Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

463/2007

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um almannatryggingar (IX). - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1851/2003 frá 17. október 2003 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja, skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2005 frá 8. febrúar 2005 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Reglugerðin (EB) nr. 1851/2003 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá félagsmála­ráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í reglugerð fjármálaráðuneytisins er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1851/2003 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2005 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 32, 23. júní 2005, bls. 12-14, er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 10. maí 2007.

Siv Friðleifsdóttir.

Davíð Á. Gunnarsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica