Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 9. apríl 2021

355/2021

Reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID‑19.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um alla þá einstaklinga sem sóttvarnalæknir skyldar í sóttkví eða einangrun á grundvelli sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, hvort sem það er gert með almennri ákvörðun eða ákvörðun sem beint er sérstaklega að viðkomandi. Reglugerð þessi gildir jafnframt um sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.

Krafa um sóttkví og sýnatöku við landamæri gildir ekki um þá sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest með PCR-prófi að hafi áður fengið COVID-19 sýkingu og lokið hafa einangrun, eða COVID-19 sýking hefur verið staðfest með mótefnamælingu. Um önnur vottorð fer eftir 6. gr.

Með reglugerð þessari er kveðið á um afkvíun landsins alls, eins og nánar er útfært í reglugerðinni skv. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra.

2. gr. Markmið.

Sóttkví og einangrun eru opinberar sóttvarnaráðstafanir sem beitt er til að draga úr útbreiðslu farsótta, hvort sem er til eða frá Íslandi, innanlands eða til að varna útbreiðslu smits frá einstaklingum. Sóttkví er beitt þegar einstaklingur hefur mögulega smitast af sjúkdómi en er ekki með einkenni. Hugtakið sóttkví nær hvorutveggja til heimasóttkvíar og vinnusóttkvíar. Einangrun er beitt þegar einstaklingur er með smitandi sjúkdóm.

3. gr. Skylda til að fara í sóttkví.

Allir þeir sem hafa umgengist einstaklinga með COVID-19 skulu fara í sóttkví í 14 daga frá því að þeir umgengust síðast smitaðan einstakling. Sóttvarnalæknir, eða þeir sem hann hefur falið að sinna því verkefni, getur gefið fyrirmæli um að einstaklingur fari í sóttkví ef möguleiki er á því að viðkomandi hafi smitast af COVID-19 og er einstaklingi skylt að hlýða þeim fyrirmælum.

Þeir sem skylt er að fara í sóttkví samkvæmt þessu ákvæði skulu fara í heimasóttkví, sbr. 7. og 8. gr. Um vinnusóttkví gildir 9. gr.

Neiti einstaklingur að fara í sóttkví samkvæmt reglugerð þessari er sóttvarnalækni heimilt að leita aðstoðar lögregluyfirvalda vegna aðgerða til að varna smiti í samræmi við sóttvarnalög, nr. 19/1997, með síðari breytingum. Í þeim tilgangi er lögreglu enn fremur heimilt að kanna hvort einstaklingur er á þeim stað sem hann sætir sóttkví. Áður en gripið er til þvingunaraðgerða skal ætíð reynt að leysa mál með öðrum hætti.

4. gr. Sýnataka við landamæri Íslands.

Ferðamönnum sem koma til Íslands og dvalið hafa í meira en sólarhring á síðastliðnum 14 dögum í löndum sem skilgreind eru af sóttvarnalækni sem áhættusvæði er skylt að framvísa vottorði á landamærastöð og við byrðingu sem sýnir fram á neikvætt PCR-próf sem ekki er eldra en 72 klst. við byrðingu. Þeim er jafnframt skylt að fara í sýnatöku í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða á öðrum landamærastöðvum sem sóttvarnalæknir ákveður til greiningar á SARS-CoV-2 veirunni og síðan í sóttkví þangað til niðurstöður liggja fyrir úr seinni sýnatöku sem skylt er að undirgangast og framkvæma skal 5 dögum eftir komu til landsins. Íslenskum ríkisborgurum verður þó ekki meinað að koma til landsins. Sóttvarnalæknir skal reglulega endurmeta hvaða lönd og svæði teljist áhættusvæði, svo sem með hliðsjón af skilgreiningu alþjóðastofnana. Börnum fæddum 2005 eða síðar er ekki skylt að framvísa PCR-vottorði en er skylt að fara í sýnatöku við landamæri. Sýnataka úr börnum skal fara fram með eins lítið íþyngjandi hætti og unnt er og með hliðsjón af aldri þeirra og þroska. Ferðist barn með ferðamanni sem skylt er að sæta sóttkví samkvæmt þessu ákvæði þarf barnið jafnframt að sæta sóttkví sem það losnar úr ef síðara sýni úr samferðamanni er neikvætt. Ferðist barn eitt eða samferðafólk er undanskilið sóttkví þarf barnið ekki að sæta sóttkví en er skylt að fara í sýnatöku.

Ef sýni úr seinni sýnatöku reynist neikvætt er ferðamanni ekki lengur skylt að sæta sóttkví. Um jákvæð sýni fer eftir 5. eða 11. gr., eftir því sem við á. Í vottorði samkvæmt þessari málsgrein skal koma fram dagsetning sýnatöku, nafn og símanúmer rannsóknarstofu og nafn og fæðingardagur þess sem sýni var tekið frá. Niðurstöður rannsóknar skal forskrá rafrænt ásamt öðrum upplýsingum fyrir brottför. Sóttvarnalækni er að öðru leyti heimilt að gefa út nánari leiðbeiningar um vottorð.

Fyrir komuna til Íslands er ferðamanni skylt að forskrá sig með því að fylla út rafrænt eyðublað þar sem meðal annars koma fram samskiptaupplýsingar, upplýsingar um hvar viðkomandi hefur dvalið, hvar hann hyggst dvelja í sóttkví á Íslandi, brottfarardagur frá Íslandi ef við á og upplýsingar um heilsufar. Þeim sem flytja farþega til Íslands er skylt að vekja athygli viðkomandi á skyldu til forskráningar með hæfilegum fyrirvara.

Sýnataka sem fer fram samkvæmt þessu ákvæði er skipulögð af sóttvarnalækni og er hún ferðamanni að kostnaðarlausu.

Lífsýni sem tekin eru samkvæmt þessu ákvæði skulu einungis rannsökuð m.t.t. SARS-CoV-2 veirunnar. Lífsýnum skal eytt að lokinni greiningu.

Þeir sem koma á landamærastöð utan þess tíma sólarhrings sem unnt er að taka sýni og ekki eru í áætlunarferð geta óskað eftir sýnatöku með útkalli. Þeim sem sinnir slíku útkalli er heimilt að taka gjald sem nemur 60.000 kr. fyrir útkallið. Gjaldið myndar ekki afsláttarstofn skv. 4. gr. reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, sbr. jafnframt 29. gr. laga nr. 112/2008.

Tengifarþegum sem fara ekki út fyrir viðkomandi landamærastöð er ekki skylt að fara í sýnatöku samkvæmt þessu ákvæði. Tengifarþegum sem fara út fyrir landamærastöð en dvelja innan við 48 tíma á Íslandi er heimilt að fara í sóttkví í stað sýnatöku samkvæmt ákvæði þessu.

Til að tryggja rétta framkvæmd sýnatöku og sóttkvíar getur sóttvarnalæknir gert kröfu til flytjenda að farþegar sem koma til landsins fylli út þar til gert eyðublað eða veiti upplýsingar meðal annars um dvalarstað hér á landi og afhendi þar til bærum yfirvöldum á landamærum.

Neiti ferðamaður að fara í sóttkví eða sýnatöku samkvæmt reglugerð þessari er sóttvarnalækni heimilt að leita aðstoðar lögregluyfirvalda vegna aðgerða til að varna smiti, s.s. sýnatöku, einangrun eða sóttkví í samræmi við 14. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997. Í þeim tilgangi er lögreglu enn fremur heimilt að kanna hvort ferðamaður er á þeim stað sem hann sætir sóttkví. Áður en gripið er til þvingunaraðgerða skal ætíð reynt að leysa mál með öðrum hætti.

5. gr. Sóttvarnahús.

Ferðamaður sem kemur frá eða hefur dvalið á svæði þar sem 14 daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa er yfir 500 eða fullnægjandi upplýsingar um svæðið liggja ekki fyrir (dökkrauð eða grá svæði samkvæmt upplýsingum frá Sóttvarnastofnun Evrópu) skal dvelja í sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi. Sóttvarnalæknir skal birta lista yfir svæði sem falla undir ákvæðið, sbr. fylgiskjal 3. Sé löndum skipt upp í fleiri en eitt svæði þar sem nýgengi smita er ólíkt er heimilt að miða allt landið við það svæði þar sem nýgengi er hæst. Almennt skal miðað við að listinn sé uppfærður á tveggja vikna fresti. Þeim sem greinast í sýnatöku skv. 4. gr. með afbrigði SARS-CoV-2 veirunnar sem eru meira smitandi en önnur afbrigði og/eða valda alvarlegri sjúkdómi er jafnframt skylt að dvelja í sóttvarnahúsi. Um málsmeðferð fer eftir 14. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, með síðari breytingum.

Einangrun eða sóttkví í sóttvarnahúsi felst í eftirfarandi:

  1. Ferðamaður skal ekki fara út úr húsnæði sóttvarnahúss nema brýna nauðsyn ber til, svo sem til að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
  2. Ferðamaður má ekki taka á móti gestum í sóttvarnahúsi.
  3. Ferðamaður má ekki dvelja í sameiginlegum rýmum sóttvarnahúss, svo sem stigagöngum eða sameiginlegum útisvæðum.

Ferðamaður skal greiða fyrir dvöl í sóttvarnahúsi, sbr. 3. mgr. 17. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum. Fyrir hvert herbergi skal greiða 10.000 kr. fyrir hverja nótt sem dvalið er í sóttvarnahúsi. Gjaldið myndar ekki afsláttarstofn skv. 4. gr. reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, sbr. jafnframt 29. gr. laga nr. 112/2008.

6. gr. Vottorð o.fl.

Hafi ferðamaður við komuna til landsins undir höndum viðurkennt vottorð um ónæmisaðgerð vegna COVID-19 eða vottorð sem sýnir fram á að COVID-19 sýking sé afstaðin er honum ekki skylt að fara í sóttkví eða framvísa vottorði um neikvætt PCR-próf skv. 4. gr., en er skylt að gangast undir eina sýnatöku við landamæri. Viðkomandi ber að fara að reglum sem gilda um heimasóttkví, sbr. 7. gr., þar til neikvæð niðurstaða liggur fyrir úr sýnatöku. Um jákvæð sýni fer eftir 5. eða 11. gr.

Viðurkennd vottorð eru eftirfarandi:

  1. alþjóðabólusetningarskírteinið gefið út í samræmi við alþjóðaheilbrigðisreglugerð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
  2. bólusetningarvottorð sem staðfestir bólusetningu með bóluefni sem Lyfjastofnun Evrópu hefur mælst til að fái markaðsleyfi og sem uppfyllir leiðbeiningar sóttvarnalæknis um vottorð, svo sem um mat á vottorðum við landamæri og efni og form vottorða, t.a.m. um tungumál og hvaða upplýsingar vottorð skal innihalda, svo sem nafn, fæðingardag, ríkisfang, hvar og hvenær bólusetning fór fram, framleiðandi bóluefnis og upplýsingar um aðila ábyrgan fyrir útgáfu vottorðs.
  3. vottorð sem staðfestir jákvæða niðurstöður úr PCR-prófi sem er eldra en 14 daga gamalt, eða
  4. vottorð sem staðfestir mótefni með mótefnaprófi sem framkvæmt er með ELISA-aðferð eða sambærilegri aðferð samkvæmt nánari ákvörðun sótvarnalæknis.

Sóttvarnalækni er heimilt að gefa út nánari leiðbeiningar um vottorð svo sem um mat á vottorðum við landamæri og efni og form vottorða, t.a.m. um tungumál og hvaða upplýsingar vottorð skal innihalda, svo sem nafn, fæðingardag, hvar og hvenær sýnataka fór fram, heiti rannsóknarstofu/útgefanda vottorðs, dagsetningu vottorðs, upplýsingar um aðila ábyrgan fyrir útgáfu vottorðs, tegund prófs og niðurstöðu rannsóknar.

Ef minnsti vafi leikur á um trúverðugleika vottorðs eða vottorð telst ógilt samkvæmt nánari leiðbeiningum sóttvarnalæknis er ferðamanni skylt að fara í sýnatöku og sóttkví skv. 4. gr., og dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi, sbr. 5. gr.

Þeir sem sýna fram á, með hæfilegum fyrirvara, að sýnataka sé ekki framkvæmanleg vegna læknisfræðilegra ástæðna eru undanþegnir sýnatöku skv. 4. gr. og framvísun neikvæðs PCR-prófs samkvæmt sama ákvæði. Þess í stað skulu þeir sæta 14 daga sóttkví frá komu til landsins, eftir atvikum í sóttvarnahúsi, sbr. 5. gr.

Þeir sem greinast jákvæðir í sýnatöku samkvæmt þessu ákvæði er skylt að sæta einangrun, sbr. 11. gr., eða eftir atvikum 5. gr.

Sýnataka samkvæmt þessu ákvæði er gjaldfrjáls.

7. gr. Skyldur einstaklinga sem eru í heimasóttkví.

Þeim sem gert hefur verið að sæta sóttkví samkvæmt reglugerð þessari er skylt að halda sig heima við eða á þeim stað þar sem þeir eru í sóttkví og hafa bein samskipti við sem fæsta einstaklinga, sbr. leiðbeiningar sóttvarnalæknis.

Í sóttkví felst eftirfarandi:

  1. Einstaklingur má ekki fara út af heimili nema brýna nauðsyn beri til, svo sem til að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Einstaklingur má þó fara í gönguferðir en þarf að halda sig í a.m.k. 2 metra fjarlægð frá öðrum vegfarendum.
  2. Einstaklingur má ekki taka á móti gestum á heimili sínu eða á þeim stað þar sem hann er í sóttkví meðan sóttkví stendur yfir.
  3. Einstaklingur má ekki nota almenningssamgöngur en honum er heimilt að nota leigubíl.
  4. Einstaklingur má ekki fara til vinnu eða skóla þar sem aðrir eru.
  5. Einstaklingur má hvorki fara á mannamót né staði þar sem margir koma saman, þ.m.t. verslanir eða lyfjabúðir.
  6. Einstaklingur má ekki dvelja í sameiginlegum rýmum fjölbýlishúsa, hótela og öðrum sambærilegum rýmum, svo sem stigagöngum, þvottahúsum eða sameiginlegum görðum/útivistarsvæðum, nema á leið inn og út.

Þeim sem sæta sóttkví skv. 3. gr. býðst að fara í sýnatöku til greiningar á SARS-CoV-2 veirunni eftir sjö daga í sóttkví. Ef sýni reynist neikvætt er einstaklingi ekki lengur skylt að sæta sóttkví. Um jákvæð sýni fer eftir 11. gr. Sóttvarnalæknir skipuleggur sýnatöku samkvæmt þessari málsgrein og er hún einstaklingi að kostnaðarlausu.

8. gr. Nánar um framkvæmd heimasóttkvíar.

Einstaklingar á sama heimili, sem voru útsettir fyrir smiti á sama tíma, geta verið í sóttkví saman á sama stað.

Sé hluti heimilismanna í sóttkví geta aðrir heimilismenn sinnt sínum daglegu störfum og börn farið í skóla hafi þau þroska og getu til að halda fjarlægð við þann sem er í sóttkví og sinna eigin hreinlæti. Gestir mega aftur á móti ekki koma á heimilið.

Vilji eða geti einstaklingar sem ekki hafa verið útsettir fyrir smiti ekki farið af heimilinu ættu þeir að takmarka snertingu við þann sem er í sóttkví eins og hægt er.

Ef sá sem er í sóttkví veikist verða aðrir heimilismenn að fara í sóttkví.

Sóttvarnalæknir hefur gefið út nánari leiðbeiningar fyrir almenning um sóttkví, sbr. fylgiskjal 1. Einnig getur hann mælt sérstaklega fyrir um hvernig sóttkví skuli háttað í einstaka tilfellum, telji hann tilefni til.

9. gr. Vinnusóttkví.

Sóttvarnalæknir getur heimilað ferðamönnum, einum eða fleiri saman, sem skylt er að fara í sýnatöku og eru komnir hingað til lands til starfa eða til að sinna nauðsynlegum vinnutengdum verkefnum að fara í vinnusóttkví í stað sóttkvíar, þ.m.t. sóttkví í sóttvarnahúsi. Með vinnusóttkví er átt við að viðkomandi geti farið til og frá vinnustað á meðan sóttkví stendur. Afgreiðslufrestur á umsókn um vinnusóttkví getur verið allt að 10 dagar.

Skilyrði fyrir vinnusóttkví eru að:

  1. Viðkomandi umgangist ekki aðra en heimilisfólk eða þá sem eru með þeim í vinnusóttkví.
  2. Viðkomandi dveljist einungis á gististað og vinnustað meðan á sóttkví stendur.
  3. Viðkomandi fylgi öðrum ákvæðum 7. og 8. gr. eftir því sem við á sem og leiðbeiningum um sóttvarnaráðstafanir sem gefnar eru út af sóttvarnalækni vegna vinnusóttkvíar.
  4. Sótt sé um heimild fyrir vinnusóttkví til sóttvarnalæknis.
  5. Ekki séu fleiri saman í vinnusóttkví en tilgreint er í ákvæði um almenna fjöldatakmörkun í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, nema á grundvelli undanþágu frá heilbrigðisráðherra.

Heimild frá sóttvarnalækni samkvæmt þessu ákvæði veitir ekki undanþágu frá reglum heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum eða reglugerð dómsmálaráðherra um för yfir landamæri.

10. gr. Undanþágur.

Sóttvarnalæknir getur veitt undanþágu frá heimasóttkví eða sóttkví í sóttvarnahúsi að öllu leyti eða hluta til vegna mjög sérstakra aðstæðna enda sé tryggt að það komi ekki niður á smitvörnum.

Sóttvarnalæknir getur veitt undanþágu frá einstaka skilyrðum vinnusóttkvíar og aðlagað skilyrði að viðkomandi starfsemi ef tryggt er að það komi ekki niður á smitvörnum.

Sóttvarnalæknir getur veitt undanþágu frá sóttkví skv. 3. gr. vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, löggæslu, sjúkraflutninga eða slökkviliða. Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi.

Sóttvarnalækni er heimilt að veita undanþágu frá sóttkví skv. 3. gr. ef staðfest er að einstaklingur hafi sýkst af SARS-CoV-2 veirunni.

Sóttvarnalækni er heimilt að veita undanþágu frá sýnatöku og/eða framvísun vottorðs um neikvætt PCR-próf skv. 4. gr. til einstaklinga sem fylgja leiðbeiningum sóttvarnalæknis um vinnuferðir erlendis. Slíka undanþágu er einungis heimilt að veita starfsfólki í heilbrigðisþjónustu, starfsfólki sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu og starfsfólki lögreglu vegna nauðsynlegra ferða starfs síns vegna.

Í samráði við ráðherra sem fer með utanríkismál er sóttvarnalækni heimilt, vegna brýnna erindagjörða, að ákveða sérstakt fyrirkomulag um sóttkví, einangrun og sýnatöku fyrir einstaklinga og sendinefndir sem koma til landsins á vegum íslenskra stjórnvalda, starfsmenn sendiskrifstofa og aðra fulltrúa erlendra ríkja, starfsmenn alþjóðastofnana og einstaklinga í boði þeirra sem þurfa að koma til landsins vegna starfsemi þessara stofnana, meðlimi herliðs og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð og almannavörnum og fjölskyldur allra framangreindra aðila.

11. gr. Sérstakar reglur um einangrun.

Einstaklingur sem er með staðfesta sýkingu af COVID-19 eða ætla má að hann kunni að vera smitaður en þarf ekki á sjúkrahúsdvöl að halda, skal vera í einangrun í heimahúsi eða á stað sem almannavarnir og heilsugæsla á hverjum stað tilgreina. Í þeim tilvikum sem jákvætt PCR-próf gæti sýnt eldra smit getur einstaklingur gengist undir mótefnamælingu á blóðsýni. Ef mótefni greinist þarf viðkomandi ekki að sæta einangrun.

Einstaklingur í einangrun á að halda sig heima við og hafa bein samskipti við sem fæsta, sbr. meðfylgjandi leiðbeiningar sóttvarnalæknis. Ákvæði 7. og 8. gr. eiga einnig við um þá sem sæta einangrun nema strangari reglur eigi við. Þannig má einstaklingur í einangrun t.a.m. hvorki fara í gönguferðir né nota leigubíla.

Að jafnaði skal einstaklingur sem er smitaður vera einsamall í einangrun. Aðrir heimilismenn geta þó verið í sóttkví á sama stað ef þeir vilja ekki eða geta ekki farið af heimilinu en þeir eiga að takmarka snertingu við þann sem er í einangrun eins og raunhæft er og helst að halda sig í a.m.k. 2 m fjarlægð frá hinum smitaða. Ef fleiri veikjast á heimilinu lengir það tíma sem aðrir heimilismenn þurfa að vera í sóttkví og mögulega einangrun.

Sóttvarnalæknir hefur gefið út nánari leiðbeiningar fyrir almenning um einangrun, sbr. fylgiskjal 2. Einnig getur hann mælt sérstaklega fyrir um hvernig einangrun skuli háttað í einstaka tilfellum, telji hann tilefni til.

Læknir má aflétta einangrun vegna COVID-19 þegar 14 dagar eru liðnir frá greiningu og sjúklingur hefur verið einkennalaus í a.m.k. sjö daga. Að öðru leyti fer um afléttingu einangrunar eftir leiðbeiningum sóttvarnalæknis, sbr. fylgiskjal 2.

12. gr. Viðurlög.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum eða fangelsi skv. 19. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 eða 175. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

13. gr.

Lögreglustjóra er heimilt að vísa útlendingi, sem ekki er búsettur hér á landi, úr landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum eftir komu ef hann neitar að verða við fyrirmælum um ráðstafanir samkvæmt þessari reglugerð eða í ljós kemur að hann hefur ekki fylgt þeim, s.s. að framvísa vottorði, gangast undir sýnatöku eða halda sóttkví. Ákvörðun um frávísun er kæranleg til kærunefndar útlendingamála, en kæra frestar ekki framkvæmd ákvörðunar. Að öðru leyti fer um málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga.

14. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi sem sett er á grundvelli 12., 13., 14., 17. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi 1. apríl 2021. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 161/2021, um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19, með síðari breytingum. Ákvæði 3. mgr. 5. gr. tekur gildi 11. apríl 2021.

Reglugerð þessi fellur úr gildi þann 30. apríl 2021.

Heilbrigðisráðuneytinu, 30. mars 2021.

Svandís Svavarsdóttir.

Ásta Valdimarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.