Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 13. nóv. 2021

1250/2021

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 10. nóvember 2021 og gildir til og með 8. desember 2021.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara, skipa í millilandaferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofnana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði 3., 4. og 5. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2006 og síðar.

Reglugerð þessi tekur til skólastarfs eftir því sem við á.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 500 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum, innan- og utandyra. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem standandi eða sitjandi viðburða og einkasamkvæma.
  4. Athafna trú- og lífsskoðunarfélaga.
  5. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 500 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 500 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. mgr. er heimilt að hafa allt að 1.500 manns í rými, enda séu öll eftirfarandi skilyrði uppfyllt:

  1. Allir gestir fæddir 2005 og fyrr framvísi neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi (antigen) sem má ekki vera eldra en 48 klst.
  2. Að viðhöfð sé 1 metra nálægðarregla nema þegar gestir eru sitjandi.
  3. Allir gestir séu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri. Séu gestir í föstum sætum skulu þeir skráðir í sæti. Skrána skal varðveita í tvær vikur og henni eytt að þeim tíma liðnum.
  4. Allir gestir noti andlitsgrímu þar sem ekki er unnt að viðhafa 1 metra nálægðarreglu, sbr. þó 6. mgr. 2. gr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er framhaldsskólum heimilt að halda skemmtanir fyrir nemendur fyrir allt að 1.500 gesti að því gefnu að gestir framvísi neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi (antigen) sem má ekki vera eldra en 48 klst. Slíkar skemmtanir eru undanþegnar nálægðartakmörkun og grímuskyldu skv. 4. gr. Skrá skal alla gesti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skrána skal varðveita í tvær vikur og henni eytt að þeim tíma liðnum.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum, verslunum, söfnum og í skólum og allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., hvort sem er innan- eða utandyra, skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Þrátt fyrir 1. mgr. gildir ekki 1 metra nálægðartakmörkun á sitjandi viðburðum skv. 3. mgr. 3. gr., 6. mgr. 5. gr. og 8. mgr. 5. gr.

Andlitsgrímur skal nota þar sem ekki er unnt að tryggja nálægðartakmörkun skv. 1. mgr., svo sem á söfnum, í verslunum, heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum.

Þrátt fyrir 3. mgr. er starfsfólk í einstaklingsbundinni þjónustu sem krefst mikillar nándar, svo sem á hárgreiðslustofum, nuddstofum og sambærilegri starfsemi, undanþegið grímuskyldu, enda beri viðskiptavinir grímu. Þegar þjónusta skv. 1. málsl. þessarar málsgreinar er þess eðlis að viðskiptavinir geta ekki borið grímu, ber starfsfólki að bera grímu.

Þrátt fyrir 3. mgr. er kennurum og nemendum fæddum 2005 og fyrr heimilt í skólum að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skólastofum. Kennurum og öðrum starfsmönnum er ekki skylt að bera grímu í samskiptum við nemendur í grunn- og leikskólum.

Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótthreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 3. mgr. eru þeir einstaklingar sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

5. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, svo sem veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, spilasalir og spilakassar skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 23.00 alla daga vikunnar. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 23.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 00.00. Gestir mega að hámarki vera 500 í rými og skulu vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Gestir skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.

Þrátt fyrir 1. mgr. er þó heimilt að halda einkasamkvæmi eftir kl. 23.00 á stöðum sem hafa vínveitingaleyfi enda sé vínveitingaleyfið ekki nýtt og ekki komi nýir gestir í samkvæmið. Skrá skal alla gesti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum. Í slíkum samkvæmum má heildarfjöldi gesta ekki fara yfir 500 manns.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 23.00.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun er heilsu- og líkamsræktarstöðvum og sund- og baðstöðum heimilt að hafa opið fyrir leyfilegan hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sótthreinsa skal tæki og áhöld milli notenda. Á þessum stöðum ber að virða 1. mgr. 4. gr. um 1 metra nálægðartakmörkun. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna, innan- og utandyra, með og án snertingar, eru heimilar með allt að 500 manns í rými, sbr. þó 6. mgr. 2. gr. Búningsaðstaða skal þrifin reglulega og snertifletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð milli hópa, loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn. Sama gildir um sitjandi borðleiki, svo sem skák, bridds og bingó.

Hámarksfjöldi áhorfenda á íþróttaviðburðum er 500 í rými, sbr. þó 3. mgr. 3. gr. Þrátt fyrir 1. mgr. 4. gr. er áhorfendum heimilt að sitja í hverju sæti. Þar er grímuskylda nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru. Skylt er að skrá áhorfendur í númeruð sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skal varðveita skrána í tvær vikur og eyða henni að þeim tíma liðnum.

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklingsbundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og gilda um sambærilegar íþróttir innan sambandsins.

Sviðslistir, kórastarf, bíósýningar sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir með allt að 500 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Gætt skal að handhreinsun, sótthreinsun sameiginlegs búnaðar a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loftræsting sé í lagi. Heimilt er að taka á móti allt að 500 sitjandi gestum í hverju rými, sbr. þó 3. mgr. 3. gr., og skulu þeir nota grímu nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru. Þrátt fyrir 1. mgr. 4. gr. er gestum heimilt að sitja í hverju sæti. Allir gestir skulu skráðir í númeruð sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skal varðveita skrána í tvær vikur og eyða henni að þeim tíma liðnum. Sama gildir um athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga eftir því sem við á.

6. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undanþegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað.

7. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti. Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni um beiðnir um undanþágu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1177/2021, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, með síðari breytingu.

Heilbrigðisráðuneytinu, 8. nóvember 2021.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.