Heilbrigðisráðuneyti

962/2021

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. - Brottfallin

1. gr.

Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, hefur heil­brigðis­ráðherra ákveðið, að feng­inni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

 

2. gr.

Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 28. ágúst 2021 og gildir til og með 17. september 2021.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loft­fara, skipa í millilanda­ferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofn­ana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði 3., 4. og 5. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun taka ekki til barna sem fædd eru 2016 og síðar. Nálægðartakmörkun skv. 1. mgr. 4. gr. og grímuskylda skv. 2. mgr. 4. gr. eiga ekki við börn sem fædd eru 2006 og síðar.

Reglugerð þessi tekur til skólastarfs eftir því sem við á.

 

3. gr.

Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglu­gerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 200 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum, innan- og utandyra. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem standandi eða sitjandi viðburða og einkasamkvæma.
  4. Athafna trú- og lífsskoðunarfélaga.
  5. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 200 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 200 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. mgr. er heimilt að hafa allt að 500 manns í rými á viðburðum, enda séu öll eftir­farandi skilyrði uppfyllt:

  1. Allir gestir fæddir 2005 og fyrr framvísi neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi (antigen) sem má ekki vera eldra en 48 klst.
  2. Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum.
  3. Allir gestir séu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skrána skal varðveita í tvær vikur og henni eytt að þeim tíma liðnum.
  4. Allir gestir noti andlitsgrímu, þar til þeir eru sestir.

Söfnum er heimilt að taka á móti leyfilegum hámarksfjölda.

 

4. gr.

Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum, verslunum, söfnum og í skólum og allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., hvort sem er innan- eða utandyra, skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Þrátt fyrir 1. mgr. 4. gr. gildir ekki 1 metra nálægðartakmörkun á viðburðum skv. 3. mgr. 3. gr., 6. mgr. 5. gr. og 8. mgr. 5. gr.

Andlitsgrímur skal nota þar sem ekki er unnt að tryggja nálægðartakmörkun skv. 1. mgr. innan­dyra, svo sem í heilbrigðisþjónustu, verslunum, söfnum, innanlandsflugi og -ferjum, almenn­ings­samgöngum, leigu­bifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, starfsemi hár­greiðslu­stofa, snyrti­stofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambæri­legri starfsemi, sbr. þó 4. tölul. 3. mgr. 3. gr.

Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðla­samtakanna (CEN). Sótt­varna­læknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma sam­kvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótt­hreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. eru þeir einstaklingar sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

Kennurum og nemendum fæddum 2005 og fyrr er heimilt í skólum að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skólastofu.

 

5. gr.

Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, svo sem veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, spilasalir og spilakassar skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 23.00 alla daga vik­unnar. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 23.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 00.00. Gestir mega að hámarki vera 200 í rými og skulu vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Gestir skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.

Þrátt fyrir 1. mgr. er þó heimilt að halda einkasamkvæmi eftir klukkan 23.00 á stöðum sem hafa vínveitingaleyfi enda sé vínveitingaleyfið ekki nýtt og ekki komi nýir gestir í samkvæmið. Skrá skal alla gesti með nafni, kennitölu og síma­númeri. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum. Í slíkum samkvæmum má heildarfjöldi gesta ekki fara yfir 200 manns.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 23.00.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun er heilsu- og líkamsræktarstöðvum og sund- og bað­stöðum heimilt að hafa opið fyrir leyfilegan hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sótt­hreinsa skal tæki og áhöld milli notenda. Á þessum stöðum ber að virða 1. mgr. 4. gr. um 1 metra nálægðar­­takmörkun. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktar­stöðvar og sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna, innan- og utandyra, með og án snertingar, eru heimilar með allt að 200 manns í rými skv. 3. gr., sbr. þó 6. mgr. 2. gr. Búningsaðstaða skal þrifin reglulega og snertifletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð milli hópa, loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn. Sama gildir um sitjandi borðleiki, svo sem skák, bridds og bingó.

Hámarksfjöldi áhorfenda á íþróttaviðburðum er 200 í rými, sbr. þó 3. mgr. 3. gr. Þar er grímu­skylda. Áhorfendur skulu nota grímu þegar farið er inn og út af viðburði og meðan á viðburði stendur nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru, sbr. þó 3. mgr. 3. gr. Skylt er að skrá áhorfendur í númeruð sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skal varðveita skrána í tvær vikur og eyða henni að þeim tíma liðnum.

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklings­bundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbein­ingar eða fylgja sömu leiðbeiningum og gilda um sambærilegar íþróttir innan sam­bands­ins.

Sviðslistir, kórastarf, bíósýningar sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir með allt að 200 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Gætt skal að handhreinsun, sótthreinsun sameiginlegs búnaðar a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loftræsting sé í lagi. Heimilt er að taka á móti allt að 200 sitjandi gestum í hverju rými, sbr. þó 3. mgr. 3. gr., og skulu þeir nota grímu þegar farið er inn og út af viðburði og meðan á viðburði stendur nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru, sbr. þó 3. mgr. 3. gr. Heimilt er að hafa hlé og er veitingasala í hléum heimil. Allir gestir skulu skráðir í númeruð sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skal varðveita skrána í tvær vikur og eyða henni að þeim tíma liðnum. Sama gildir um athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga eftir því sem við á.

Þrátt fyrir 1. mgr. 3. gr. er tjaldsvæðum og hjólhýsasvæðum heimilt að taka við gestum í sam­ræmi leiðbeiningar sóttvarnalæknis og Ferðamálastofu um sóttvarnaráðstafanir á tjaldsvæðum og hjól­hýsa­svæðum.

 

6. gr.

Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undan­þegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heim­sóknir utanað­komandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðar­búnað.

 

7. gr.

Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

 

8. gr.

Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heil­brigðis­starfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkra­flutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkvi­liða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti. Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smit­vörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarna­lækni um beiðnir um undanþágu.

 

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 957/2021 um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Þrátt fyrir 1. mgr. tekur 3. mgr. 3. gr. gildi þann 3. september 2021.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 27. ágúst 2021.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica