Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. nóv. 2020

1016/2020

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 958/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

Í stað dagsetningarinnar "19. október 2020" í 1. mgr. 2. gr. kemur: 10. nóvember 2020.

2. málsliður 4. mgr. orðast svo: Þá tekur reglugerðin jafnframt til annarra menntastofnana, svo sem frístundaheimila og félagsmiðstöðva, sem og til íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs og gilda um það sömu reglur og viðkomandi skólastig í samráði við sóttvarnayfirvöld.

2. gr.

Í stað orðanna "1 metra" í 1., 2. og 4. mgr. 3. gr., 1. og 3. mgr. 4. gr., 1. og 4. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 6. gr. kemur: 2 metra.

3. gr.

Ákvæði til bráðabirgða fellur brott.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir 4. mgr. 2. gr. er íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri, þ.m.t. skólasund, sem krefst snertingar og frekari blöndunar hópa en í skólastarfi, óheimilt til og með 3. nóvember 2020 í sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi 20. október 2020.

Heilbrigðisráðuneytinu, 18. október 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.