1. gr.
Í stað "14.500 kr." á þremur stöðum í 6. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 14.000 kr.
2. gr.
6. tl. 2. mgr. 12. gr. og IV. kafli reglugerðarinnar falla brott.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 25. gr., 1. mgr. 29. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast gildi frá og með 1. janúar 2021.
Heilbrigðisráðuneytinu, 28. desember 2020.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
Guðlín Steinsdóttir.