Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. apríl 2021

191/2021

Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr. Ákvörðun og markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra, að takmarka skólastarf tímabundið eftir því sem hér greinir.

Markmið með reglugerð þessari er að tryggja að sem minnst röskun verði á skólastarfi vegna COVID-19 sjúkdómsins með ýtrustu sóttvarnarsjónarmið að leiðarljósi.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á skólastarfi tekur gildi frá og með 24. febrúar 2021 og gildir til og með 30. apríl 2021.

Um fjöldatakmörkun í skólastarfi á hverju skólastigi fer eftir ákvæðum reglugerðar þessarar.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkun skólastarfs eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á skólastarfi tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla, framhaldsfræðslu og háskóla, hvort sem um er að ræða opinbera eða einkarekna skóla. Þá tekur reglugerðin jafnframt til annarrar starfsemi, svo sem skólabókasafna, frístundaheimila og félagsmiðstöðva, skólabúða, sem og til æskulýðs- og tómstundastarfs.

Heimilt er á öllum skólastigum að taka við allt að 200 einstaklingum fæddum 2004 og fyrr á skipulögðum viðburði séu öll skilyrði 4. mgr. 3. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar uppfyllt.

Um íþróttastarf fer samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Um verklegt ökunám og flugnám fer eftir reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

3. gr. Leikskólar.

Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 2 metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks innandyra skal það nota andlitsgrímur. Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við leikskólabörn. Ekki skulu vera fleiri en 10 fullorðnir einstaklingar í hverju rými. Fjölda- og nálægðartakmarkanir taka ekki til barna á leikskólaaldri.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til. Viðvera foreldra sem dvelja inni á leikskóla vegna aðlögunar skal skipulögð þannig að þeir þurfi ekki að nota hreinlætis- eða mataraðstöðu í byggingunni og skulu þeir gæta að minnst 2 metra nálægðartakmörkun jafnt sín á milli sem og gagnvart starfsfólki. Aðeins eitt foreldri fylgi barni í aðlögun og skal það vera sama foreldrið sem fylgir barninu allt aðlögunartímabilið.

Stjórnendum leikskóla er heimilt að krefja foreldra um að nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að gæta að 2 metra nálægðartakmörkun.

Aðrir en starfsmenn sem koma inn á leikskóla, svo sem starfsfólk skólaþjónustu sveitarfélaga og vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun og bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag.

4. gr. Grunnskólar.

Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 1 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks skal það nota andlitsgrímur. Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.

Nemendur í 1.-10. bekk eru undanþegnir 1 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 150 nemendur í hverju rými innan dyra. Blöndun nemenda milli hópa er heimil.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, sem og í mötuneytum og skólaakstri, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að starfsfólk notist við andlitsgrímu.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi grunnskóla, svo sem fyrirlestrar, upplestrarkeppnir o.fl., eru heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda- og nálægðartakmörkunum sem kveðið er á um í ákvæði þessu eða í 5. mgr. 2. gr.

Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingar og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín sem og gagnvart starfsfólki og skulu bera andlitsgrímur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.

Ákvæði þessarar greinar eiga einnig við um frístundaheimili, skólabúðir, skipulagt æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri, sem og starfsemi í félagsmiðstöðvum.

5. gr. Tónlistarskólar.

Tónlistarskólum er heimilt að sinna einstaklingskennslu með 1 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa, en þegar þeir geta ekki viðhaldið 1 metra nálægðartakmörkun hver gagnvart öðrum eða gagnvart nemendum skulu starfsmenn nota andlitsgrímu.

Öll tónlistarkennsla barna á leik- og grunnskólaaldri er heimil með sömu takmörkunum og gildir skv. 3. og 4. gr. Um eldri nemendur fer skv. 6. gr.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi tónlistarskóla, svo sem tónleikar, eru heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda- og nálægðartakmörkunum sem kveðið er á um í ákvæði þessu eða í 5. mgr. 2. gr.

Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingar og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín sem og gagnvart starfsfólki og skulu bera andlitsgrímur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

6. gr. Framhaldsskólar.

Skólastarf á framhaldsskólastigi, í lýðskóla, ungmennahúsum og framhaldsfræðslu er heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 1 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna fari aldrei yfir 150 í hverju rými.

Sé ekki unnt að halda 1 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur. Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum sem og í mötuneytum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur.

Blöndun nemenda milli hópa er heimil í kennslu. Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi framhaldsskóla, svo sem fyrirlestrar, ræðukeppnir o.fl., eru heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda- og nálægðartakmörkunum sem kveðið er á um í ákvæði þessu eða í 5. mgr. 2. gr.

Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingar og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín sem og gagnvart starfsfólki og skulu bera andlitsgrímur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir eftir hverja viðveru nemendahópa. Jafnframt skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Ákvæði þetta kemur ekki í veg fyrir að nemendur geti dvalið á heimavist.

7. gr. Háskólar.

Í öllum byggingum háskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 1 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna í hverju kennslu- eða lesrými fari ekki yfir 150. Blöndun nemenda og kennara milli hópa er heimil. Sé ekki unnt að halda 1 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur. Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi, er skólastarf heimilt að gættum sóttvörnum og með því skilyrði að nemendur og kennarar noti andlitsgrímu.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi í háskóla eru heimilir í skólabyggingum að uppfylltum skilyrðum 4. mgr. 3. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir milli nemendahópa.

Í háskólum skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun skólastarfs ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni og ráðherra sem fer með mennta- og menningarmál um beiðni um undanþágu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1306/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 4., 5., 6. og 7. gr. er staðnám, sem og félagsstarf og önnur starfsemi sem fellur undir framangreind ákvæði, óheimilt í grunnskólum, tónlistarskólum, framhaldsskólum og háskólum frá 25. til og með 31. mars 2021.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.