Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 26. júní 2021

691/2021

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 15. júní 2021 og gildir til og með 29. júní 2021.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara, skipa í millilandaferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofnana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2015 og síðar. Grímuskylda skv. 2. mgr. 4. gr. á ekki við börn sem fædd eru 2005 og síðar.

Reglugerð þessi tekur til skólastarfs eftir því sem við á.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 300 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem standandi eða sitjandi viðburða og einkasamkvæma.
  4. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 300 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 300 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum heimilt að taka við fimm viðskiptavinum á hverja 10 m², að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 1. mgr. 4. gr.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. skal hámarksgestafjöldi á heilsu- og líkamsræktarstöðvum og sund- og baðstöðum miðast við leyfilegan hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sama á við um tjaldsvæði, skíðasvæði og söfn eftir því sem við á. Sé hámarksfjöldi gesta í heilsu- og líkamsræktarstöðvum og sund- og baðstöðum ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við þann fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., hvort sem er innandyra eða utandyra, skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Íþróttir og sviðslistir sem krefjast meiri nálægðar eða snertingar eru undanþegnar nálægðartakmörkun. Þá gilda nálægðartakmörk ekki um sitjandi áhorfendur á viðburðum, sem ekki sitja andspænis hver öðrum, enda beri þeir andlitsgrímur nema þegar neytt er matar eða drykkjar.

Andlitsgrímur skal nota þar sem húsnæði er illa loftræst eða ekki er unnt að tryggja nálægðartakmörkun sem kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi.

Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótthreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. eru þeir einstaklingar sem fengið hafa COVID-19 og lokið einangrun. Jafnframt eru þeir undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

Á þeim stöðum þar sem er grímuskylda skulu einstaklingar skv. 3. mgr. sýna vottorð um undanþágu frá grímuskyldu, auk skilríkja sé þess krafist.

5. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, svo sem veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, spilasalir og spilakassar skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 00.00 alla daga vikunnar og skulu þeir fylgja ákvæðum 3. og 4. gr. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 00.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 01.00. Gestir mega vera að hámarki 300 í rými og skulu vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Gestir skulu skráðir á borð undir nafni, kennitölu og símanúmeri. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum. Sömu skilyrði gilda um skráningu gesta á sitjandi viðburðum, t.a.m. skulu gestir skráðir í sæti á íþróttaviðburðum.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 00.00.

Í heilsu- og líkamsræktarstöðvum skulu viðskiptavinir skráðir fyrir fram.

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur um sóttvarnir og um framkvæmd æfinga og keppni í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og sambærilegar íþróttir innan sambandsins.

6. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undanþegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað. Heimilt er að líta til þess hvort starfsfólk og/eða heimilisfólk sé bólusett gegn COVID-19.

7. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Í búningsaðstöðu og annarri aðstöðu vegna íþróttaiðkunar og sviðslistastarfsemi skal þrífa reglulega og snertifletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loftræsting sé í lagi.

Á heilsu- og líkamsræktarstöðvum skal sótthreinsa tæki og áhöld milli notenda. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaði vegna COVID-19.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.

Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni um beiðnir um undanþágu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 587/2021, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.