Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

660/2021

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 55/2009 um styrki til kaupa á næringarefnum og sérfæði.

1. gr.

Á eftir 1. málsl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist við nýr málsliður sem orðast svo:

Þó er heimilt að veita styrk í skemmri tíma þegar um er ræða fyrirbura, sem fæðast fyrir 32 vikna meðgöngu og þarfnast næringaruppbótar þar til þeir hafa náð 40 vikna meðgöngualdri.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 27. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 28. maí 2021.

Svandís Svavarsdóttir.

Guðlaug Einarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.