Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

948/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 421/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641/2009 er varðar visthönnun á sjálfstæðum hringrásardælum án ásþéttis og hringrásardælum án ásþéttis sem eru felldar inn í vörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 6s og 14 í kafla IV í II. viðauka og á eftir lið 26t og 37 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahags­svæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sam­eiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2020, frá 30. apríl 2020, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn­ingsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1781, frá 1. október 2019, um kröfur varð­andi visthönnun á rafmagnshreyflum og snúningshraðastýringum samkvæmt tilskipun Evrópu­þings­ins og ráðsins 2009/125/EB, um breytingu á reglugerð (EB) nr. 641/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjálfstæðum hringrásardælum án ásþéttis og hringrásar­dælum án ásþéttis sem eru felldar inn í vörur og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmda­stjórnar­innar (EB) nr. 640/2009.

 

2. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1781 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 62/2020, 24. september 2020, bls. 207.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. september 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica