Fara beint í efnið

Prentað þann 4. maí 2024

Breytingareglugerð

1629/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 940/1999, um löggiltar iðngreinar.

1. gr.

Í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar falla brott eftirfarandi iðngreinar:

  1. Feldskurður.
  2. Glerslípun og speglagerð.
  3. Hattasaumur.
  4. Hljóðfærasmíði.
  5. Klæðskurður karla. [sameinast klæðskurði]
  6. Leturgröftur.
  7. Myndskurður.
  8. Skósmíði. [sameinast skósmíðaiðn]
  9. Skóviðgerð. [sameinast skósmíðaiðn]
  10. Málmsteypa.
  11. Mótasmíði.
  12. Skipa- og bátasmíði.
  13. Stálskipasmíði. [sameinast stálsmíði]
  14. Stálvirkjasmíði. [sameinast stálsmíði]
  15. Almenn ljósmyndun. [sameinast ljósmyndun]
  16. Persónuljósmyndun. [sameinast ljósmyndun]

2. gr.

Í stað "klæðskurður kvenna" í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: klæðskurður.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í staðinn fyrir "iðnaðarráðherra" í 1. mgr. kemur: ráðherra sem fer með málefni iðnaðar.
  2. Í staðinn fyrir "menntamálaráðherra" í 2. mgr. kemur: ráðherra er fer með menntamál.
  3. 3. mgr. breytist og verður svohljóðandi: Fallist ráðherra á að löggilda greinina breytir hann þessari reglugerð til samræmis. Ráðherra getur sett sérstakar reglur um veitingu starfsréttinda í hinni nýju iðngrein.
  4. Við bætist 5. mgr. 2. gr. svohljóðandi: Við endurútgáfu sveinsbréfa og meistarabréfa í löggiltri iðngrein sem breytt hefur verið um heiti á eða sem sameinuð hefur verið annarri löggiltri iðngrein skal notast við heiti iðngreinarinnar samkvæmt gildandi reglugerð.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 1. mgr. 8. gr. laga um handiðnað, nr. 42/1978, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur reglugerð um breytingu á reglugerð um löggiltar iðngreinar nr. 1379/2022 úr gildi.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. desember 2022.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Sigríður Valgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.