Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 24. feb. 2021

1306/2020

Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr. Ákvörðun og markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra, að takmarka skólastarf tímabundið eftir því sem hér greinir.

Markmið með reglugerð þessari er að tryggja að sem minnst röskun verði á skólastarfi vegna COVID-19 sjúkdómsins með ýtrustu sóttvarnarsjónarmið að leiðarljósi.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á skólastarfi tekur gildi frá og með 1. janúar 2021 og gildir til og með 28. febrúar 2021.

Um fjöldatakmörkun í skólastarfi á hverju skólastigi fer eftir ákvæðum reglugerðar þessarar.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkun skólastarfs eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á skólastarfi tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla, framhaldsfræðslu og háskóla, hvort sem um er að ræða opinbera eða einkarekna skóla. Þá tekur reglugerðin jafnframt til annarrar starfsemi, svo sem skólabókasafna, frístundaheimila og félagsmiðstöðva, sem og til íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs.

Um verklegt ökunám og flugnám fer eftir reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

3. gr. Leikskólar.

Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 2 metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks innan dyra skal það nota andlitsgrímur. Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við leikskólabörn. Ekki skulu vera fleiri en 20 fullorðnir einstaklingar í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.Nálægðartakmörkun tekur ekki til barna á leikskólaaldri.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema nauðsyn beri til. Viðvera foreldra sem dvelja inni á leikskóla vegna aðlögunar skal skipulögð þannig að þeir þurfi ekki að nota hreinlætis- eða mataraðstöðu í byggingunni og skulu þeir gæta að minnst 2 metra nálægðartakmörkun jafnt sín á milli sem og gagnvart starfsfólki. Aðeins eitt foreldri fylgi barni í aðlögun og skal það vera sama foreldrið sem fylgir barninu allt aðlögunartímabilið.

Stjórnendum leikskóla er heimilt að krefja foreldra um að nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að gæta að 2 metra nálægðartakmörkun.

Aðrir en starfsmenn sem koma inn á leikskóla, svo sem starfsfólk skólaþjónustu sveitarfélaga og vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun og bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag.

Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er heimilt.

4. gr. Grunnskólar.

Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 2 metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks skal það nota andlitsgrímur. Ekki skulu vera fleiri en 20 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.

Nemendur í 1.-10. bekk eru undanþegnir 2 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í hverju rými innan dyra. Blöndun nemenda milli hópa er heimil.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, sem og í mötuneytum og skólaakstri, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að starfsfólk notist við andlitsgrímu.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema nauðsyn beri til. Stjórnendum grunnskóla er heimilt að krefja foreldra, þurfi þeir að koma inn í skólabyggingu, um að nota andlitsgrímur. Aðrir en starfsmenn sem koma inn í grunnskóla, svo sem kennarar tónlistarskóla sem koma inn í grunnskóla með einstaklingskennslu, starfsfólk skólaþjónustu sveitarfélaga og vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.

Ákvæði þessarar greinar eiga einnig við um frístundaheimili, skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri, sem og starfsemi í félagsmiðstöðvum.

5. gr. Tónlistarskólar.

Tónlistarskólum er heimilt að sinna einstaklingskennslu með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Ekki skulu vera fleiri en 20 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa, en þegar þeir geta ekki viðhaldið 2 metra nálægðartakmörkun hver gagnvart öðrum eða gagnvart nemendum skulu starfsmenn nota andlitsgrímu.

Öll tónlistarkennsla barna á leik- og grunnskólaaldri er heimil með sömu takmörkunum og gildir skv. 3. og 4. gr. Um eldri nemendur fer skv. 6. gr.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

6. gr. Framhaldsskólar.

Skólastarf á framhaldsskólastigi, í lýðskóla, ungmennahúsum og framhaldsfræðslu er heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna fari aldrei yfir 30 í hverju rými. Tryggja skal góða loftræstingu í rýmum og lofta út milli hópa. Sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur.

Blöndun nemenda milli hópa er heimil í kennslu. Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum. Takmarka skal gestakomur í skólabyggingar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir eftir hverja viðveru nemendahópa. Jafnframt skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Ákvæði þetta kemur ekki í veg fyrir að nemendur geti dvalið á heimavist.

Mötuneyti er heimilt að starfa samkvæmt gildandi ákvæðum um fjöldatakmarkanir og nálægðartakmarkanir.

7. gr. Háskólar.

Í öllum byggingum háskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna í hverju kennslu- eða lesrými fari ekki yfir 50. Tryggja skal góða loftræstingu í rýmum og lofta út milli hópa. Blöndun nemenda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfsfólki og kennurum er heimilt að fara á milli hópa.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi, er skólastarf heimilt að gættum sóttvörnum og með því skilyrði að nemendur og kennarar noti andlitsgrímu.

Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum. Takmarka skal gestakomur í skólabyggingar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir milli nemendahópa.

Í háskólum skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun skólastarfs ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni og ráðherra sem fer með mennta- og menningarmál um beiðni um undanþágu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1106/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, með síðari breytingum.

Heilbrigðisráðuneytinu, 21. desember 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.