Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. nóv. 2020

958/2020

Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr. Ákvörðun og markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra, að takmarka skólastarf tímabundið eftir því sem hér greinir.

Markmið með reglugerð þessari er að tryggja að sem minnst röskun verði á skólastarfi vegna COVID-19 sjúkdómsins með ýtrustu sóttvarnarsjónarmið að leiðarljósi.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á skólastarfi tekur gildi 5. október 2020 og gildir til og með 10. nóvember 2020.

Um fjöldatakmörkun í skólastarfi á hverju skólastigi fer eftir ákvæðum reglugerðar þessarar. Reglur um fjöldatakmörk og nálægðartakmörk taka ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkun skólastarfs eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á skólastarfi tekur til leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, framhaldsfræðslu og háskóla, hvort sem um er að ræða opinbera eða einkarekna skóla. Þá tekur reglugerðin jafnframt til annarra menntastofnana, svo sem frístundaheimila og félagsmiðstöðva, sem og til íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs og gilda um það sömu reglur og viðkomandi skólastig í samráði við sóttvarnayfirvöld.

3. gr. Leikskólar.

Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með því skilyrði að starfsfólk sem á erindi inn í skólabyggingar gæti að minnst 2 metra nálægðartakmörkun sín á milli án þess að andlitsgrímur séu notaðar. Ekki skulu vera fleiri en 20 einstaklingar fæddir 2004 eða fyrr í hverju rými. Ekki gilda aðrar takmarkanir á samkomum barna á leikskólaaldri.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til. Viðvera foreldra sem dvelja inni á leikskóla vegna aðlögunar skal skipulögð þannig að þeir þurfi ekki að nota hreinlætis- eða mataraðstöðu í byggingunni og skulu þeir gæta að minnst 2 metra nálægðartakmörkun jafnt sín á milli og gagnvart starfsfólki. Aðeins eitt foreldri fylgi barni í aðlögun.

Stjórnendum leikskóla er heimilt að krefja foreldra að nota andlitsgrímur í aðlögun.

Aðrir en starfsmenn og foreldrar sem koma inn á leikskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa eða sótthreinsa byggingar eftir hvern dag.

4. gr. Grunnskólar.

Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með þeim skilyrðum að starfsfólk sem á erindi inn í skólabyggingar gæti að 2 metra nálægðartakmörkun sín á milli án þess að andlitsgrímur séu notaðar. Ekki skulu vera fleiri en 20 einstaklingar fæddir 2004 eða fyrr í hverju rými. Ekki gilda aðrar takmarkanir á samkomum barna á grunnskólaaldri.

Ákvæði 1. mgr. tekur einnig til frístundaheimila, félagsmiðstöðva og íþróttastarfs í grunnskólum.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn og foreldrar sem koma inn í grunnskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa eða sótthreinsa byggingar eftir hvern dag.

5. gr. Framhaldsskólar.

Í öllum byggingum framhaldsskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og hámarksfjöldi nemenda í hverri kennslustofu fari ekki yfir 30. Í sameiginlegum rýmum skóla, s.s. við innganga, í anddyri, á salerni og á göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að notast sé við andlitsgrímu. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nándarreglunni, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu, klínísku námi og kennslu nemenda á starfsbrautum skulu nemendur og kennarar nota andlitsgrímu sem hylur munn og nef.

Blöndun nemenda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfsfólki er heimilt að fara á milli hópa.

Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum. Takmarka skal gestakomur í skólabyggingar.

Við íþróttakennslu eru snertingar heimilar milli nemenda á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða 2 metra nálægðartakmörkun í búningsklefum og á öðrum svæðum utan æfingasvæðis og keppnissvæðis.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum framhaldsskóla skulu sótthreinsaðir eftir hverja viðveru nemendahópa. Jafnframt skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Ákvæði þetta skal ekki koma í veg fyrir að nemendur geti áfram dvalið á heimavist.

6. gr. Háskólar.

Í öllum byggingum háskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og hámarksfjöldi nemenda í hverri kennslustofu fari ekki yfir 30. Blöndun nemenda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfsfólki og kennurum er heimilt að fara á milli hópa. Í sameiginlegum rýmum skóla, s.s. við innganga, í anddyri, á salerni og á göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðarreglunni, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi, skulu nemendur og kennarar nota andlitsgrímu sem hylur munn og nef.

Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum. Takmarka skal gestakomur í skólabyggingar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir milli nemendahópa.

Í háskólum skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

7. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun skólastarfs ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni og ráðherra sem fer með mennta- og menningarmál um beiðni um undanþágu.

8. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi auglýsing nr. 811/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir 4. mgr. 2. gr. er íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri, þ.m.t. skólasund, sem krefst snertingar og frekari blöndunar hópa en í skólastarfi, óheimilt til og með 3. nóvember 2020 í sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.