Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 13. jan. 2021

1223/2020

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 10. desember 2020 og gildir til og með 12. janúar 2021.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara, skipa í millilandaferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofnana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2005 eða síðar.

Reglugerð þessi tekur ekki til skólastarfs sem fjallað er um í sérstakri reglugerð um takmörkun skólastarfs.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en tíu einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem tónleika, menningarviðburða, leiksýninga, bíósýninga, íþróttaviðburða og einkasamkvæma, sbr. þó 5. gr.
  4. Kirkjuathafna hvers konar, svo sem vegna giftinga og ferminga, og annarra trúarsamkoma, sbr. þó 4. mgr.
  5. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en tíu einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en tíu einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum heimilt að taka við fimm viðskiptavinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 viðskiptavinum í rými að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 1. mgr. 4. gr. Þá er heimilt að hafa allt að 10 starfsmenn í sama rými í verslunum að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 1. mgr. 4. gr.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er allt að 50 einstaklingum heimilt að vera viðstaddir útfarir. Um fjölda fólks við erfidrykkju fer eftir 1. mgr.

Fjöldatakmarkanir 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, þjóðaröryggisráðs, Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.

Fjöldatakmörkun samkvæmt ákvæði þessu á ekki við um heimilisfólk á heimili sínu.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Andlitsgrímur skal nota í almenningssamgöngum, í verslunum og annarri þjónustu. Einnig skal nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun sem kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, auk þess í menningarstarfsemi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi. Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótthreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. eru þeir einstaklingar sem fengið hafa COVID-19 og lokið einangrun. Jafnframt eru þeir undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

Á þeim stöðum þar sem er grímuskylda skulu einstaklingar skv. 3. mgr. sýna vottorð um undanþágu frá grímuskyldu, auk skilríkja sé þess krafist.

5. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Skemmtistöðum og krám, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, spilakössum og spilasölum skal lokað frá gildistöku reglugerðarinnar. Þá er öðrum veitingastöðum þar sem eru heimilaðar áfengisveitingar heimilt að hafa opið til kl. 22.00, en er þó ekki heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 21.00. Þó er heimilt að selja mat út úr húsi til kl. 23.00. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er veitingastöðum heimilt að taka við 15 viðskiptavinum í rými.

Í þeim tilvikum þar sem fleiri tegundir veitingastaða eru skráðar í rekstrarleyfi er heimilt að starfa áfram í samræmi við aðrar tegundir en kveðið er á um í 2. mgr. með þeim takmörkunum sem kveðið er á um í reglugerð þessari.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 21.00.

Sund- og baðstöðum er heimilt að hafa opið. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun má gestafjöldi á sund- og baðstöðum aldrei vera meiri en helmingur af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við helming þess fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir. Börn fædd árið 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

Líkamsræktarstöðvum skal lokað.

Íþróttakeppnir barna og fullorðinna eru óheimilar.

Íþróttaæfingar einstaklinga fæddra 2004 og fyrr, hvort sem er innan- eða utandyra með snertingu eru óheimilar sem og íþróttaæfingar án snertingar innandyra. Íþróttaæfingar utandyra án snertingar eru heimilar, svo sem útihlaup, reiðmennska, skíðaíþróttir o.þ.h., að því gefnu að unnt sé að tryggja að ákvæði 3. og 4. gr. séu uppfyllt.

Íþróttaæfingar barna fæddra 2005 og síðar, inni og úti, með og án snertingar eru heimilar með þeim fjöldatakmörkunum sem gilda í skólastarfi.

Þrátt fyrir 7. mgr. eru íþróttaæfingar einstaklinga fæddra 2004 og fyrr, með eða án snertingar, í íþróttum innan Íþrótta- og ólympíusambands Íslands heimilar í efstu deild kvenna og karla í hverju sérsambandi. Hámarksfjöldi í hverju rými er 25 manns. Jafnframt eru æfingar afreksmanna í einstaklingsbundnum íþróttum innan Íþrótta- og ólympíusambands Íslands heimilar. Sameiginleg búningsaðstaða skal lokuð. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag, loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn. Þrátt fyrir framangreint eru æfingar sem krefjast snertingar innan bardagaíþrótta óheimilar.

Sviðslistir, bíósýningar sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir með allt að 30 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Andlitsgrímur skulu notaðar þegar því verður við komið nema þegar listflutningur fer fram. Leitast skal við að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun. Gætt skal að handhreinsun, sótthreinsun sameiginlegs búnaðar a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loftræsting sé í lagi. Heimilt er að taka á móti allt að 50 sitjandi gestum í hverju rými að því gefnu að allir gestir sitji í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn. Skulu gestir sem fæddir eru 2004 og fyrr bera andlitsgrímu. Hvorki er heimilt að bjóða upp á hlé né áfengissölu á sýningum. Heimilt er að taka á móti allt að 100 börnum fæddum 2005 og síðar til viðbótar við framangreindan fjölda gesta.

6. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undanþegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað.

7. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá banni við íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, svo sem vegna alþjóðlegra keppnisleikja hér á landi eða vegna æfinga í næstefstu deild sérsambands Íþrótta- og ólympíusambands Íslands ef hún er skilgreind á sama afreksstigi og efsta deild, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.

Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni um beiðnir um undanþágu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1105/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, með síðari breytingum.

Heilbrigðisráðuneytinu, 8. desember 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.