Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 17. mars 2023

777/2021

Reglugerð um gildistöku á reglugerð (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir.

1. gr.

Með reglugerð þessari eru eftirtaldar EES-gerðir innleiddar í íslenskan rétt:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir, sbr. fylgiskjal 1, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 187/2021 frá 30. júní 2021 og talin er upp á eftir lið 9f í V. viðauka og á eftir 10. lið við VIII. viðauka við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 66, frá 14. október 2021, bls. 94-115.
  2. Framseld reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2288 um breytingu á viðaukanum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 að því er varðar viðurkenningartímabil bólusetningarvottorða sem gefin eru út með sniði stafræna ESB-vottorðsins vegna COVID þar sem fram kemur hvenær röð grunnbólusetninga lauk, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 41/2022 frá 23. febrúar 2022 og talin er upp í 10. lið í V. viðauka og lið 11 í VIII. viðauka við EES-samninginn. Framselda reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 29, frá 5. maí 2022, bls. 269-272.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/256 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 að því er varðar útgáfu vottorða um bata á grundvelli mótefnavakahraðprófa, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 72/2022 frá 18. mars 2022 og talin er upp í 10. lið í V. viðauka og lið 11. í VIII. viðauka við EES-samninginn. Framselda reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 32, frá 19. maí 2022, bls. 369-373.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/503 frá 29. mars 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 sem varðar það að veita ólögráða börnum undanþágu frá viðurkenningartímabili bólusetningarvottorða sem gefin eru út með sniði stafræna ESB-vottorðsins vegna COVID, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 136/2022 frá 29. apríl 2022 og talin er upp í 10. lið í V. viðauka og lið 11 í VIII. viðauka við EES-samninginn. Framselda reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 47, frá 14. júlí 2022, bls. 171-173.
  5. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/1034 frá 29. júní 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi COVID-19 vottorða um bólusetningu, próf og bata (stafrænt ESB-vottorð vegna COVID) til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 208/2022 frá 8. júlí 2022 og talin er upp í 10. lið í V. viðauka og lið 11 í VIII. viðauka við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 63, frá 29. september 2022, bls. 169-177.

2. gr.

Sóttvarnalæknir gefur út eftirfarandi samræmd vottorð í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir:

  1. Vottorð sem staðfestir að handhafi þess hafi fengið COVID-19 bóluefni innan Evrópska efnahagssvæðisins eða fengið að öðru leyti bólusetningu í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 ("bólusetningarvottorð"),
  2. vottorð um niðurstöðu, tegund og dagsetningu NAAT-prófs eða skyndiprófs sem er að finna í sameiginlegu og uppfærðu skránni yfir skyndipróf vegna COVID-19 sem komið var á fót á grundvelli tilmæla ráðsins 2021/C 24/01 ("prófvottorð"), eða
  3. vottorð sem staðfestir, í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu NAAT-prófs sem framkvæmt er af fagfólki í heilbrigðisþjónustu eða starfsfólki sem hæft er til að framkvæma próf, að handhafi þess hafi náð bata eftir sýkingu af völdum SARS-CoV-2 (batavottorð).

3. gr.

Vottorð sem gefið er út á grundvelli 2. gr. skal vera í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.