Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Breytingareglugerð

318/2023

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1143/2019 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "58 kr." í 1. tölul. 2. mgr. kemur: 59 kr.
  2. Í stað "83 kr." í 3. tölul. 2. mgr. kemur: 86 kr.
  3. Í stað "47 kr." í 3. mgr. kemur: 48 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 25. gr., 1. mgr. 29. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast gildi frá og með 1. apríl 2023.

Heilbrigðisráðuneytinu, 27. mars 2023.

Willum Þór Þórsson.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.