Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Breytingareglugerð

29/2023

Reglugerð um (16.) breytingu á reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.

1. gr.

Eftirfarandi efni bætast við lista í fylgiskjali I:

Efni Annað nafn IUPAC (Alþjóðasamtök um hreina
og hagnýta efnafræði)
Alþjóða- samningar B Undanþágur og athugasemdir
Tetrahydrocannabinol acetate THC-O-acetate [(6aR,10aR)-6,6,9-trimethyl-3-pentyl-6a,7,8,10a-tetrahydrobenzo[c]chromen-1-yl] acetate x
Hexahydrocannabinol HHC 6,6,9-trimethyl-3-pentyl-6a,7,8,9,10,10a-hexahydrobenzo[c]chromen-1-ol x

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 53. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 og 2. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Reglugerð þessi er tilkynnt í samræmi við ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/1535 frá 9. september 2015 um tilhögun miðlunar upplýsinga um tæknireglugerðir og reglur um þjónustu í upplýsingasamfélaginu. Tilkynningin er send samhliða birtingu reglugerðarinnar á grundvelli undanþágu í 7. mgr. 6. gr. tilskipunarinnar.

Heilbrigðisráðuneytinu, 9. janúar 2023.

Willum Þór Þórsson.

Heiða Björg Pálmadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.