Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

966/2020

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 957/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Til viðbótar við ákvæði reglugerðar þessarar skulu á gildistíma hennar gilda eftirfarandi takmarkanir í sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ:

  1. Í verslunum skv. 3. mgr. 3. gr. er viðskiptavinum skylt að bera andlitsgrímur ef ekki er hægt að tryggja a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
  2. Í stað 1 metra nálægðartakmörkunar í 4. gr. skal nálægðartakmörkun vera 2 metrar.
  3. Þrátt fyrir 1. mgr. 5. gr. og 4. mgr. 6. gr. er líkamsrækt, íþróttastarf og sambærileg starfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða starfsemin krefst mikillar nálægðar eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér óheimil innandyra.
  4. Þrátt fyrir 3. og 7. mgr. 5. gr. skulu áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra ekki vera fleiri en 20 í hverju rými.
  5. Í stað 100 gesta hámarks í 7. mgr. 5. gr. skal vera 20 gesta hámark.
  6. Aðrir veitingastaðir en þeir sem eru lokaðir samkvæmt ákvæði 1. mgr. 6. gr. skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00.
  7. Þrátt fyrir 6. mgr. 6. gr. skal loka sund- og baðstöðum.
  8. Þrátt fyrir 2. mgr. 4. gr. er starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða mikillar nálægðar óheimil, svo sem starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa og önnur sambærileg starfsemi. Takmarkanir þessar taka ekki til starfsemi heilbrigðisstarfsmanna við veitingu heilbrigðisþjónustu en í þeim tilvikum er skylt að notast við andlitsgrímur. Ákvæði þetta tekur ekki til innanlandsflugs og -ferja, leigubifreiða, hópbifreiða og almenningssamgangna.
  9. Takmarkanir samkvæmt ákvæði þessu gilda ekki um börn fædd 2005 og síðar. Í því felst m.a. að þrátt fyrir lokun sundstaða er heimilt að halda úti skólasundi og þrátt fyrir takmarkanir á íþróttastarfi er íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og tómstundir barna fæddra 2005 og síðar heimil. Aftur á móti skulu keppnisviðburðir barna fæddra 2005 og síðar þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefðbundnar æfingar ekki fara fram á gildistíma reglugerðarinnar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi 7. október 2020.

Heilbrigðisráðuneytinu, 6. október 2020.

F. h .r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.