Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

1062/2020

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1051/2020, takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "manns" í 1. málsl. kemur: viðskiptavini.
  2. Nýr málsliður bætist við svohljóðandi: Öðrum verslunum er heimilt að hafa allt að tíu viðskiptavini inni í einu að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 4. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 2. nóvember 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.