Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Breytingareglugerð

1608/2023

Reglugerð um (16.) breytingu á reglugerð nr. 1025/2008 um sjúkradagpeninga.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar ,,2.244 kr." kemur: 2.440 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar ,,616 kr." kemur: 670 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2024.

Heilbrigðisráðuneytinu, 11. desember 2023.

Willum Þór Þórsson.

Guðlaug Einarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.