Fara beint í efnið

Prentað þann 3. maí 2024

Breytingareglugerð

1318/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 992/2022, um tilkynningar um markaðssetningu, auk leyfisveitinga, og innihaldsefni nikótínvara, rafrettna og áfyllinga fyrir rafrettur sem innihalda nikótín.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðunum "bundið við leyfishafa" kemur: og heimilisfang sölustaðar.
  2. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sölustaður þarf að uppfylla kröfur um sölustaði, sbr. 10. gr. laga nr. 87/2018, og sýnileika, sbr. 11. gr. sömu laga, og skal leyfishafi hafa þar lögheimili eða fasta starfsstöð. Eingöngu er heimilt að selja nikótínvörur og rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur á þeim sölustað sem fengið hefur leyfi samkvæmt þessari grein.

2. gr.

2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun tekur gjald fyrir leyfisumsókn til smásölu og reksturs sérverslunar með nikótínvörur og rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur skv. 5. gr. og er umsókn ekki tekin til meðferðar fyrr en gjald hefur verið greitt. Gjaldið samanstendur af vinnslugjaldi að fjárhæð 27.224 kr. og eftirlitsgjaldi. Eftirlitsgjaldið samanstendur af tímagjaldi sérfræðings Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem er 18.216 kr./klst. og eftir atvikum tilfallandi kostnaði, svo sem ferðakostnaði.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 8. gr. og 2. og 3. mgr. 14. gr. og 3. mgr. 14. gr. a laga nr. 87/2018, um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 14. nóvember 2022.

Willum Þór Þórsson.

Ásta Valdimarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.