Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 24. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2021

1106/2020

Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr. Ákvörðun og markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra, að takmarka skólastarf tímabundið eftir því sem hér greinir.

Markmið með reglugerð þessari er að tryggja að sem minnst röskun verði á skólastarfi vegna COVID-19 sjúkdómsins með ýtrustu sóttvarnarsjónarmið að leiðarljósi.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á skólastarfi tekur gildi frá og með 18. nóvember 2020 og gildir til og með 31. desember 2020.

Um fjöldatakmörkun í skólastarfi á hverju skólastigi fer eftir ákvæðum reglugerðar þessarar.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkun skólastarfs eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á skólastarfi tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla, framhaldsfræðslu og háskóla, hvort sem um er að ræða opinbera eða einkarekna skóla. Þá tekur reglugerðin jafnframt til annarrar starfsemi, svo sem skólabókasafna, frístundaheimila og félagsmiðstöðva, sem og til íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs.

Um verklegt ökunám og flugnám fer eftir reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

3. gr. Leikskólar.

Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 2 metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks skal það notast við andlitsgrímur. Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við leikskólabörn. Ekki skulu vera fleiri en 10 fullorðnir einstaklingar í hverju rými. Nálægðartakmörkun tekur ekki til barna á leikskólaaldri. Ákvæði um grímuskyldu og nálægðartakmörkun gilda ekki á útisvæðum leikskóla.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til. Viðvera foreldra sem dvelja inni á leikskóla vegna aðlögunar skal skipulögð þannig að þeir þurfi ekki að nota hreinlætis- eða mataraðstöðu í byggingunni og skulu þeir gæta að minnst 2 metra nálægðartakmörkun jafnt sín á milli sem og gagnvart starfsfólki. Aðeins eitt foreldri fylgi barni í aðlögun og skal það vera sama foreldrið sem fylgir barninu allt aðlögunartímabilið.

Stjórnendum leikskóla er heimilt að krefja foreldra um að nota andlitsgrímur.

Aðrir en starfsmenn sem koma inn á leikskóla, svo sem starfsfólk skólaþjónustu sveitarfélaga og vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun og bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.

Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er heimilt.

4. gr. Grunnskólar.

Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og milli starfsfólks og nemenda í 8.-10. bekk. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun skv. 1. málsl. skulu kennarar notast við andlitsgrímur. Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við nemendur í 1.-7. bekk. Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.

Nemendur í 1.-10. bekk eru undanþegnir 2 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í 1.-4. bekk í hverju rými. Ekki skulu vera fleiri en 25 nemendur í 5.-10. bekk í hverju rými.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að starfsfólk notist við andlitsgrímu. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu og listkennslu, skulu kennarar nota andlitsgrímu. Á útisvæðum grunnskóla gilda ekki ákvæði um blöndun hópa eða nálægðartakmörkun milli nemenda.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til. Stjórnendum grunnskóla er heimilt að krefja foreldra, þurfi þeir að koma inn í skólabyggingu, um að nota andlitsgrímur. Aðrir en starfsmenn sem koma inn í grunnskóla, svo sem kennarar tónlistarskóla sem koma inn í grunnskóla með einstaklingskennslu, starfsfólk skólaþjónustu sveitarfélaga og vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.

Ákvæði 1. mgr. tekur einnig til frístundaheimila fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Halda skal sömu hópaskiptingu nemenda í grunnskólastarfi, í félagsmiðstöðvum og á frístundaheimilum þannig að ekki verði blöndun milli nemendahópa.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.

Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri er heimilt, þ.e. að hámarki 50 börn í 1.-4. bekk og að hámarki 25 í 5.-10. bekk. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í grunnskólastarfi.

Mötuneyti er heimilt að starfa samkvæmt gildandi ákvæðum um fjöldatakmarkanir og nálægðartakmarkanir.

5. gr. Tónlistarskólar.

Tónlistarskólum er heimilt að sinna einstaklingskennslu með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa, en þegar þeir geta ekki viðhaldið 2 metra nálægðartakmörkun hver gagnvart öðrum eða gagnvart nemendum skulu starfsmenn nota andlitsgrímu.

Öll tónlistarkennsla barna á leik- og grunnskólaaldri er heimil með sömu takmörkunum og gildir um íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf, þ.e. að hámarki 50 börn á leikskólaaldri og í 1.-4. bekk og að hámarki 25 í 5.-10. bekk. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í leik- og grunnskólastarfi.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

6. gr. Framhaldsskólar.

Skólastarf á framhaldsskólastigi, í lýðskóla og framhaldsfræðslu er heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna fari aldrei yfir 25 í hverju rými. Sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að notast sé við andlitsgrímu.

Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu, klínísku námi og kennslu nemenda á starfsbrautum, skulu nemendur og kennarar nota andlitsgrímu.

Blöndun nemenda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfsfólki er heimilt að fara á milli hópa.

Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum. Takmarka skal gestakomur í skólabyggingar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir eftir hverja viðveru nemendahópa. Jafnframt skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Ákvæði þetta kemur ekki í veg fyrir að nemendur geti dvalið á heimavist.

Heimilt er að hafa opin lestrarrými og halda þýðingarmikil próf fyrir allt að 30 einstaklinga í vel loftræstum rýmum, að uppfylltri 2 metra nálægðartakmörkun og ýtrustu sóttvarnaráðstöfunum.

Mötuneyti er heimilt að starfa samkvæmt gildandi ákvæðum um fjöldatakmarkanir og nálægðarmarkanir.

7. gr. Háskólar.

Í öllum byggingum háskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna í hverri kennslustofu fari ekki yfir 10 í rými. Blöndun nemenda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfsfólki og kennurum er heimilt að fara á milli hópa.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi, er skólastarf heimilt að gættum sóttvörnum og með því skilyrði að nemendur og kennarar noti andlitsgrímu.

Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum. Takmarka skal gestakomur í skólabyggingar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir milli nemendahópa.

Í háskólum skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Heimilt er að halda samkeppnispróf, þýðingarmikil lokapróf og staðbundnar námslotur fyrir allt að 30 einstaklinga í vel loftræstum rýmum, að uppfylltri 2 metra nálægðartakmörkun og sóttvörnum í hvívetna.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun skólastarfs ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni og ráðherra sem fer með mennta- og menningarmál um beiðni um undanþágu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1060/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, með síðari breytingu.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.