Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 5. okt. 2020

929/2020

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 864/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr.

Í stað "27. september 2020 kl. 23.59" í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 18. október 2020 kl. 23.59.

2. gr.

Á eftir fyrsta málslið 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður sem orðast svo: Veitingastöðum þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar er skylt að hafa sæti fyrir alla gesti staðarins og tryggja að gestir séu að jafnaði í sætum eins og almennt tíðkast á veitingahúsum og kaffihúsum.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, öðlast þegar gildi, að frátalinni 2. gr. sem tekur gildi þann 28. september 2020.

Heilbrigðisráðuneytinu, 25. september 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.