Fara beint í efnið

Prentað þann 26. apríl 2024

Breytingareglugerð

48/2023

Reglugerð um (13.) breytingu á reglugerð nr. 1364/2019 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Í stað dagsetningarinnar "31. janúar 2023" í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 15. maí 2023.

2. gr.

Í stað dagsetningarinnar "31. janúar 2023" í 10. gr. reglugerðarinnar kemur: 15. maí 2023.

3. gr.

1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Forsenda fyrir endurgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands er að fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni eða sjúkraþjálfara á heilsugæslustöð þar sem fram kemur sjúkdómsgreining. Þó er heimilt að víkja frá þessu skilyrði vegna meðferðar hjá sjúkraþjálfara sem nemur allt að sex skiptum á einu ári.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 21. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 18. janúar 2023.

Willum Þór Þórsson.

Arnar Bergþórsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.