Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. jan. 2022

16/2022

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr. Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 15. janúar 2022 og gildir til og með 2. febrúar 2022.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara, skipa í millilandaferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana og þjónustu sem veitt er af þeim stofnunum, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofnana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði reglugerðar þessarar um nálægðartakmörkun taka ekki til barna sem fædd eru 2016 og síðar. Ákvæði um grímuskyldu tekur ekki til barna sem fædd eru 2006 og síðar.

Um skólastarf fer eftir reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

3. gr. Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 10 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum, innan- og utandyra. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds, sbr þó 7. mgr. 2. gr.
  3. Skemmtana, svo sem standandi eða sitjandi viðburða og einkasamkvæma.
  4. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 10 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 10 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum og söfnum heimilt að taka við 50 manns í rými og til viðbótar fimm viðskiptavinum á hverja 10 m² umfram 100 m², þó að hámarki 200 viðskiptavinum. Leitast skal við að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun þar sem fólk staldrar við í lengri tíma, svo sem í biðröðum á kassasvæðum.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er heimilt að hafa allt að 50 manns á sitjandi sviðslistarviðburðum og í útförum, í kvikmyndahúsum og leikhúsum, að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:

  1. Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum.
  2. Viðhöfð sé 1 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra gesta.
  3. Allir gestir noti andlitsgrímu.
  4. Ekki séu seldar áfengisveitingar fyrir viðburð, á meðan hann stendur yfir og eftir að honum lýkur.
  5. Gestir skulu beðnir um að halda kyrru fyrir í sætum sínum, ef hlé er gert á viðburði, sé þess kostur.

Fjöldatakmarkanir skv. 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, þjóðaröryggisráðs, Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.

4. gr. Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum, verslunum, söfnum og allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., hvort sem er innan- eða utandyra, skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Þrátt fyrir 1. mgr. gildir 1 metra nálægðartakmörkun á sitjandi viðburðum skv. 4. mgr. 3. gr. og á veitingastöðum skv. 1. mgr. 5. gr.

Grímuskylda er í verslunum og verslunarmiðstöðvum. Andlitsgrímur skal jafnframt nota þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun skv. 1. mgr., svo sem á söfnum, í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, auk þess í menningarstarfsemi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi.

Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótthreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 3. mgr. eru þeir einstaklingar sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

5. gr. Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Skemmtistöðum og krám, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, spilakössum og spilasölum skal lokað á gildistíma reglugerðarinnar. Þá er öðrum veitingastöðum þar sem eru heimilaðar áfengisveitingar heimilt að hafa opið til kl. 21.00 alla daga vikunnar. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 21.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 22.00. Gestir mega að hámarki vera 20 í rými og skulu vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Þrátt fyrir 1. mgr. 4. gr. er heimilt að viðhafa 1 metra nálægðartakmörkun milli sitjandi gesta á veitingastöðum.

Ekki er heimilt að halda einkasamkvæmi eftir kl. 22.00 á stöðum sem hafa vínveitingaleyfi.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 22.00.

Í þeim tilvikum þar sem fleiri tegundir veitingastaða eru skráðar í rekstrarleyfi er þeim heimilt að starfa áfram í samræmi við aðrar tegundir en kveðið er á um í 1. mgr. með þeim takmörkunum sem kveðið er á um í reglugerð þessari.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun má gestafjöldi á heilsu- og líkamsræktarstöðvum, sund- og baðstöðum og skíðasvæðum aldrei vera meiri en helmingur af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við helming þess fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir. Börn fædd árið 2016 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð milli notenda og skal loftað reglulega út. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna, innan- og utandyra, með og án snertingar, eru heimilar með allt að 50 manns í rými. Búningsaðstaða skal þrifin reglulega og snertifletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð milli hópa, loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn. Sama gildir um sitjandi borðleiki, svo sem skák, bridds og bingó.

Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum. Þó er heimilt að hafa fjölmiðlafólk á slíkum viðburðum að uppfylltum ákvæðum 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 4. gr.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklingsbundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og gilda um sambærilegar íþróttir innan sambandsins.

Sviðslistir, kórastarf sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir með allt að 50 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Andlitsgrímur skulu notaðar þegar því verður við komið nema þegar listflutningur fer fram. Leitast skal við að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun. Gætt skal að handhreinsun, sótthreinsun sameiginlegs búnaðar a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loftræsting sé í lagi. Um áhorfendur fer eftir 4. mgr. 3. gr.

6. gr. Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undanþegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað.

7. gr. Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

8. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkraflutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti. Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni um beiðnir um undanþágu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 7/2022, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Heilbrigðisráðuneytinu, 14. janúar 2022.

Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra.

Ásta Valdimarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.