Við 4. tölul. 14. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þegar ekki er um sjúkraflutninga að ræða greiða sjúklingar gjald fyrir komu í sjúkrabifreið, sem ekki var sérstaklega kölluð til vegna þeirra, samkvæmt a-lið 1. tölul.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 53. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, öðlast gildi 1. ágúst 2026.
Heilbrigðisráðuneytinu, 26. júní 2026.
Alma D. Möller.
Sigurður Kári Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 10. júlí 2026