Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1481/2022

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar.

1. gr.

Í stað "63%" í 2. tölul. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: 69%.

2. gr.

Í stað orðanna "1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022" í 2. málsl. 21. gr. kemur: 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2023.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 20. gr., 1. mgr. 29. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2023.

Heilbrigðisráðuneytinu, 9. desember 2022.

Willum Þór Þórsson.

Guðlaug Einarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.