nota varmaskipta á hitunarkerfi og heitt kranavatn.

Húsráðandi ber ábyrgð á þeim búnaði og lögnum innanhúss, sem eru í eigu og umsjá hitaveitunnar. Húsráðanda ber að tilkynna tafarlaust til hitaveitunnar, er vart verður bilunar á búnaði og tækjum, og skal hann hlíta fyrirmælum um viðgerð á bilunum og gera ráðstafanir til varnar misnotkun á hitaveituvatninu.

Nú verða tæki eða annar búnaður fyrir óvenjulegu hnjaski eða skemmdum, og er þá heimilt að skylda notanda til að greiða kostnað við viðgerð eða endurnýjun.

17. gr.

Viðurlög við brotum.

Brot á reglugerð þessari varða sektum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

Með mál út af brotum skal farið með að hætti opinberra mála.

Nú vanrækir maður að láta vinna verk, sem hitaveitan hefur fyrirskipað samkvæmt reglugerð þessari, eða verk er ekki unnið á viðeigandi hátt, og er þá hitaveitunni heimilt að láta vinna það sem þörf krefur á kostnað eiganda. Kostnaðinn má innheimta hjá eiganda með lögtaki ef þörf krefur.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Ölfushrepps er hér með staðfest samkvæmt Orkulögum nr. 58 29. apríl 1967 til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli.

Iðnaðarráðuneytið, 28. maí 1980.

Hjörleifur Guttormsson.

Kristmundur Halldórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica