Prentað þann 29. mars 2024
270/1995
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 144/1994 um rafföng til notkunar á sprengihættustöðum með eða án tiltekinnar varnartilhögunar.
1. gr.
Eftirtaldir samhæfðir Evrópustaðlar um rafföng, sem notaðir eru á sprengihættustöðum með eða án tiltekinnar varnartilhögunar, bætast við viðauka I. Rafföng, sem þannig eru notuð, skulu vera í samræmi við þessa staðla.
Evrópustaðlar
Númer | Titill | Útgáfa | Dagsetning | |
EN 50019 | Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum: Aukið öryggi "e". | 4. breyting 5. breyting | Október 1989 Ágúst 1990 | |
EN 50020 | Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum: Sjálftrygg útfærsla "i". | 3., 4. og 5. breyting | Maí 1990 | |
EN 50033 | Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum: Hjálmluktir til notkunar í námum, þar sem eldfimt gas getur myndast. | 2 | Mars 1991 | |
EN 50039 | Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum: Rafkerfi í sjálftryggri útfærslu "i". | 1 | Mars 1980 | |
EN 50050 | Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum: Handverkfæri til rafsviðssprautunar. | 1 | Janúar 1986 | |
EN 50053 | Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum: (1. hluti) Handbyssur með hámarksorku 0,24 mJ og fylgihlutir þeirra til rafsviðssprautunar á málningu. | 1 | Febrúar 1987(*) | |
EN 50053 | Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum: (2. hluti) Handbyssur með hámarksorku 5 mJ og fylgihlutir þeirra til rafsviðssprautunar á dufti. | 1 | Júní 1987(*) | |
EN 50053 | Rafföng sem notuð eru á sprengihættustöðum: (3. hluti) Handbyssur með hámarksorku 0,24 mJ eða 5 mJ og fylgihlutir þeirra til rafsviðssprautunar á ull. | 1 | Júní 1987(*) |
(*)Hér er einungis átt við þær greinar sem fjalla um smíði tækja sem eru tilgreind í stöðlunum EN 50053, 1. 2. og 3. hluta.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um Rafmagnseftirlit ríkisins nr. 60/1979 og með hliðsjón af ákvæðum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í X. kafla II. viðauka. Hún byggir á tilskipun ráðsins 82/130/EBE frá 15. febrúar 1982 um samræmingu laga aðildarríkja EES um rafföng til notkunar á sprengihættustöðum í námum þar sem eldfimt gas getur myndast, tilskipun ráðsins 76/117/EBE frá 18. desember 1975 um samræmingu laga aðildarríkja EES um rafföng til notkunar á sprengihættustöðum og tilskipun ráðsins 79/196/EBE frá 6. febrúar 1979 um samræmingu laga aðildarríkja EES um rafföng með tiltekna varnartilhögun til notkunar á sprengihættustöðum, með þeim breytingum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 31/94 frá 15. desember 1994 og nr. 5/95 frá 27. janúar 1995 og með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Iðnaðarráðuneytið, 24. apríl 1995.
F. h. r.
Þorkell Helgason.
Sveinn Þorgrímsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.