Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 20. okt. 2020

957/2020

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Ákvörðun og markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 5. október 2020 og gildir til og með 19. október 2020.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara og skipa í millilandaferðum.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar.

Reglugerð þessi tekur ekki til skólastarfs sem fjallað er um í sérstakri reglugerð um takmörkun skólastarfs.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 20 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem tónleika, menningarviðburða, leiksýninga, bíósýninga, íþróttaviðburða og einkasamkvæma, sbr. þó 5. gr.
  4. Kirkjuathafna hvers konar, svo sem vegna giftinga og ferminga, og annarra trúarsamkoma, sbr. þó 4. mgr.
  5. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 20 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 20 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum heimilt að hafa allt að 100 manns inni í einu að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 4. gr. Þá er verslunum sem eru yfir 1.000 m² að stærð heimilt að hleypa til viðbótar einum viðskiptavin inn fyrir hverja 10 m² umfram 1.000 m², þó að hámarki 200 viðskiptavinum alls.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er allt að 50 einstaklingum heimilt að vera viðstaddir útfarir.

Fjöldatakmarkanir 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Í starfsemi sem eðlis síns vegna krefst meiri nálægðar en kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, á hárgreiðslustofum, nuddstofum, innanlandsflugi og -ferjum, leigubifreiðum, hópbifreiðum og í almenningssamgöngum skal nota andlitsgrímu sem hylur nef og munn þar sem 1 metra fjarlægð milli einstaklinga verður ekki við komið. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu.

5. gr. Nálægðartakmörkun í íþróttum, sviðslistum o.fl.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 4. gr. um 1 metra nálægðartakmörkun eru snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða 1 metra nálægðartakmörkun í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Þrátt fyrir fjöldatakmarkanir 3. gr. er allt að 50 einstaklingum heimilt að koma saman á æfingum og í keppnum.

Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt gæta að nálægðartakmörkunum skv. 1. mgr. 4. gr.

Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum innandyra. Heimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra að uppfylltum sömu skilyrðum og í 7. mgr.

Keppnisáhöld skulu sótthreinsuð eftir hverja notkun eins og kostur er með hliðsjón af eðli íþróttarinnar.

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklingsbundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni.

Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og gilda um sambærilegar íþróttir innan sambandsins.

Með sama hætti og í íþróttum eru snertingar og nálægð undir 1 metra heimil í sviðslistum, tónlist, við kvikmyndatöku og sambærilegri starfsemi. Þar sem sérstök smithætta er fyrir hendi, svo sem á kóræfingum, skal þó eftir fremsta megni gætt að ákvæði 1. mgr. 4. gr. og eftir atvikum viðhöfð meiri fjarlægð, ef það er unnt. Þrátt fyrir fjöldatakmarkanir 3. gr. er heimilt að hafa allt að 50 einstaklinga á sviði og 100 gesti í hverju rými á viðburðum, sbr. þó 3. mgr., að því gefnu að allir gestir sitji í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn. Gestir skulu nota andlitsgrímur sem uppfylla kröfur 2. mgr. 4. gr. og eru í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis.

6. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Skemmtistöðum og krám, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, og spilasölum skal lokað frá gildistöku reglugerðarinnar. Þá skulu aðrir veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar ekki hafa opið lengur en til kl. 23.00 alla daga vikunnar og fylgja ákvæðum 3. og 4. gr.

Í þeim tilvikum þar sem fleiri tegundir veitingastaða eru skráðar í rekstrarleyfi er heimilt að starfa áfram í samræmi við aðrar tegundir en kveðið er á um í 1. mgr. með þeim takmörkunum sem kveðið er á um í reglugerð þessari.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 23.00.

Húsnæði líkamsræktarstöðva skal vera lokað almenningi.

Í starfsemi þar sem notaður er sameiginlegur búnaður, svo sem í íþróttastarfi skal búnaður sótthreinsaður eftir hverja notkun.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun má gestafjöldi á sund- og baðstöðum aldrei vera meiri en helmingur af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við helming þess fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir. Börn fædd árið 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

7. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem varðandi heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum.

8. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

9. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða. Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

10. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 864/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Til viðbótar við ákvæði reglugerðar þessarar skulu á gildistíma hennar gilda eftirfarandi takmarkanir í sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ:

  1. Í verslunum skv. 3. mgr. 3. gr. er viðskiptavinum skylt að bera andlitsgrímur ef ekki er hægt að tryggja a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
  2. Í stað 1 metra nálægðartakmörkunar í 4. gr. skal nálægðartakmörkun vera 2 metrar.
  3. Þrátt fyrir 1. mgr. 5. gr. og 4. mgr. 6. gr. er líkamsrækt, íþróttastarf og sambærileg starfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða starfsemin krefst mikillar nálægðar eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér óheimil innandyra.
  4. Þrátt fyrir 3. og 7. mgr. 5. gr. skulu áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra ekki vera fleiri en 20 í hverju rými.
  5. Í stað 100 gesta hámarks í 7. mgr. 5. gr. skal vera 20 gesta hámark.
  6. Aðrir veitingastaðir en þeir sem eru lokaðir samkvæmt ákvæði 1. mgr. 6. gr. skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00.
  7. Þrátt fyrir 6. mgr. 6. gr. skal loka sund- og baðstöðum.
  8. Þrátt fyrir 2. mgr. 4. gr. er starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða mikillar nálægðar óheimil, svo sem starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa og önnur sambærileg starfsemi. Takmarkanir þessar taka ekki til starfsemi heilbrigðisstarfsmanna við veitingu heilbrigðisþjónustu en í þeim tilvikum er skylt að notast við andlitsgrímur. Ákvæði þetta tekur ekki til innanlandsflugs og -ferja, leigubifreiða, hópbifreiða og almenningssamgangna.
  9. Takmarkanir samkvæmt ákvæði þessu gilda ekki um börn fædd 2005 og síðar. Í því felst m.a. að þrátt fyrir lokun sundstaða er heimilt að halda úti skólasundi og þrátt fyrir takmarkanir á íþróttastarfi er íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og tómstundir barna fæddra 2005 og síðar heimil. Aftur á móti skulu keppnisviðburðir barna fæddra 2005 og síðar þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefðbundnar æfingar ekki fara fram á gildistíma reglugerðarinnar.
Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.