Fara beint í efnið

Prentað þann 4. maí 2024

Breytingareglugerð

1319/2022

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 991/2022, um merkingar á umbúðum sem fylgja skulu nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir þær.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu "viðvörunarmerking" í 3. mgr. kemur: á umbúðum rafrettna og áfyllinga og eftir atvikum nikótínvara, öðrum en nikótínpúðum.
  2. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Viðvörunarmerking á umbúðum nikótínpúða skal birtast á toppi og botni dósa sem og á safnumbúðum nikótínpúða og skal vera staðsett með þeim hætti að við opnun á umbúðum verði viðvörunarmerkingin ekki rifin í tvennt eða ólæsileg.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu "þyngd" kemur: eða minnkandi magni.
  2. Á eftir orðunum "um nikótíninnihald vörunnar og" í 1. mgr. kemur: eftir atvikum.
  3. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að flokka efni sem gefa bragð undir samheitinu "Bragðefni".

3. gr.

Á eftir orðunum "að undangengnu samráði við" í 8. gr. reglugerðarinnar kemur: heilbrigðisráðuneytið og.

4. gr.

2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast ákvæði reglugerðarinnar, önnur en 6. gr., ekki gildi varðandi nikótínvörur fyrr en 1. mars 2023.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 8. gr. og 2. mgr. 16. gr. laga nr. 87/2018, um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 14. nóvember 2022.

Willum Þór Þórsson.

Ásta Valdimarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.