Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 20. ágúst 2002

759/2020

Reglugerð um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um alla þá einstaklinga sem sóttvarnalæknir skyldar í sóttkví eða einangrun á grundvelli sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, hvort sem það er gert með almennri ákvörðun eða ákvörðun sem beint er sérstaklega að viðkomandi. Reglugerð þessi gildir jafnframt um sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.

Krafa um sóttkví skv. 1. og 3. mgr. 3. gr. gildir ekki um þá sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest með PCR-prófi að hafi áður fengið COVID-19 sýkingu og lokið hafa einangrun eða COVID-19 sýking hefur verið staðfest með mótefnamælingu.

Með reglugerð þessari er kveðið á um afkvíun landsins alls eins og nánar er útfært í reglugerðinni skv. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra.

2. gr. Markmið.

Sóttkví og einangrun eru opinberar sóttvarnaráðstafanir sem beitt er til að draga úr útbreiðslu farsótta, hvort sem er til eða frá Íslandi, innanlands eða til að varna útbreiðslu smits frá einstaklingum. Sóttkví er beitt þegar einstaklingur hefur mögulega smitast af sjúkdómi en er ekki með einkenni. Hugtakið sóttkví nær hvorutveggja til heimasóttkvíar og vinnusóttkvíar. Einangrun er beitt þegar einstaklingur er með smitandi sjúkdóm.

3. gr. Skylda til að fara í sóttkví.

Öllum þeim, sem koma til Íslands og dvalið hafa í meira en sólarhring á síðastliðnum 14 dögum í löndum sem skilgreind eru af sóttvarnalækni sem áhættusvæði, er skylt að fara í sóttkví í 14 daga frá komu til landsins. Sóttvarnalæknir skal reglulega endurmeta hvaða lönd og svæði teljist áhættusvæði, svo sem með hliðsjón af skilgreiningu alþjóðastofnana. Börnum fæddum árið 2005 eða síðar er ekki skylt að sæta sóttkví samkvæmt þessari málsgrein. Tengifarþegum sem fara ekki út fyrir viðkomandi landamærastöð er ekki skylt að fara í sóttkví samkvæmt þessari málsgrein og þurfa þar með ekki sýnatöku samkvæmt reglugerð þessari.

Til að tryggja rétta framkvæmd sóttkvíar getur sóttvarnalæknir gert kröfu til flytjenda að farþegar sem koma til landsins fylli út þar til gert eyðublað eða veiti upplýsingar meðal annars um dvalarstað hér á landi og afhendi þar til bærum yfirvöldum á landamærum.

Allir þeir sem hafa umgengist einstaklinga með COVID-19 skulu fara í sóttkví í 14 daga frá því að þeir umgengust síðast smitaðan einstakling. Sóttvarnalæknir, eða þeir sem hann hefur falið að sinna því verkefni, getur gefið fyrirmæli um að einstaklingur fari í sóttkví ef möguleiki er á því að viðkomandi hafi smitast af COVID-19 og er skylt að hlýða þeim fyrirmælum.

Þeir sem skylt er að fara í sóttkví samkvæmt þessu ákvæði skulu fara í heimasóttkví, sbr. 5. og 6. gr., nema þeir uppfylli skilyrði 7. gr. um vinnusóttkví og hafi fengið heimild sóttvarnalæknis til þess.

4. gr. Valkvæð sýnataka við landamæri Íslands.

Þeir sem skylt er að fara í sóttkví skv. 1. mgr. 3. gr. geta þess í stað valið að fara í sýnatöku í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða á öðrum landamærastöðvum sem sóttvarnalæknir ákveður til greiningar á SARS-CoV-2 veirunni og í síðari sýnatöku samkvæmt ákvæði þessu. Neikvæð niðurstaða leiðir til þess að einstaklingi er ekki skylt að fara í sóttkví enda viðhefur hann smitgát samkvæmt ákvæði þessu og leiðbeiningum sóttvarnalæknis. Framkvæmd sýnatöku við landamæri Íslands fer að öðru leyti samkvæmt leiðbeiningum sem sóttvarnalæknir gefur út. Um jákvæð sýni fer eftir 9. gr.

Fyrir komuna til Íslands er einstaklingum skylt að fylla út rafrænt eyðublað þar sem meðal annars koma fram samskiptaupplýsingar, upplýsingar um hvar viðkomandi hefur dvalið og upplýsingar um heilsufar. Jafnframt skulu þeir sem hyggjast fara í sýnatöku á landamærum forskrá sig. Að öðrum kosti er unnt að synja viðkomandi um sýnatöku á landamærum.

Gjald fyrir sýnatöku samkvæmt ákvæði þessu nemur 11.000 kr., sbr. 1. tölul. 1. mgr. og 5. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar. Gjaldið myndar ekki afsláttarstofn skv. 4. gr. reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, sbr. jafnframt 29. gr. laga nr. 112/2008. Sé gjald samkvæmt þessari málsgrein greitt degi fyrir komu til landsins eða fyrr skal það nema 9.000 kr.

Ákvæði þetta og gjaldtaka samkvæmt því tekur ekki til þeirra sem vegna veikinda leita á heilsugæslu og fá sýnatöku vegna SARS-CoV-2, sbr. 1. mgr. 11. gr. reglugerðar nr. 817/2012, um sóttvarnaráðstafanir, enda séu einkenni viðkomandi í samræmi við fagleg fyrirmæli landlæknis.

Gjald samkvæmt ákvæði þessu er innheimt af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem skal sjá um að það renni til þeirra stofnana sem að verkefninu koma í samræmi við hlutfallslegan kostnað þeirra.

Lífsýni sem tekin eru samkvæmt þessu ákvæði skulu einungis rannsökuð m.t.t. SARS-CoV-2 veirunnar. Lífsýnum skal eytt að lokinni greiningu.

Einstaklingur sem farið hefur í sýnatöku samkvæmt ákvæði þessu oftar en tvisvar sinnum á 30 daga tímabili getur sótt um endurgreiðslu til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fyrir þá fjárhæð sem hann hefur greitt umfram 22.000 kr. vegna sýnatöku fyrir sig sjálfan.

Þeir sem koma á landamærastöð utan þess tíma sólarhrings sem unnt er að taka sýni og ekki eru í áætlunarferð geta óskað eftir sýnatöku með útkalli. Þeim sem sinnir slíku útkalli er heimilt að taka gjald umfram það sem segir í 3. mgr. sem nemur 30.000 kr. fyrir útkallið.

Þeim sem eru búsettir hér á landi eða eru íslenskir ríkisborgarar og fjölskyldum þeirra og hafa valið að fara í sýnatöku í samræmi við ákvæði þetta er ekki skylt að fara í sóttkví enda viðhafi þeir heimkomusmitgát í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis í 5 daga frá komu til landsins eða þangað til niðurstöður liggja fyrir úr sýnatöku sem í boði verður og framkvæma á 4 til 6 dögum eftir komu til landsins. Að öðrum kosti skal einstaklingur fara í sóttkví samkvæmt þessari reglugerð. Neikvæð niðurstaða úr seinni sýnatöku leiðir til þess að einstaklingur þarf ekki lengur að viðhafa heimkomusmitgát. Um jákvæð sýni fer eftir 9. gr. Aðrir einstaklingar sem valið hafa að fara í sýnatöku samkvæmt 1. mgr. og áætla að dvelja hér á landi í 10 daga eða lengur skulu viðhafa smitgát í samræmi við ákvæði þetta og leiðbeiningar sóttvarnalæknis í 5 daga frá komu til landsins eða þangað til niðurstöður liggja fyrir úr sýnatöku sem í boði verður og framkvæma á 4 til 6 dögum eftir komu til landsins. Að öðrum kosti skal einstaklingur fara í sóttkví samkvæmt þessari reglugerð. Neikvæð niðurstaða úr seinni sýnatöku leiðir til þess að einstaklingur þarf ekki lengur að viðhafa smitgát samkvæmt þessu ákvæði. Um jákvæð sýni fer eftir 9. gr. Seinni sýnataka samkvæmt þessari málsgrein er skipulögð af sóttvarnalækni og er hún einstaklingi að kostnaðarlausu.

5. gr. Skyldur einstaklinga sem eru í heimasóttkví.

Þeim sem gert hefur verið að sæta sóttkví, hvort sem er á grundvelli 1. eða 3. mgr. 3. gr., er skylt að halda sig heima við eða á þeim stað þar sem þeir eru í sóttkví og hafa bein samskipti við sem fæsta einstaklinga, sbr. leiðbeiningar sóttvarnalæknis.

Í sóttkví felst eftirfarandi:

  1. Einstaklingur má ekki fara út af heimili nema brýna nauðsyn beri til, svo sem til að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Einstaklingur má þó fara í gönguferðir en þarf að halda sig í a.m.k. 2 metra fjarlægð frá öðrum vegfarendum.
  2. Einstaklingur má ekki taka á móti gestum á heimili sínu meðan sóttkví stendur yfir.
  3. Einstaklingur má ekki nota almenningssamgöngur en honum er heimilt að nota leigubíl.
  4. Einstaklingur má ekki fara til vinnu eða skóla þar sem aðrir eru.
  5. Einstaklingur má hvorki fara á mannamót né staði þar sem margir koma saman, þ.m.t. í verslanir eða lyfjabúðir.
  6. Einstaklingur má ekki dvelja í sameiginlegum rýmum fjölbýlishúsa, svo sem stigagöngum, þvottahúsum eða sameiginlegum görðum/útivistarsvæðum, nema á leið inn og út.

6. gr. Nánar um framkvæmd heimasóttkvíar.

Einstaklingar á sama heimili, sem voru útsettir fyrir smiti á sama tíma, geta verið í sóttkví saman á sama stað.

Sé hluti heimilismanna í sóttkví geta aðrir heimilismenn sinnt sínum daglegu störfum og börn farið í skóla hafi þau þroska og getu til að halda fjarlægð við þann sem er í sóttkví og sinna eigin hreinlæti. Gestir mega aftur á móti ekki koma á heimilið.

Vilji eða geti einstaklingar sem ekki hafa verið útsettir fyrir smiti ekki fara af heimilinu ættu þeir að takmarka snertingu við þann sem er í sóttkví eins og hægt er.

Ef sá sem er í sóttkví veikist verða aðrir heimilismenn að fara í sóttkví.

Sóttvarnalæknir hefur gefið út nánari leiðbeiningar fyrir almenning um sóttkví, sbr. fylgiskjal 1. Einnig getur hann mælt sérstaklega fyrir um hvernig sóttkví skuli háttað í einstaka tilfellum, telji hann tilefni til.

7. gr. Vinnusóttkví.

Sóttvarnalæknir getur heimilað einstaklingum, einum eða fleiri saman, sem skylt er að fara í sóttkví á grundvelli 1. mgr. 3. gr. og eru komnir hingað til lands til starfa eða til að sinna sérstökum verkefnum að fara í vinnusóttkví í stað heimasóttkvíar. Með vinnusóttkví er átt við að viðkomandi geti farið til og frá vinnustað á meðan 14 daga sóttkví stendur.

Skilyrði fyrir vinnusóttkví eru að:

  1. Viðkomandi umgangist ekki aðra en heimilisfólk eða þá sem eru með þeim í vinnusóttkví.
  2. Viðkomandi dveljist einungis á gististað og vinnustað meðan á sóttkví stendur.
  3. Viðkomandi fylgi öðrum ákvæðum 5. og 6. gr. eftir því sem við á sem og leiðbeiningum um sóttvarnaráðstafanir sem gefnar eru út af sóttvarnalækni vegna vinnusóttkvíar.
  4. Sótt sé um heimild fyrir vinnusóttkví til sóttvarnalæknis.

Heimild frá sóttvarnalækni samkvæmt þessu ákvæði veitir ekki undanþágu frá reglum heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum eða reglugerð dómsmálaráðherra um för yfir landamæri.

8. gr. Undanþágur.

Sóttvarnalæknir getur veitt undanþágu frá heimasóttkví skv. 1. mgr. 3. gr. að öllu leyti eða hluta vegna mjög sérstakra aðstæðna enda sé tryggt að það komi ekki niður á smitvörnum.

Sóttvarnalæknir getur veitt undanþágu frá einstaka skilyrðum vinnusóttkvíar og aðlagað skilyrði að viðkomandi starfsemi ef tryggt er að það komi ekki niður á smitvörnum.

Sóttvarnalæknir getur veitt undanþágu frá sóttkví skv. 3. mgr. 3. gr. vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, löggæslu, sjúkraflutninga eða slökkviliða. Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi.

Einstaklingur sem getur staðfest með gildu vottorði að hann hafi sýkst af SARS-CoV-2 veirunni þarf hvorki að sæta sóttkví né fara í sýnatöku á landamærum samkvæmt þessari reglugerð. Sama gildir um einstakling sem getur sýnt fram á gilt vottorð um neikvætt PCR-próf. Um þann tíma sem liðinn er frá því að PCR-próf var tekið fer eftir leiðbeiningum sóttvarnalæknis. Um efni og form vottorða fer að öðru leyti eftir leiðbeiningum sóttvarnalæknis, m.a. um gildi vottorða og tungumál. Vottorð sem uppfylla ekki leiðbeiningar sóttvarnalæknis eru ekki gild vottorð samkvæmt þessu ákvæði. Sóttvarnalækni er heimilt að framkvæma mótefnamælingu eða sýnatöku til staðfestingar á vottorði ef vafi leikur á um trúverðugleika vottorðs. Á meðan beðið er eftir niðurstöðu slíkrar greiningar skal einstaklingur sæta sóttkví.

Einstaklingi sem kemur til Íslands og hefur ekki dvalið á áhættusvæði á síðastliðnum 14 dögum er ekki skylt að fara í sóttkví skv. 1. mgr. 3. gr. og þarf hann ekki að fara í sýnatöku í samræmi við 4. gr. Áhættusvæði eru nánar skilgreind af sóttvarnalækni, sbr. 1. mgr. 3. gr.

9. gr. Sérstakar reglur um einangrun.

Einstaklingur sem er með staðfesta sýkingu af COVID-19 eða ætla má að hann kunni að vera smitaður en þarf ekki á sjúkrahúsdvöl að halda, skal vera í einangrun í heimahúsi eða á stað sem almannavarnir og heilsugæsla á hverjum stað tilgreina. Í þeim tilvikum sem jákvætt PCR-próf gæti verið vegna eldra smits getur einstaklingur gengist undir mótefnamælingu á blóðsýni. Ef mótefni greinist þarf viðkomandi ekki að sæta einangrun.

Einstaklingur í einangrun á að halda sig heima við og hafa bein samskipti við sem fæsta, sbr. meðfylgjandi leiðbeiningar sóttvarnalæknis. Ákvæði 5. og 6. gr. eiga einnig við um þá sem sæta einangrun nema strangari reglur eigi við. Þannig má einstaklingur í einangrun t.a.m. hvorki fara í gönguferðir né nota leigubíla.

Að jafnaði skal einstaklingur sem er smitaður vera einsamall í einangrun. Aðrir heimilismenn geta þó verið í sóttkví á sama stað ef þeir vilja ekki eða geta ekki farið af heimilinu en þeir eiga að takmarka snertingu við þann sem er í einangrun eins og raunhæft er og helst að halda sig í a.m.k. 1 m fjarlægð frá hinum smitaða. Ef fleiri veikjast á heimilinu lengir það tíma sem aðrir heimilismenn þurfa að vera í sóttkví og mögulega einangrun.

Sóttvarnalæknir hefur gefið út nánari leiðbeiningar fyrir almenning um einangrun, sbr. fylgiskjal 2. Einnig getur hann mælt sérstaklega fyrir um hvernig einangrun skuli háttað í einstaka tilfellum, telji hann tilefni til.

Læknir má aflétta einangrun vegna COVID-19 þegar 14 dagar eru liðnir frá greiningu og sjúklingur hefur verið einkennalaus í a.m.k. sjö daga.

10. gr. Viðurlög.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum eða fangelsi skv. 19. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 eða 175. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi sem sett er á grundvelli 12., 13. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, og 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 580/2020, um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.

Reglugerð þessi fellur úr gildi þann 15. september 2020.

Heilbrigðisráðuneytinu, 30. júlí 2020.

F. h. r.

Elsa B. Friðfinnsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.