Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 13. jan. 2022

1484/2021

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 23. desember 2021 og gildir til og með 12. janúar 2022.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara, skipa í millilandaferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana og þjónustu sem veitt er af þeim stofnunum, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofnana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði reglugerðar þessarar um nálægðartakmörkun taka ekki til barna sem fædd eru 2016 og síðar. Ákvæði um grímuskyldu tekur ekki til barna sem fædd eru 2006 og síðar.

Reglugerð þessi tekur til skólastarfs eftir því sem við á.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 20 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum, innan- og utandyra. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds, sbr. þó 6. gr.
  3. Skemmtana, svo sem standandi eða sitjandi viðburða og einkasamkvæma.
  4. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 20 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 20 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum og söfnum heimilt að taka við 50 manns í rými og til viðbótar fimm viðskiptavinum á hverja 10 m² umfram 100 m², þó að hámarki 500 viðskiptavinum. Leitast skal við að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun þar sem fólk staldrar við í lengri tíma, svo sem í biðröðum á kassasvæðum.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er heimilt að hafa allt að 50 manns á sitjandi viðburðum, svo sem athöfnum trú- og lífsskoðunarfélaga, á íþróttaviðburðum, í kvikmyndahúsum og leikhúsum, að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:

  1. Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum.
  2. Viðhöfð sé 1 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra gesta.
  3. Allir gestir noti andlitsgrímu.
  4. Ekki séu seldar áfengisveitingar fyrir viðburð, á meðan hann stendur yfir og eftir að honum lýkur.
  5. Gestir skulu beðnir um að halda kyrru fyrir í sætum sínum, ef hlé er gert á viðburði, sé þess kostur.

Þrátt fyrir 4. mgr. er heimilt að hafa allt að 200 manns á sitjandi viðburðum, að uppfylltum sömu skilyrðum og kveðið er á um í 1.-5. tölul., enda framvísi allir gestir fæddir 2015 og fyrr jafnframt neikvæðri niðurstöðu úr COVID-prófi (PCR eða antigen) sem má ekki vera eldra en 48 klst. Undanþegnir þessu eru þeir sem framvísa jákvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi sem er eldra en 14 daga gamalt en yngra en 180 daga.

Fjöldatakmarkanir skv. 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, þjóðaröryggisráðs, Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum, verslunum, söfnum og allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., hvort sem er innan- eða utandyra, skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Þrátt fyrir 1. mgr. gildir 1 metra nálægðartakmörkun á sitjandi viðburðum skv. 4. og 5. mgr. 3. gr. og á veitingastöðum skv. 1. mgr. 5. gr.

Grímuskylda er í verslunum og verslunarmiðstöðvum. Andlitsgrímur skal jafnframt nota þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun skv. 1. mgr., svo sem á söfnum, heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, auk þess í menningarstarfsemi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi.

Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótthreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 3. mgr. eru þeir einstaklingar sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

5. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, svo sem veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, spilasalir og spilakassar skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00 alla daga vikunnar. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 21.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 22.00. Gestir mega að hámarki vera 20 í rými og skulu vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Þrátt fyrir 1. mgr. 4. gr. er heimilt að viðhafa 1 metra nálægðartakmörkun milli sitjandi gesta á veitingastöðum.

Ekki er heimilt að halda einkasamkvæmi eftir kl. 22.00 á stöðum sem hafa vínveitingaleyfi.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 22.00.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun má gestafjöldi á heilsu- og líkamsræktarstöðvum, sund- og baðstöðum og skíðasvæðum aldrei vera meiri en helmingur af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við helming þess fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir. Börn fædd árið 2016 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð milli notenda og skal loftað reglulega út. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna, innan- og utandyra, með og án snertingar, eru heimilar með allt að 50 manns í rými. Búningsaðstaða skal þrifin reglulega og snertifletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð milli hópa, loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn. Sama gildir um sitjandi borðleiki, svo sem skák, bridds og bingó.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklingsbundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og gilda um sambærilegar íþróttir innan sambandsins.

Sviðslistir, kórastarf sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir með allt að 50 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Andlitsgrímur skulu notaðar þegar því verður við komið nema þegar listflutningur fer fram. Leitast skal við að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun. Gætt skal að handhreinsun, sótthreinsun sameiginlegs búnaðar a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loftræsting sé í lagi. Heimilt er að taka á móti allt að 50 sitjandi gestum í hverju rými auk þess allt að 100 börnum fæddum 2006 og síðar í sama rými án hraðprófs að uppfylltum skilyrðum 4. mgr. 3. gr.

6. gr. Skólar.

Hámarksfjöldi nemenda í leik-, grunn-, framhalds- og háskólum og í frístund á grunnskólastigi er 50 í hverju rými. Blöndun hópa er heimil. Í sameiginlegum umgangsrýmum á öllum skólastigum, svo sem við innganga, í anddyri og á göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun.

Hámarksfjöldi starfsfólks í sama rými er 20 manns og er heimilt að fara á milli rýma.

Þrátt fyrir 1. mgr. 4. gr. skal leitast við að viðhafa 1 metra milli nemenda í kennslustofum en að öðrum kosti ber nemendum í framhalds- og háskólum að bera grímu. Nálægðartakmarkanir taka ekki til barna á leikskólaaldri og ekki til starfsfólks í samskiptum við þau börn.

Viðvera foreldra og aðstandenda sem dvelja inni á leikskóla vegna aðlögunar skal skipulögð þannig að þeir þurfi ekki að nota hreinlætis- eða mataraðstöðu í byggingunni og skulu þeir gæta að minnst 2 metra nálægðartakmörkun jafnt sín á milli sem og gagnvart starfsfólki. Aðeins eitt foreldri fylgi barni í aðlögun og skal það vera sama foreldrið sem fylgir barninu allt aðlögunartímabilið. Skólastjórnendum er heimilt að krefja foreldra um að nota andlitsgrímur.

7. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undanþegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað.

8. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

9. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti. Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni um beiðnir um undanþágu.

10. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1266/2021, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.