Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

388/2013

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 392/2012 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar þurrkara til heimilisnota.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 11c í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2013, frá 1. febrúar 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 392/2012 frá 1. mars 2012 um fram­kvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2030/10/ESB að því er varðar orku­merkingar þurrkara til heimilisnota.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 392/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20/2013, 28. mars 2013, bls. 393.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2013, bíður birtingar.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 398/1996, með síðari breytingum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. apríl 2013.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Ólafur Egill Jónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica