Heilbrigðisráðuneyti

760/2026

Reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna veikinda eða slysa erlendis.

1. gr.Gildissvið.

Reglugerðin gildir um sjúkratryggða einstaklinga sem nauðsyn er að leita sér lækninga þar sem þeir eru staddir erlendis en eiga ekki rétt til sjúkrahjálpar á grundvelli milliríkjasamninga, sbr. þó 6. gr.

Reglugerðin tekur almennt til sjúkrakostnaðar sem til fellur vegna skyndilegra sjúkdómstilfella eða slysa. Reglugerðin nær þó til alls nauðsynlegs sjúkrakostnaðar ef um er að ræða einstakling sem fengið hefur tryggingu skv. 11., 12. eða 15. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, sbr. reglugerð nr. 463/1999.

Með sjúkrakostnaði er átt við sams konar kostnað og sjúkratryggingastofnunin tekur þátt í að greiða á Íslandi, sbr. að öðru leyti III. kafla laga um sjúkratryggingar.

2. gr.Grunnkostnaður.

Ef sjúkratryggðum einstaklingi er nauðsyn að leita sér lækninga þar sem hann er staddur erlendis greiðir sjúkratryggingastofnunin sjúkrakostnaðinn eins og um sjúkrahjálp innan lands væri að ræða.

3. gr.Umframkostnaður.

Verði sjúkratryggður einstaklingur fyrir verulegum kostnaði vegna veikinda eða slyss erlendis, í ríki sem ekki hefur verið gerður samningur við, og fái hann ekki endurgreiddan nema að litlu leyti skv. 2. gr., er sjúkratryggingastofnuninni heimilt að endurgreiða hluta af því sem umfram er grunnkostnað skv. 2. gr. og sjúklingshluta.

Endurgreiðslur til þeirra sem dvelja um skemmri tíma erlendis og til þeirra sem hafa fengið sérstaka heimild sjúkratryggingastofnunarinnar til að halda tryggingu sinni hér á landi, sbr. III. kafla A í lögum um sjúkratryggingar, eru eftirfarandi:

  1. Af kostnaði fyrstu 75.000 kr. greiðast 50%.
  2. Af kostnaði umfram 75.000 kr. greiðast 75%.
  3. Af kostnaði umfram 10.000.000 kr. greiðast 90%.

Þegar um lífeyrisþega er að ræða eða námsmenn og nánustu fjölskyldu þeirra, sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 463/1999, er sjúkratryggingastofnuninni heimilt að endurgreiða hluta af því sem umfram er á eftirfarandi hátt:

  1. Af kostnaði fyrstu 75.000 kr. greiðast 75%.
  2. Af kostnaði umfram 75.000 kr. greiðast 90%.
  3. Kostnaður umfram 10.000.000 kr. greiðist 100% af sjúkratryggingastofnun.

Ef hinn sjúkratryggði einstaklingur hefur tekið sér sjúkra- eða slysatryggingu hjá vátryggingafélagi, sem greiðir hluta kostnaðarins, á viðkomandi ekki rétt á greiðslu frá sjúkratryggingastofnuninni vegna umframkostnaðar nema að því leyti sem vátryggingafélagið bætir hann ekki. Sama á við ef hinn sjúkratryggði hefur fengið greiddar bætur frá þriðja aðila vegna atburðarins eða á rétt á slíkum bótum.

4. gr.Tilkynning.

Sjúklingur skal að jafnaði tilkynna sjúkratryggingastofnuninni ef ljóst er að sjúkrahúsvist verður lengri en 15 dagar eða ef ljóst er að sjúkrakostnaður verður umtalsverður.

5. gr.Sjúkrahjálp innan EES.

Nú er sjúkratryggðum einstaklingi nauðsyn að leita sér lækninga þar sem hann er staddur erlendis í aðildarríki EES-samningsins og skal þá sjúkratryggingastofnunin greiða kostnað af því samkvæmt reglum EES-samningsins á sviði almannatrygginga.

Í undantekningartilfellum er heimilt að beita ákvæðum reglna þessara þegar um er að ræða sjúkratryggðan einstakling sem veikist skyndilega eða slasast innan EES og fluttur er á einkarekna sjúkrastofnun enda liggi fyrir að:

  1. sjúklingur hafi verið fluttur meðvitundarlaus til meðferðar og þannig ekki átt val um meðferðarstað.
  2. um hafi verið að ræða bráðatilfelli þar sem óverjandi var að flytja sjúkling lengri leið til samningsbundins meðferðaraðila.

Ekki er heimilt að beita reglu þessari á grundvelli þess að sjúklingur hafi ekki vitað betur. Hinn sjúkratryggði einstaklingur skal ætíð bera sjálfur fyrstu 15.000 kr.

6. gr.Heimflutningur.

Sjúkraflutningur milli landa (heimflutningur) er ekki greiddur af sjúkratryggingastofnuninni. Þó er í undantekningartilvikum heimilt að greiða slíkan sjúkraflutning ef ljóst er að kostnaður ríkisins yrði mun hærri ef sjúklingur nyti áfram sjúkrahjálpar erlendis. Afla skal samþykkis sjúkratryggingastofnunarinnar fyrir fram.

7. gr.Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. mgr. 33. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla brott reglur um endurgreiðslu kostnaðar vegna veikinda og slysa erlendis, nr. 281/2003.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir 1. málsl. 1. mgr. 33. gr. laga nr. 112/2008, sbr. 16. gr. laga nr. 50/2026, greiða sjúkratryggingar kostnað allra sjúkratryggðra eins og um læknishjálp innan lands væri að ræða á tímabilinu 1. ágúst 2026 til og með 31. desember 2026. Það nær þó ekki til þeirra sem samkvæmt milliríkjasamningum öðlast rétt til sjúkrahjálpar í öðru landi vegna dvalar þar að því er varðar þá aðstoð sem samningarnir fjalla um.

Heilbrigðisráðuneytinu, 19. júní 2026.

Alma D. Möller.

Sigurður Kári Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 6. júlí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica