Fara beint í efnið

Prentað þann 24. apríl 2024

Breytingareglugerð

915/2021

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 878/2021.

1. gr.

Í stað orðanna "13. ágúst 2021" í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 27. ágúst 2021.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á undan orðunum "allri annarri starfsemi" í 1. mgr. kemur: skólum og
  2. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Nemendur grunnskóla eru þó undanþegnir nálægðartakmörkun.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Kennurum og nemendum fæddum 2005 og fyrr er heimilt í skólum að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skólastofu.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi frá og með 14. ágúst 2021.

Heilbrigðisráðuneytinu, 11. ágúst 2021.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Rögnvaldur G. Gunnarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.