Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2021

1130/2020

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1106/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr.

5. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Tónlistarskólum er heimilt að sinna einstaklingskennslu með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa, en þegar þeir geta ekki viðhaldið 2 metra nálægðartakmörkun hver gagnvart öðrum eða gagnvart nemendum skulu starfsmenn nota andlitsgrímu.

Öll tónlistarkennsla barna á leik- og grunnskólaaldri er heimil með sömu takmörkunum og gildir um íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf, þ.e. að hámarki 50 börn á leikskólaaldri og í 1.-4. bekk og að hámarki 25 í 5.-10. bekk. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í leik- og grunnskólastarfi. Um nemendur í 8.-10. bekk gildir 2 metra nálægðartakmörkun en ef víkja þarf frá henni skulu andlitsgrímur notaðar, ef unnt er.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur þegar gildi og gildir til og með 1. desember 2020.

Heilbrigðisráðuneytinu, 20. nóvember 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.