Fara beint í efnið

Prentað þann 9. maí 2024

Breytingareglugerð

99/2024

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 992/2022 um tilkynningar um markaðssetningu, auk leyfisveitinga, og innihaldsefna nikótínvara, rafrettna og áfyllinga fyrir rafrettur sem innihalda nikótín.

1. gr.

Á eftir 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein til bráðabirgða, svohljóðandi:

Heimilt er að selja rafrettur og áfyllingar sem tilkynntar voru fyrir 1. febrúar 2024 og innihalda meira magn af nikótínvökva en tilgreint er í 2. mgr. 6. gr. til 1. júlí 2024.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 8. gr. laga um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018, öðlast gildi 1. febrúar 2024.

Heilbrigðisráðuneytinu, 29. janúar 2024.

Willum Þór Þórsson.

Ásta Valdimarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.