Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 5. okt. 2020

907/2020

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 864/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 6. gr. reglugerðar þessarar skulu skemmtistaðir og krár, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, í Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ vera lokuð á tímabilinu frá og með 18. september 2020 til og með 21. september 2020.

Í þeim tilvikum þar sem fleiri tegundir veitingastaða eru skráðar í rekstrarleyfi er heimilt að starfa áfram í samræmi við aðrar tegundir en kveðið er á um í 1. mgr. með þeim takmörkunum sem kveðið er á um í 6. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 17. september 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.