Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 15. júní 2021

587/2021

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 25. maí 2021 og gildir til og með 16. júní 2021.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara, skipa í millilandaferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofnana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2015 og síðar. Grímuskylda skv. 2. mgr. 4. gr. á ekki við börn sem fædd eru 2005 og síðar.

Reglugerð þessi tekur til skólastarfs eftir því sem við á.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 150 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem standandi viðburða og einkasamkvæma.
  4. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 150 einstaklingum, sbr. þó 3. og 4. mgr.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 150 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum heimilt að taka við fimm viðskiptavinum á hverja 10 m², að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 1. mgr. 4. gr.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er allt að 300 gestum heimilt að vera viðstaddir athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga og sviðslistar-, menningar- og íþróttaviðburði, ráðstefnur, fyrirlestra eða sambærilega viðburði, að uppfylltum öllum eftirfarandi skilyrðum:

  1. Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum.
  2. Allir gestir séu skráðir í númeruð sæti, a.m.k. nafn, kennitala og símanúmer. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.
  3. Allir gestir noti andlitsgrímu nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru.
  4. Tryggt sé að fjarlægð milli ótengdra gesta sé a.m.k. 1 metri.
  5. Komið verði eins og kostur er í veg fyrir frekari hópamyndun fyrir viðburð, í hléi og eftir viðburð. Skipuleggjendum viðburða er skylt að tryggja þegar gestir eru ekki í sætum, svo sem fyrir og eftir viðburð og í hléi, að ekki komi fleiri saman en 150 manns og að leitast skuli við að hafa 2 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra aðila.
  6. Umgengni í hverju hólfi skal vera í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis þar að lútandi svo koma megi í veg fyrir blöndun milli hólfa.

Sé eitthvert ofangreindra skilyrða ekki uppfyllt er hámarksfjöldi á viðburði 150 manns í hverju rými.

Fjöldatakmarkanir 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, þjóðaröryggisráðs, Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Nálægðartakmörkun skal þó vera a.m.k. 1 metri í skólastarfi, á viðburðum skv. 4. mgr. 3. gr., veitingastöðum, og sund- og baðstöðum. Íþróttir og sviðslistir sem krefjast meiri nálægðar eða snertingar eru undanþegnar nálægðartakmörkun.

Andlitsgrímur skal nota þar sem húsnæði er illa loftræst eða ekki er unnt að tryggja nálægðartakmörkun sem kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi.

Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótthreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. eru þeir einstaklingar sem fengið hafa COVID-19 og lokið einangrun. Jafnframt eru þeir undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

Á þeim stöðum þar sem er grímuskylda skulu einstaklingar skv. 3. mgr. sýna vottorð um undanþágu frá grímuskyldu, auk skilríkja sé þess krafist.

5. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, svo sem veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, spilasalir og spilakassar skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 23.00 alla daga vikunnar og skulu þeir fylgja ákvæðum 3. og 4. gr. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 23.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 00.00. Gestir mega vera að hámarki 150 í rými og skulu vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Gestir skulu skráðir á borð undir nafni, kennitölu og símanúmeri. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 23.00.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun skal hámarksgestafjöldi á heilsu- og líkamsræktarstöðvum og sund- og baðstöðum miðast við leyfilegan hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við þann fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir. Í hverju rými í heilsu- og líkamsræktarstöðvum skulu ekki vera fleiri en að hámarki 150 manns og 2 metra nálægðartakmörk. Skulu viðskiptavinir skráðir fyrir fram og skal sótthreinsa tæki og áhöld milli notenda. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna, innan- og utandyra, með og án snertingar, eru heimilar. Búningsaðstaða skal þrifin reglulega og snertifletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag, loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn. Sama gildir um sitjandi borðleiki, svo sem skák, bridds og bingó.

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklingsbundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um áhorfendur, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og sambærilegar íþróttir innan sambandsins.

Þrátt fyrir 1. mgr. 3. gr. er skíðasvæðum og tjaldsvæðum heimilt að taka á móti hámarksfjölda móttökugetu hvers svæðis. Á svæðunum gildir 2 metra nálægðartakmörkun og þar sem henni verður ekki viðkomið ber að nota andlitsgrímu. Um veitingarekstur á skíðasvæðum og tjaldsvæðum gildir 1. mgr. Sama gildir um söfn eftir því sem við á.

Sviðslistir, kórastarf, bíósýningar sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir, þ.e. æfingar og sýningar, og skal leitast við að viðhafa 1 metra nálægðartakmörkun. Gætt skal að handhreinsun, sótthreinsun sameiginlegs búnaðar a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loftræsting sé í lagi.

6. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undanþegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað. Heimilt er að líta til þess hvort starfsfólk og/eða heimilisfólk sé bólusett gegn COVID-19.

7. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.

Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni um beiðnir um undanþágu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 510/2021, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, með síðari breytingu og reglugerð nr. 511/2021, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

Heilbrigðisráðuneytinu, 21. maí 2021.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.