Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Breytingareglugerð

1108/2023

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 481/2022 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um dýralyf.

1. gr.

Eftirfarandi töluliður bætist við 1. gr. reglugerðarinnar, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/183 frá 23. nóvember 2022 um breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/6 er varðar kröfur um að farið sé eftir góðum starfsvenjum á rannsóknarstofum fyrir dýralyf sem settar eru fram í II viðauka við þá reglugerð, sem vísað er til í lið 22 í XIII. kafla, II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2023 frá 5. júlí 2023, öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68, frá 21. september 2023, bls. 70-72.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. mgr. 74. gr. laga um dýralyf nr. 14/2022, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 4. október 2023.

Willum Þór Þórsson.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.