Velferðarráðuneyti

1221/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur iðjuþjálfa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um iðjuþjálfa sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. gr.

II. KAFLI

Starfsleyfi.

2. gr.

Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig iðjuþjálfa og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr.

Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa BS-prófi í iðjuþjálfunarfræði frá heil­brigðis­vísinda­sviði Háskólans á Akureyri.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahags­svæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi iðjuþjálfa sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heil­brigðis­stéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá mennta­stofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðis­yfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Umsækjandi um starfsleyfi sem iðjuþjálfi, skv. 2. gr., frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðn­ingar­samningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem iðjuþjálfi, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur 1. mgr. að teknu tilliti til starfsreynslu er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af iðjuþjálfa. Viðeigandi menntastofnun skal skipuleggja prófið í samráði við landlækni.

Starfsleyfi skv. 3. mgr. er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

4. gr.

Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir veitingu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI

Réttindi og skyldur.

5. gr.

Faglegar kröfur og ábyrgð.

Iðjuþjálfi skal sýna þeim sem hann veitir þjónustu virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Iðjuþjálfa ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttar­innar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Iðjuþjálfi skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heil­brigðis­þjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Iðjuþjálfi ber ábyrgð á þeim forvörnum, ráðgjöf, greiningu og meðferð sem hann veitir.

Iðjuþjálfi skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa þeim sem hann veitir þjónustu til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

6. gr.

Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu iðjuþjálfa gagnvart þeim sem hann veitir þjónustu fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu iðjuþjálfa til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Iðjuþjálfi skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkra­skrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

7. gr.

Aðstoðarmenn og nemar.

Iðjuþjálfi ber ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar, sem starfa undir hans stjórn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

8. gr.

Trúnaður og þagnarskylda.

Iðjuþjálfi skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar þess sem hann veitir þjónustu, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki þess sem hann veitir þjónustu eða forráðamanns, ef við á, leysir iðjuþjálfa undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem iðjuþjálfa ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber iðjuþjálfa skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu iðjuþjálfa gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúk­linga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI

Ýmis ákvæði.

9. gr.

Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni, fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðis­starfsmanna, nr. 951/2012.

10. gr.

Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um iðjuþjálfa.

11. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013.

Velferðarráðuneytinu, 11. desember 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Vilborg Ingólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica