Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. júlí 2021

639/2021

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 1155/2013 um styrki vegna hjálpartækja.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að veita styrki vegna tveggja hjálpartækja af sömu gerð til barna sem eiga fasta búsetu á tveimur stöðum, heimildin nær til hjálpartækja við salernisferðir, sjúkrarúma, dýna og stuðningsbúnaðar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 27. maí 2021.

Svandís Svavarsdóttir.

Guðlaug Einarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.