Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

1265/2007

Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. - Brottfallin

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Í reglugerð þessari er kveðið á um þau gjöld sem sjúkratryggðir skulu greiða fyrir heilbrigðisþjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum, á bráðamóttöku og göngu- og slysadeildum sjúkrahúsa og fyrir heilbrigðisþjónustu sem veitt er hjá sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum sem samninganefnd heilbrigðisráðherra hefur gert samning við skv. 44. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar.

Heilsugæslustöðvum, sjúkrahúsum og sérfræðilæknum, sbr. 1. mgr., er óheimilt að innheimta hærri eða önnur gjöld af sjúkratryggðum en kveðið er á um í reglugerð þessari og fylgiskjali með henni.

Tryggingastofnun ríkisins skal kynna almenningi efni þessarar reglugerðar.

2. gr.

Fagleg samskipti heilsugæslulækna, heimilislækna og sérfræðilækna.

Í samræmi við markmið um að tryggja fagleg samskipti milli heilsugæslulækna, heimilis­lækna og sérfræðilækna er gert ráð fyrir því sem meginreglu í reglugerð þessari að samskipti sjúklings og læknis hefjist hjá heilsugæslu- eða heimilislækni.

Sjúklingur sem kemur til sérfræðilæknis fyrir milligöngu heilsugæslu- eða heimilislæknis skal hafa meðferðis beiðni frá lækninum. Sérfræðilæknirinn skal ávallt senda læknabréf til heilsugæslu- eða heimilislæknis sjúklings, sbr. þó 4. mgr.

Komi sjúklingur til sérfræðilæknis án milligöngu heilsugæslu- eða heimilislæknis skal sérfræðilæknir þó ávallt senda heilsugæslu- eða heimilislækni sjúklingsins læknabréf. Komi sjúklingur til sérfræðilæknis fyrir milligöngu annars sérfræðilæknis skal síðari sérfræðilæknirinn ávallt senda læknabréf til heilsugæslu- eða heimilislæknis sjúklingsins og þess sérfræðilæknis sem hafði milligöngu um samskiptin, sbr. þó 4. mgr.

Sjúklingi er heimilt að óska þess við lækni að hann sendi ekki upplýsingar honum viðkomandi til annarra lækna. Þess skal þá getið í sjúkraskrá. Lækni er og skylt að útskýra fyrir sjúklingi ábyrgð þá sem þessu fylgir fyrir sjúklinginn sjálfan.

3. gr.

Hverjir eru sjúkratryggðir.

Sá sem verið hefur búsettur hér á landi í sex mánuði telst sjúkratryggður nema annað leiði af milliríkjasamningum, sbr. 37. gr. og 12. gr. laga nr. 100/2007 um almanna­tryggingar. Með búsetu er átt við lögheimili í skilningi lögheimilislaga. Börn og unglingar yngri en 18 ára eru sjúkratryggð með foreldrum sínum. Sama á við um stjúpbörn og fósturbörn.

Tryggingastofnun ríkisins ákvarðar hvort einstaklingur telst sjúkratryggður. Að öðru leyti gildir um það hverjir teljist sjúkratryggðir hér á landi, reglugerð nr. 463/1999 um framkvæmd almannatrygginga og skráningu í tryggingaskrá.

II. KAFLI

Heilsugæsla.

4. gr.

Komugjöld á dagvinnutíma.

Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis á dagvinnutíma skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:

  1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.000.
  2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 500.
  3. Börn yngri en 18 ára og börn með umönnunarkort samkvæmt reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna greiða ekkert gjald.

Undanþegnar gjaldskyldu eru komur vegna mæðra- og ungbarnaverndar, heilsugæsla í skólum og unglingamóttaka í heilsugæslu sem veitir ráðgjöf og fræðslu um forvarnir. Með mæðra- og ungbarnavernd er átt við mæðra- og ungbarnavernd eins og hún er skilgreind í tilmælum landlæknis um áherslur í mæðravernd og ung- og smábarnavernd.

Gjöld samkvæmt þessari grein renna til reksturs heilsugæslustöðvar eða stofureksturs heimilislæknis.

5. gr.

Komugjöld utan dagvinnutíma.

Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis utan dagvinnutíma, þ.e. milli kl. 16.00 og 08.00 og á laugardögum og helgidögum, skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:

  1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 2.200.
  2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 1.100.
  3. Börn yngri en 18 ára og börn með umönnunarkort samkvæmt reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna greiða ekkert gjald.

Hafi læknir sjálfur valið að sinna læknisstarfi utan dagvinnutíma skal greitt samkvæmt 4. gr.

Gjöld samkvæmt þessari grein renna til reksturs heilsugæslustöðvar eða stofureksturs heimilislæknis.

6. gr.

Gjöld vegna vitjana lækna.

Fyrir vitjun læknis á dagvinnutíma skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:

  1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 2.400.
  2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 1.200.
  3. Börn yngri en 18 ára og börn með umönnunarkort samkvæmt reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna greiða ekkert gjald.

Fyrir vitjun læknis utan dagvinnutíma skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:

  1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 3.300.
  2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 1.600.
  3. Börn yngri en 18 ára og börn með umönnunarkort samkvæmt reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna greiða ekkert gjald.

Með vitjun samkvæmt þessari grein er átt við þjónustu læknis utan heilsugæslustöðvar.

Hafi læknir sjálfur valið að sinna vitjun utan dagvinnutíma skal greiða vitjanagjald dagvinnutíma skv. 1. mgr.

Heimilt er að ákveða að ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyris­þegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyris­þegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, greiði sama vitjanagjald og aðrir, en fái mismuninn endurgreiddan gegnum sjúkratryggingar, gegn framvísun kvittunar læknis.

Í vitjanagjaldi eru innifaldar kr. 100 vegna óhjákvæmilegs ferðakostnaðar læknis.

Vitjanagjald greiðist lækni og dregst frá samningsbundinni þóknun hans fyrir vitjanir.

7. gr.

Gjöld fyrir aðra þjónustu.

Sjúkratryggðir skulu greiða fyrir bólusetningar (hvern skammt) á heilsugæslustöð sem hér segir:

  1. Blóðmauraheilabólga, kr. 2.400.
  2. Meningókokkar
    1. fjórgilt fjölsykrungabóluefni (A+C+W+Y), kr. 4.800.
    2. próteintengt fjölsykrungabóluefni gegn stofni C (18 ára og eldri), kr. 1.750.
    3. tvígilt bóluefni (A+C), kr. 1.600.
  3. Hettusótt, kr. 1.350.
  4. Hlaupabóla, kr. 5.700.
  5. Hundaæði, kr. 6.950.
  6. Inflúensa, kr. 700.
  7. Japönsk heilabólga, kr. 3.950.
  8. Kólera (bóluefni til inntöku), kr. 3.100.
  9. Lifrarbólga A 720 ein./ml, kr. 2.550.
  10. Lifrarbólga A 1400 ein./ml, kr. 3.700.
  11. Lifrarbólga B, kr. 2.700.
  12. Lifrarbólga B fyrir börn, kr. 2.100.
  13. Lifrarbólga A og B, kr. 5.200.
  14. Lifrarbólga A og B fyrir börn, kr. 3.550.
  15. Lungnabólga, kr. 2.000.
  16. Mislingar, kr. 1.350.
  17. Stífkrampi og barnaveiki fyrir fullorðna, kr. 650.
  18. Taugaveiki, kr. 2.200.
  19. Mænusótt fyrir fullorðna, kr. 1.200.
  20. Rótarveirusýking, kr. 9.400.

Gjöld skv. 1. mgr. skulu greiðast til viðbótar við komugjöld skv. 4. og 5. gr. Gjöldin skulu einnig greidd í heimahjúkrun. Ekkert gjald er greitt fyrir ungbarnavernd og heilsugæslu í skólum, sbr. 2. mgr. 4. gr. Í ungbarnavernd er ekki greitt gjald fyrir bólusetningar við stífkrampa, mænusótt, rauðum hundum og MMR (mislingar + hettusótt + rauðir hundar).

Auk komugjalda skv. 4. og 5. gr. skulu sjúkratryggðir greiða gjald fyrir aðra þjónustu en greinir í 1. mgr. sem hér segir:

  1. Þungunarpróf, kr. 400.
  2. Streptokokkarannsóknir, kr. 500.
  3. Lyfjaleit í þvagi, kr. 1.600.
  4. Lykkja (t), kr. 2.250.
  5. Hormónalykkja, kr. 15.100.
  6. Foreldrafræðsla, kvöldnámskeið, gildir fyrir báða foreldra, kr. 6.000.

Gjöld samkvæmt þessari grein renna til reksturs heilsugæslustöðvar.

8. gr.

Gjöld vegna krabbameinsleitar.

Vegna krabbameinsleitar á heilsugæslustöðvum og hjá heimilislæknum (legstrok og mynd af brjóstum) skal sjúkratryggður greiða kr. 3.000 fyrir hverja komu.

Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris greiða kr. 1.500.

Gjöld samkvæmt þessari grein renna til Krabbameinsfélags Íslands vegna úrlesturs frumusýna, röntgenmynda og leitarstarfs.

III. KAFLI

Sjúkrahús.

9. gr.

Komugjöld.

Fyrir komu og endurkomu á slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa skal sjúkratryggður greiða sem hér segir:

  1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 4.000.
  2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 2.000.
  3. Börn yngri en 18 ára og börn með umönnunarkort samkvæmt reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna greiða ekkert gjald.

Fyrir komu og endurkomu á göngudeild sjúkrahúsa vegna þjónustu annarra en lækna skal sjúkratryggður greiða sem hér segir:

  1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 2.100.
  2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 1.100.
  3. Börn yngri en 18 ára og börn með umönnunarkort samkvæmt reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna greiða ekkert gjald, sbr. þó 3. og 4. mgr.

Fyrir sjúkra- og talþjálfun á sjúkrahúsum skal, þrátt fyrir 2. mgr., þó aldrei greiða hærra eða lægra gjald en kveðið er á um í gildandi samningum samninganefndar heilbrigðis­ráðherra við Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara og Félag talkennara og talmeina­fræðinga. Gjöld fyrir sjúkra- og talþjálfun á sjúkrahúsum veita rétt til þjálfunar­korts frá Tryggingastofnun ríkisins.

Sjúkratryggðir skulu, þrátt fyrir 2. mgr., taka þátt í kostnaði við meðferð húðsjúkdóma veitta á sjúkrahúsi af öðrum en læknum á sama hátt og þeir sem leita til meðferðaraðila sem starfa samkvæmt samningi sem samninganefnd heilbrigðisráðherra skv. 28. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu hefur gert, sbr. reglugerð nr. 1260/2007 um styrki vegna kostnaðar við meðferð húðsjúkdóma, veitta af öðrum en læknum.

Aldraðir sem njóta þjónustu dagvistar í tengslum við sjúkrahús skulu taka þátt í kostnaði af dagvistinni skv. 19. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra og gildandi reglugerð um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum.

Gjöld fyrir þjónustu skv. VI. kafla greiðast til viðbótar við komugjöld skv. 1. mgr., þó skulu komugjald og gjöld skv. VI. kafla takmarkast við það hámarksgjald sjúkratryggðs sem tilgreint er í VI. kafla.

Gjöld samkvæmt þessari grein skulu renna til reksturs sjúkrahúss.

10. gr.

Gjald fyrir endurtengingu eggjaleiðara eftir ófrjósemisaðgerð.

Fyrir endurtengingu eggjaleiðara eftir ófrjósemisaðgerð skal sjúkratryggður greiða kr. 165.000.

Gjald samkvæmt þessari grein rennur til reksturs sjúkrahúss.

IV. KAFLI

Sameiginleg ákvæði fyrir þjónustu í heilsugæslu og á sjúkrahúsum.

11. gr.

Gjöld fyrir læknisvottorð í heilsugæslu og á sjúkrahúsum.

Fyrir læknisvottorð á eyðublöðum Tryggingastofnunar ríkisins vegna almannatrygginga eða bóta félagslegrar aðstoðar skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:

  1. Ekkert gjald fyrir örorkuvottorð vegna lífeyristrygginga (A og B), örorkuvottorð vegna slysatrygginga (A), vottorð vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fötluð og sjúk börn eða vottorð vegna endurhæfingarlífeyris.
  2. Fyrir framhaldsvottorð vegna slysatrygginga, kr. 400.
  3. Fyrir læknisvottorð vegna slysatrygginga (áverkavottorð), vegna beiðni um þjálfun, vegna öflunar hjálpartækja, vegna lengingar fæðingarorlofs, vegna hreyfihömlunar (uppbót vegna reksturs bifreiðar), vegna heimahjúkrunar, vegna umsóknar um lyfjaskírteini, vegna vistunar sjúklings erlendis (siglinganefnd), sjúkradagpeningavottorð eða skýrslu vegna ferðakostnaðar innanlands, kr. 800.
  4. Fyrir læknisvottorð vegna umsóknar um styrk og uppbót til kaupa á bifreið fyrir fatlaða, kr. 800.

Fyrir önnur læknisvottorð en tilgreind eru í 1. mgr. skal innheimta gjöld sem hér segir:

  1. Fyrir vottorð um fjarvistir nemenda úr skólum, kr. 400.
  2. Fyrir vottorð vegna sjúkranudds, kr. 800.
  3. Fyrir vottorð um fjarvistir til atvinnurekenda, ónæmisaðgerðir og alþjóða­ónæmisskírteini, heilsufar nemenda til skóla, leikskóla og sumarbúða, undan­þágu til bílbeltanotkunar, vegna veitingar ökuleyfis og endurgreiðslu ferða­kostnaðar, svo sem ferðarofs, og til skattyfirvalda, kr. 1.200.
  4. Fyrir vottorð vegna bóta úr slysa- og sjúkrasjóðum, umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða, andláts (dánarvottorð), fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðar, kr. 1.700.
  5. Fyrir vottorð vegna byssuleyfis, skóla erlendis, og um heilsufar eða vinnufærni vegna umhverfis eða atvinnu, þ.m.t. vegna atvinnuréttinda, kr. 3.500.
  6. Fyrir vottorð til lögmanna og tryggingafélaga vegna sjúkdóma eða slysa, trygg­ingafélaga vegna líf- og sjúkdómatrygginga eða umsókna um örorkubætur, ættleiðingu, lögreglu, sýslumanna, vegna dvalar- og/eða atvinnuleyfa hér á landi og dvalar eða starfa erlendis skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða kr. 3.000 fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.

Gjöld fyrir vottorð samkvæmt þessari grein skulu renna til stofnunar.

V. KAFLI

Sameiginleg ákvæði fyrir þjónustu utan sjúkrahúsa
og á göngudeildum sjúkrahúsa.

12. gr.

Gjöld fyrir sérfræðilæknishjálp.

Fyrir hverja komu til sérfræðilæknis utan sjúkrahúsa og á göngudeild sjúkrahúsa, sbr. þó 10. og 13. gr., skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir, sbr. þó 16. gr.:

  1. Sjúkratryggðir almennt, fyrstu kr. 3.100 og til viðbótar 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna sem umfram er, þó að hámarki kr. 21.000.
    Fyrir komu til sérfræðings í augnlækningum til sjónmælingar vegna gleraugna greiða sjúkratryggðir almennt á aldrinum 18 - 70 ára fullt verð samkvæmt gjaldskrá sérfræðinga við Tryggingastofnun ríkisins, sbr. þó 2. og 3. tölul. 1. mgr.
  2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 1.100 og til viðbótar 1/3 af 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna sem umfram er, þó að hámarki kr. 21.000.
  3. Börn yngri en 18 ára, 1/9 af gjaldi samkvæmt 1. tölul. l. mgr., þó að lágmarki kr. 550 og að hámarki kr. 21.000, og ekkert gjald vegna komu til sérfræðilæknis á göngudeild sjúkrahúsa.
  4. Börn með umönnunarkort samkvæmt reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna greiða ekkert gjald.

Sjúkratryggðir almennt skulu greiða kr. 6.300 fyrir keiluskurðaðgerðir. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris skulu greiða kr. 2.100 fyrir keiluskurðaðgerðir. Börn yngri en 18 ára greiða ekkert gjald.

Með komu til sérfræðilæknis á göngudeild sjúkrahúsa skv. 1. mgr. er átt við ferliverk, þ.e. læknismeðferð sem unnt er að veita hvort sem er á læknastofum utan sjúkrahúsa eða á sjúkrahúsum og krefst ekki innlagnar á sjúkradeild nema í undantekningartilvikum. Sjúklingur greiðir gjald skv. 1. mgr. og gildir þá einu þótt næturdvöl kunni að reynast nauðsynleg í einstökum tilvikum.

Við komu skv. 1. tölul. 1. mgr. þar sem svæfingalæknir svæfir eða deyfir við aðgerð skurðlæknis skal sjúkratryggður greiða að hámarki kr. 21.000 í heild.

Þegar reikningur er gerður til Tryggingastofnunar ríkisins fyrir sérfræðilæknishjálp skal draga greiðslu sjúkratryggðra frá umsömdu heildarverði. Ekki er gerður reikningur til Tryggingastofnunar ríkisins vegna sérfræðilæknisþjónustu (ferliverk) sem veitt er á sjúkrahúsum.

Með umsömdu og ákveðnu heildarverði, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr., er átt við það gjald sem samið hefur verið um í samningum heilbrigðisráðherra við sérfræðilækna skv. 44. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Innifalið í greiðslu sjúkratryggðra er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar.

Gjöld vegna þjónustu á göngudeild sjúkrahúsa skulu renna til reksturs sjúkrahússins.

13. gr.

Gjöld vegna meðferðar og rannsókna við ófrjósemi.

Fyrir meðferð hjá IVF Iceland, tæknifrjóvgun, skal sjúkratryggður greiða sem hér segir:

 

1.

Par sem ekki á barn saman:

Glasafrjóvgun (IVF)

Smásjárfrjóvgun (ICSI)

   

a.

fyrsta meðferð

kr.

149.000

kr.

178.200

   

b.

önnur til fjórða meðferð

kr.

83.700

kr.

101.000

   

c.

fimmta meðferð eða fleiri

kr.

278.200

kr.

334.000

 

2.

Par sem á eitt barn saman:

       
   

a.

fyrsta til fjórða meðferð

kr.

220.000

kr.

264.000

   

b.

fimmta meðferð eða fleiri

kr.

278.200

kr.

340.000

 

3.

Par sem á fleiri börn saman:

kr.

278.200

kr.

340.000

Inni í þessari greiðslu felst kostnaður vegna nauðsynlegra rannsókna, heimsókna til sérfræðinga hjá IVF og lyfja, annarra en örvunarlyfja eggjastokka, en um greiðslu þeirra fer samkvæmt reglugerð um greiðslur almannatrygginga í lyfjakostnaði.

Greiðslur skulu skiptast þannig að í upphafi hverrar meðferðar skal greitt 20% af áætluðu heildargjaldi. Eftirstöðvar gjalds skal greiða þegar ákveðið hefur verið að framkvæma eggheimtu.

  1. Uppsetning frystra fósturvísa, kr. 44.000.
  2. Geymsla frystra fósturvísa kr. 11.500 fyrir hvert byrjað geymsluár. Frysting fósturvísa er að öðru leyti innifalin í meðferðargjaldi.
  3. Tæknisæðing, aðeins ef uppsetning er framkvæmd, kr. 22.000.

Fyrir aðrar rannsóknir sem ekki tengjast tæknifrjóvgunarmeðferð skulu greiðslur fara skv. 12. gr. og VI. kafla.

VI. KAFLI

Sameiginleg ákvæði fyrir þjónustu í heilsugæslu,
á sjúkrahúsum og utan sjúkrahúsa.

14. gr.

Gjöld fyrir rannsóknir, geisla- og myndgreiningar og beinþéttnimælingar.

Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknastofu og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknastofu, sbr. þó 10. og 13. gr., skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir, sbr. þó 16. gr.:

  1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.200.
  2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 400.
  3. Börn yngri en 18 ára, kr. 200.
  4. Börn með umönnunarkort samkvæmt reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna greiða ekkert gjald.

Fyrir hverja komu til geisla- og myndgreiningar og beinþéttnimælingar skulu sjúkra­tryggðir greiða sem hér segir, sbr. þó 16. gr.:

  1. Sjúkratryggðir almennt, 1.800 kr. og til viðbótar 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna sem umfram er, þó að hámarki kr. 21.000.
  2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 600 og til viðbótar 1/3 af 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna sem umfram er, þó að hámarki kr. 21.000.
  3. Börn yngri en 18 ára, 1/9 af gjaldi samkvæmt 1. tölul 2. mgr., þó að lágmarki kr. 300 og að hámarki kr. 21.000.
  4. Börn með umönnunarkort samkvæmt reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna greiða ekkert gjald.

Sjúkratryggðir almennt skulu greiða kr. 6.200 fyrir kransæða- og hjartaþræðingu. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris skulu greiða kr. 2.100 fyrir kransæða- og hjartaþræðingu. Börn yngri en 18 ára greiða ekkert gjald.

Þegar reikningur er gerður til Tryggingastofnunar ríkisins fyrir geisla- og myndgreiningu skal draga greiðslu sjúkratryggðra frá umsömdu heildarverði. Ekki er gerður reikningur til Tryggingastofnunar ríkisins vegna geisla- og myndgreininga og beinþéttnimælinga sem gerðar eru í heilsugæslu og á sjúkrahúsum.

Með umsömdu og ákveðnu heildarverði, sbr. 1. og 2. tölul. 2. mgr., er átt við það gjald sem samið hefur verið um í samningum heilbrigðisráðherra við sérfræðilækna skv. 44. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar eða verð sem tilgreint er í fylgiskjali I með þessari reglugerð. Innifalið í greiðslu sjúkratryggðra er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar.

Gjöld vegna þjónustu á heilsugæslustöð og á sjúkrahúsum skulu renna til reksturs stofn­ananna.

VII. KAFLI

Afsláttarskírteini.

15. gr.

Réttur til afsláttarskírteinis.

Þegar sjúkratryggður einstaklingur á aldrinum 18 - 70 ára hefur greitt kr. 21.000 á sama almanaksári vegna heimsókna á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis, vitjana lækna, koma á slysadeild, göngudeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa, koma til sérfræðilækna utan sjúkrahúsa og til sérfræðilækna á göngudeild sjúkrahúsa, rannsókna á rannsóknastofum, geisla- og myndgreininga og beinþéttnimælinga skal hann eiga rétt á afsláttarskírteini.

Börn undir 18 ára aldri með sama fjölskyldunúmer samkvæmt skilgreiningu Þjóðskrár skulu teljast einn einstaklingur. Þegar greiddar hafa verið á sama almanaksári kr. 7.000 vegna koma barna undir 18 ára aldri í sömu fjölskyldu, til sérfræðilækna utan sjúkra­húsa, rannsókna á rannsóknastofum, geisla- og myndgreininga og beinþéttni­mælinga, eiga forsjármenn barnanna rétt á afsláttarskírteini vegna þeirra.

Þegar ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar og ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, hafa greitt kr. 5.200 á sama almanaksári vegna heimsókna á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis, vitjana lækna, heimsókna á slysadeild, göngudeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa, koma til sérfræðilækna utan sjúkrahúsa og til sérfræði­lækna á göngudeild sjúkrahúsa, rannsókna á rannsóknastofu, geisla- og mynd­greininga og beinþéttnimælinga, skulu þeir eiga rétt á afsláttarskírteini.

Greiðslur samkvæmt 7. gr., 8. gr., 4. og 5. mgr. 9. gr., 10. gr., 11. gr., 13. gr. og 18. gr. veita ekki rétt til afsláttarskírteinis samkvæmt þessari grein.

16. gr.

Gjöld þeirra sem eru með afsláttarskírteini.

Gegn framvísun kvittana fyrir greiðslur skv. 4.-6. gr., 1. og 2. mgr. 9. gr., 12. og 14. gr. skal Tryggingastofnun ríkisins afhenda sjúkratryggðum afsláttarskírteini skv. 15. gr., sem lækkar greiðslu vegna heilbrigðisþjónustu út almanaksárið. Kvittanir skulu auk nafns útgefanda bera með sér tegund þjónustu, fjárhæð, greiðsludag, nafn og kennitölu hins sjúkratryggða.

Hafi sjúkratryggður fengið afsláttarskírteini samkvæmt þessari grein skal hann greiða sem hér segir fyrir heilbrigðisþjónustu það sem eftir er almanaksársins:

  1. Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis skv. 4. gr. á dagvinnutíma:
    1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 500.
    2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 350.
  2. Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis skv. 5. gr. utan dagvinnutíma:
    1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.300.
    2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 600.
  3. Fyrir vitjun læknis skv. 1. mgr. 6. gr. á dagvinnutíma:
    1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.400.
    2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 600.
  4. Fyrir vitjun læknis skv. 2. mgr. 6. gr. utan dagvinnutíma:
    1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 2.000.
    2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 800.
  5. Fyrir komu á slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa skv. 1. mgr. 9. gr.:
    1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 2.000.
    2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 700.
  6. Fyrir komu á göngudeild sjúkrahúsa vegna þjónustu annarra en lækna skv. 2. mgr. 9. gr.:
    1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 1.100.
    2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 550.
  7. Fyrir komu til sérfræðilæknis utan sjúkrahúsa og til sérfræðilæknis á göngudeild sjúkrahúsa skv. 12. gr.:
    1. Sjúkratryggðir, kr. 1.100 + 1/3 af 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna sem umfram er, þó að hámarki kr. 21.000. Fyrir keiluskurðaðgerð skal greiða að hámarki kr. 2.100.
    2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, 1/9 af gjaldi samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 12. gr., þó að lágmarki kr. 550 og að hámarki kr. 21.000. Fyrir keiluskurðaðgerð skal greiða að hámarki kr. 800.
    3. Börn yngri en 18 ára, 1/9 af gjaldi samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 12. gr., þó að lágmarki kr. 450 og að hámarki kr. 21.000, og ekkert gjald vegna komu til sérfræðilæknis á göngudeild sjúkrahúsa.
  8. Fyrir rannsóknir skv. 1. mgr. 14. gr.:
    1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 600.
    2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, kr. 200.
    3. Börn yngri en 18 ára, kr. 100.
  9. Fyrir geisla- og myndgreiningu og beinþéttnimælingu skv. 2. mgr. 14. gr.:
    1. Sjúkratryggðir almennt, kr. 600 og til viðbótar 1/3 af 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna sem umfram er, þó að hámarki kr. 21.000. Fyrir kransæða- og hjartaþræðingu skal greiða að hámarki kr. 2.100.
    2. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, 1/9 af gjaldi skv. 1. tölul. 2. mgr. 14. gr., þó að lágmarki kr. 300 og að hámarki kr. 21.000. Fyrir kransæða- og hjartaþræðingu skal greiða að hámarki kr. 700.
    3. Börn yngri en 18 ára, 1/9 af gjaldi skv. 1. tölul. 2. mgr. 14. gr., þó að lágmarki kr. 200 og að hámarki kr. 21.000.

Við komu skv. 7. tölul. 2. mgr. þar sem svæfingalæknir svæfir eða deyfir við aðgerð skurðlæknis skal sjúkratryggður greiða að hámarki kr. 21.000 í heild.

Heimilt er að ákveða að afsláttarskírteinishafar greiði sama vitjanagjald og aðrir en fái síðan mismuninn endurgreiddan gegnum sjúkratryggingar, gegn framvísun kvittunar læknis.

Gjöld sem greidd eru á heilsugæslustöð og sjúkrahúsi renna til reksturs stofnananna.

Vitjanagjald dregst frá samningsbundinni þóknun læknis fyrir vitjanir, sbr. og 6. gr.

VIII. KAFLI

Ýmis ákvæði.

17. gr.

Sérreglur fyrir atvinnulausa.

Einstaklingur sem verið hefur samfellt atvinnulaus í sex mánuði eða lengur samkvæmt staðfestingu Vinnumálastofnunar á rétt á heilbrigðisþjónustu á sömu kjörum og ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris. Staðfestingu Vinnumálastofnunar skal endurnýja á þriggja mánaða fresti. Réttur til afsláttarskírteinis fer samkvæmt 1. mgr. 15. gr.

18. gr.

Gjald fyrir sjúkraflutninga.

Hámarksfjárhæð sem sjúkratryggður skal greiða fyrir sjúkraflutninga á sjúkrahús og frá sjúkrahúsi skv. h-lið 1. mgr. 41. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er kr. 4.100.

19. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 41. gr. laga nr. 100/2007 um almanna­tryggingar, með síðari breytingu, og 34. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðis­þjónustu, öðlast gildi 1. janúar 2008. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 1090/2006 um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingu, og reglugerð nr. 340/1992 um ferliverk.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 21. desember 2007.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Berglind Ásgeirsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica