Fjárhæðir bóta samkvæmt II. kafla laga nr. 45/2015, um slysatryggingar almannatrygginga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2026:
Ef útreikningur skv. 1. mgr. 17. gr. laga nr. 108/2021, um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga, á eingreiðslu frá sjúkratryggingastofnuninni liggur ekki fyrir 1. janúar 2026 til þeirra sem áður hafa fengið mánaðarlegar lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun skulu þær lífeyrisgreiðslur framlengjast, þ.e. viðeigandi hlutfall af 69.148 kr. á mánuði þar til útreikningur á eingreiðslu liggur fyrir. Ef við á gildir hið sama um barnalífeyri, þ.e. viðeigandi hlutfall af 50.634 kr. á mánuði fyrir hvert barn.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 23. gr. laga nr. 45/2015, um slysatryggingar almannatrygginga, sbr. 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1613/2024, um fjárhæðir bóta slysatrygginga almannatrygginga fyrir árið 2025.
Heilbrigðisráðuneytinu, 9. desember 2025.
Alma D. Möller.
Sigurður Kári Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 30. desember 2025