Heilbrigðisráðuneyti

1527/2025

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli, nr. 429/2019.

1. gr.

Í stað fjárhæðarinnar "1.890 kr." í a-lið 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 1.956 kr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar "1.890 kr." í a-lið 2. mgr. kemur: 1.956 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar"1.890 kr." í b-lið 2. mgr. kemur: 1.956 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar "9.187 kr." í c-lið 2. mgr. kemur: 9.509 kr.
  4. Við 2. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
    1. Sé barn inniliggjandi á sjúkrahúsi greiðir fylgdarmaður ekkert gjald fyrir gistingu. Séu fylgdarmenn tveir greiðir annar fylgdarmanna 1.956 kr. á dag fyrir gistingu. Kaupi fylgdarmaður/-menn fæði á sjúkrahótelinu er greitt fyrir það samkvæmt gjaldskrá sjúkrahótels.

3. gr.

Ákvæði til bráðabirgða fellur brott.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. tölul. 1. mgr. og 6. mgr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, öðlast gildi 1. janúar 2026.

Heilbrigðisráðuneytinu 8. desember 2025.

Alma D. Möller.

Sigurður Kári Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 30. desember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica