Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Vegna útreiknings á dvalarframlagi skv. 21. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, er á tímabilinu 1. janúar 2026 til og með 1. apríl 2026 unnt að óska eftir því að Tryggingastofnun ríkisins beri saman útreikning dvalarframlags fyrir og eftir gildistöku laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra, nr. 166/2006, og laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð, lögum um Ábyrgðasjóð launa, lögum um fæðingar- og foreldraorlof, lögum um málefni aldraðra og lögum um húsnæðismál, nr. 120/2009. Ef samanburðurinn sýnir aukna kostnaðarþátttöku heimilismanns frá því sem var fyrir gildistöku þeirra laga skal leiðrétta dvalarframlag vegna framangreinds tímabils til samræmis við það.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr., sbr. 24. gr. og 12. mgr. 26. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, öðlast gildi 1. janúar 2026.
Heilbrigðisráðuneytinu, 17. desember 2025.
Alma D. Möller.
Sigurður Kári Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 29. desember 2025