Ákvæði til bráðabirgða í reglugerðinni orðast svo:
Tóbaksvörur sem merktar eru í samræmi við reglugerð um viðvörunarmerkingar á tóbaki og mælingar og hámark skaðlegra tóbaksefna, nr. 790/2011, má flytja til landsins næstu 18 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar og hafa í sölu í allt að 24 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, tekur þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 2. mars 2026.
Alma D. Möller.
Guðríður Bolladóttir.
B deild - Útgáfudagur: 5. mars 2026