Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

1115/2005

Reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga. - Brottfallin

1. gr.

Upphæðir bóta og greiðslur skv. 59. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og upphæðir samkvæmt lögum nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu hækka frá 1. janúar 2006 að telja um 4,0% frá því sem þær voru í desember 2005.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 65. gr., sbr. 66. gr. og 17. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 15. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2006.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. desember 2005.

Jón Kristjánsson.

Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica